• Gangandi íkorni

    Gangandi íkorni

    Draumsólir vekja mig – á þeim orðum hefst fyrsta skáldsaga Gyrðis Elíassonar. Svið hennar og persónur virðast í fyrstu hefðbundin: ungur drengur í afskekktri sveit hjá öldruðum hjónum, kaupstaðarferð, læknisvitjun, búverk. En lesandi finnur brátt einkennilega fjarlægð í þessu nána sambýli, eitthvað órætt bærist með drengnum. Dag einn sest hann við vaxdúklagt borðið og tekur að festa sýnir á brúnan maskínupappír: „Fyrst teikna ég flugvél og hákarl lónandi í gruggugu hafi undir. Síðan færi ég mig til á blaðinu. Ég leggst þungt á tréblýantinn og vanda mig. Allt í einu er orðinn til strákofi með garðskækli við, lítil lognvær tjörn, og íkorni.“ Fyrr en varir er lesandinn horfinn með íkornanum inn í óhugnanlegan heim. Uns draumsólir vekja hann . . .

    Gyrðir Elíasson hefur áður sent frá sér fimm ljóðabækur og unnið sér sess sem eitt hugmyndaríkasta ljóðskáld yngri kynslóðarinnar.

    9.990 kr.
    Setja í körfu
  • Kul

    Kul

    Una rambar á barmi kulnunar og er send vestur á firði í nýstofnað meðferðarúrræði, Kul. Þar dvelur lítill hópur fólks í þorpi við sjávarsíðuna í svartasta skammdeginu og glímir við það sem Hákon, forsprakki Kuls, segir mikilvægast: að horfast í augu við myrkrið innra með sér. Fyrir vestan fer fortíðin að sækja á Unu, minningar frá æskuárunum í litlu kjallaraíbúðinni með mömmu og Magga bróður.

    Þegar hrikta fer í stoðum meðferðarinnar, og ekki síður sjálfsmyndar Unu, tekur allt það sem hefur frosið fast innra með henni að losna úr læðingi og veruleikinn fer á flot.

    Kul er fyrsta skáldsaga Sunnu Dísar Másdóttur en áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Plómur sem var tilnefnd til Maístjörnunnar. Sunna er jafnframt ein Svikaskálda sem gefið hafa út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hún starfar ennfremur sem þýðandi, leiðbeinandi í ritlist og bókmenntagagnrýnandi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Milli trjánna

    Milli trjánna

    Milli trjánna er safn 47 fjölbreyttra og meitlaðra smásagna. Bókin hefur hlotið einróma lof og færði höfundinum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2011. Í kjölfarið hafa verk hans verið þýdd og gefin út víða um lönd og njóta vaxandi vinsælda og virðingar. Þessi nýja útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Suðurglugginn

    Suðurglugginn

    Hér tekur Gyrðir upp þráðinn þar sem frá var horfið í Sandárbókinni og spinnur nýja frásögn um hlutskipti listamanns, í þetta sinn er það rithöfundur sem dvelur í sumarhúsi í grennd við lítið þorp og glímir við að skrifa skáldsögu, verk sem neitar stöðugt að taka á sig þá mynd sem höfundurinn leitast við að skapa. Þessi útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Ljóðasafn - Guðrún Hannesdóttir

    Ljóðasafn – Guðrún Hannesdóttir

    Stórglæsilegt ljóðasafn með öllum tíu ljóðabókum skáldkonunnar ásamt greinargóðum eftirmála sem Bergljót Soffía Kristjánsdóttir ritar, en þar segir m.a.: „Af náttúruljóðum Guðrúnar lýsir einatt sjálf gleði lífsins og aðdáunin á undrum þess …“

    7.690 kr.
    Setja í körfu
  • Ljóðasafn II – Gyrðir Elíasson

    Ljóðasafn II – Gyrðir Elíasson

    Annað bindið af ljóðasafni Gyrðis geymir 3 bækur sem hafa verið ófáanlegar um áratuga skeið en eru nú saman komnar í einu lagi í vandaðri heildarútgáfu á verkum skáldsins. Hér birtast Tvö tungl, Vetraráform um sumarferðalag og Mold í Skuggadal. Ómissandi verk í safn allra bókaunnenda.

