• Einar Bragi - Ljóðasafn

    Einar Bragi – Ljóðasafn

    Einar Bragi (1921-2005) var í fylkingarbrjósti atómskáldanna svonefndu og átti stóran þátt í þeim straumhvörfum sem urðu í íslenskri ljóðagerð um og eftir miðja 20. öld. Hann gaf út fjölda ljóðabóka, fór oft ótroðnar slóðir varðandi útgáfu þeirra, var frumkvöðull að stofnun tímaritsins Birtings og atkvæðamikill þýðandi erlendra ljóða.

    Í þessari útgáfu birtist meginþorri frumortra ljóða Einars Braga, allt frá fyrstu ljóðabókinni, Eitt kvöld í júní (1950), til þeirrar síðustu, Ljós í augum dagsins (2000), auk viðamikils úrvals af ljóðaþýðingum hans sem einnig spanna rúmlega hálfa öld.

    Ástráður Eysteinsson bókmenntafræðingur valdi ljóðin og ritar ítarlegan inngang þar sem fram kemur ný sýn á feril skáldsins.

    8.990 kr.
    Setja í körfu
  • Hlálegar ástir

    Hlálegar ástir

    Hvað gerist þegar fólk tekur sér ný gervi í stundarléttúð og leikur annarleg hlutverk í kynlífsleiknum án þess að hugsa það til enda eða gera sér grein fyrir afleiðingunum? Eða þegar karlmaður gerir sér upp trúarhita til að vinna hug og hjarta konu? Eða þegar listasögukennari kemur sér ekki að því að gefa umsögn um akvonda grein um myndlist?

    Milan Kundera fer á kostum í þessum sjö smásögum og skoðar margar viðkvæmustu hliðar mannlífsins í spéspegli, en meðal viðfangsefna hans eru ást og kynlíf, sýnd og reynd, einstaklingsbundinn húmor í húmorslausu samfélagi og sjálfsvirðing einstaklingsins.

    Smásögurnar komu fyrst út í Prag árið 1968 og gerast allar á sjöunda áratugnum, því skeiði sem nefnt hefur verið Vorið í Prag, skeiði frelsis og léttlyndis sem lauk snarlega þegar Rússar gerðu innrás í Prag, skömmu eftir að þessi bók kom út. En svo djúpt skyggnist Kundera í mannlegt hlutskipti að sögurnar gætu sem hægast gerst í nútímanum.

    Auk Óbærilegs léttleika tilverunnar er Hlálegar ástir sú bók Kundera sem mestra vinsælda hefur notið víða um heim.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Austurlenskar sögur
  • Eva Luna segir frá

    Eva Luna segir frá

    – Segðu mér sögu – segi ég við þig.
    – Um hvað á hún að vera?
    – Segðu mér sögu sem þú hefur engum sagt áður.

    Og Eva Luna segir ástmanni sínum, Rolf Carlé, tuttugu og þrjár sögur um jafnmörg tilbrigði ástarinnar. Hér segir af skuggalegum stigamönnum og háttprúðum hefðarmeyjum sem elskast með ærslum og glæframönnum sem stíga í vænginn við annálaðar sómakonur; tinandi gamalmenni hefja upp langþráð bónorð, mæðgur keppa um hylli farandsöngvara, draumar rætast og skýjaborgir hrynja. Sagt er frá klækjum og vélabrögðum, taumlausri ágirnd og takmarkalausri fórnfýsi og hvort sem sögurnar eru sóttar beint í furðulegan veruleika Suður-Ameríku eða framkallaðar með óþrjótandi ímyndunarafli skáldkonunnar eiga þær allar sammerkt að miðla ást á lífinu í öllum sínum fjölbreytilegustu myndum.

    Isabel Allende hefur þegar öðlast hylli Íslendinga fyrir litríkar sögur sínar, Hús andanna, Ást og skugga og Evu Lunu, þar sem hún sameinar töfraraunsæi og skarpa samfélagssýn. Tómas R. Einarsson þýddi úr spænsku.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Sannleikur allífssins

    Sannleikur allífssins

    Gregory Reeves er aðalpersóna og annar aðalsögumaður þessarar margslungnu skáldsögu Isabel Allende. Hann er hvítur en elst upp meðal spænskumælandi fólks í Kaliforníu og reynir á sjálfum sér ýmsar öfgar bandarísks þjóðfélags, verstu og bestu hliðar þess, auk þess sem hann hrærist í sögulegu umróti áranna kringum 1968 og kynnist því helvíti sem Víetnamstríðið var. Í lifandi og spennandi frásögn sem full er af litríkum mannlýsingum og eftirminnilegum atvikum lýsir Isabel Allende andstæðum bandarísks þjóðfélags, upplausn fjölskyldunnar, leit einstaklinganna að lífsfyllingu og ást – leit Gregory Reeves að þeim „Sannleika allífsins“ sem hann heyrði föður sinn predika um sem barn.

    Isabel Allende hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi allt frá því fyrsta skáldsaga hennar Hús andanna kom út. Tómas R. Einarsson þýddi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Hús andanna

    Hús andanna

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Paula

    Paula

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Hverjum klukkan glymur

    Hverjum klukkan glymur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Svartar morgunfrúr

    Svartar morgunfrúr

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Að jaðri heims

    Að jaðri heims

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Piltur og stúlka: dálítil frásaga
  • Það er alltaf eitthvað

    Það er alltaf eitthvað

    Tólf höfundar tylla sér á skáldabekk með fjölbreyttu safni smásagna þar sem andi Rimbauds og Guðrúnar frá Lundi svífur yfir vötnum innan um gargandi máva, konuna sem átti fjörutíu og sjö systkini, sendiherrafrúna, pervertinn í lestinni og þokkadísina Nansí. Auk þess koma við sögu ungbörn, aldraðir, ástfangnir, andlitslausir, sorgmæddir og sviknir. Það er alltaf eitthvað.

    Höfundar: Anna Björg Siggeirsdóttir, Einar Kári Jóhannsson, Freyja Auðunsdóttir, Gunnhildur Jónatansdóttir, Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir, Karítas Hrundar Pálsdóttir, Katrín Vinther, Kristófer Páll Viðarsson, Rut Guðnadóttir, Sólveig Johnsen, Sólveig Eir Stewart og Stefanía dóttir Páls.

    1.290 kr.
    Setja í körfu