    7.390 kr.
    Setja í körfu
  • Tímaskjól

    Tímaskjól

    Þriðja skáldsaga eins athyglisverðasta höfundar evrópskra samtímabókmennta. Bókin kom fyrst út í Búlgaríu 2020 og hefur síðan sópað til sín fjölda verðlauna, en þar ber hæst Alþjóðlegu Booker-verðlaunin 2023. Veska A. Jónsdóttir og Zophonías O. Jónsson þýddu úr búlgörsku.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • The Galdrabók - Forbidden Icelandic Folk Magic

    The Galdrabók – Forbidden Icelandic Folk Magic

    „Write these letters on white vellum with your blood.“

    Once forbidden by the church on penalty of severe punishment and even death, Iceland’s occult symbols have been subject to a remarkable transformation over the past few decades: They can now commonly be seen used as tattoos, in media such as video games, and even as components of business logos. Most books containing these symbols, known as grimoires, were confiscated and destroyed. However, a small number survived, most famously the Galdrabók. In this new and approachable edition of the Galdrabók, folklorist Kári Pálsson presents his original English translation and an edition of the grimoire’s original Icelandic text beside another grimoire never before published: the unique and quite mysterious Jarðskinna manuscript.

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Guðrún Bergsdóttir - Hugarheimar / Inner Worlds

    Guðrún Bergsdóttir – Hugarheimar / Inner Worlds

    Hugarheimar er bók um útsaumslistakonuna Guðrúnu Bergsdóttur. Guðrún var fædd árið 1970 og lést í janúar 2024. Hún var fædd með fötlun sem setti mark sitt á líf hennar en hindraði hana þó ekki í að gera einstök útsaumslistaverk þar sem flæða saman litir og form, sprottin úr hennar hugarheimi. Bókin inniheldur myndir af verkum Guðrúnar, auk greina um verk hennar og feril eftir Aðalstein Ingólfsson, Margréti M. Norðdahl og Eggert Pétursson. Harpa Björnsdóttir ritstýrði og Ármann Agnarsson hannaði.

    8.990 kr.
    Setja í körfu
  • Gleðileikurinn djöfullegi

    Gleðileikurinn djöfullegi

    Húrra! Magnað! Loksins gleðileikur

    um lífið í Reykjavík, stórbrotin atvik á börum

    í miðbænum, þar sem logar af lífi kveikur

    og skylmst er á götum, því skynsemin er á förum!

    Rökkrið fer yfir, allt er á leið til fjandans,

    alþingismenn verða orðlausir fyrir svörum

    og upp að nýju synir og dætur landans

    rísa frá dauðum og neista næturbál.

    Mussju, nostalgískt ungskáld, leitar andans

    og ástarinnar sem hvarf, og segir: Skál!

    í slagtogi við Dauðann, Kafka og Krist,

    Birgittu Haukdal, Harry Potter og Njál,

    Foucault, Satan og fleiri er af stakri list

    koma við sögu í grátlegum gleðileik Íslands . . .

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Ykkar einlæg - Bréf frá berklahælum

    Ykkar einlæg – Bréf frá berklahælum

    Úlfar Bragason safnaði og bjó til prentunar

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Stuldur

    Stuldur

    Samastúlkan Elsa verður vitni að því þegar sænskur nágranni drepur hreindýrskálfinn hennar, Nástegallu. Maðurinn ógnar henni og hún þorir aldrei að segja frá; veit líka að það er tilgangslaust, lögreglan skiptir sér ekki af því þótt ofbeldismenn misþyrmi og ræni hreindýrum Samanna og grannar þeirra hæðast að þeim og menningu þeirra og leggja þá í einelti. Hún þekkir það úr skólanum og samfélaginu. Áratug síðar er Elsa fullorðin og farin að berjast gegn sívaxandi misrétti og lítilsvirðingu sem Samar verða fyrir en ekki síður fyrir eigin réttindum í feðraveldissamfélagi þar sem ungar konur eiga ekki sömu möguleika og bræður þeirra. Svo ákveður maðurinn sem drap Nástegallu að kenna Elsu lexíu og þá skellur fortíðin á henni eins og snjóflóð og hún tekur til sinna ráða.

    Stuldur var valin bók ársins í Svíþjóð 2021, hlaut mikið lof og hefur verið seld til nítján landa. Höfundurinn, Ann-Helén Laestadius, er sjálf Sami og byggir söguna á raunverulegum atvikum. Hún hefur skrifað fjölda barna- og unglingabóka og hlotið verðlaun fyrir þær en Stuldur er fyrsta skáldsaga hennar fyrir fullorðna.

    Ísak Harðarson þýddi.

    990 kr.
    Setja í körfu