• Glæpur við fæðingu

    Glæpur við fæðingu

    Stórmerkileg saga uppistandarans og stjórnmálaskýrandans Trevor Noah sem ólst upp í skugga aðskilnaðarstefunnar í Suður-Afríku: Sjálf tilvist hans var glæpur, því samband móður hans og föður af ólíkum hörundslit var refsivert á þeim tíma. Trevor segir á heillandi hátt frá æsku sinni og unglingsárum í samfélagi sem enn er í sárum, fyrstu skrefunum í skemmtanabransanum og trúrækinni móður sem opnaði fyrir honum heiminn.

    Trevor Noah (f. 1984) hefur vakið mikla athygli fyrir hárbeitta þjóðfélagsrýni í þættinum The Daily Show í Bandaríkjunum sem hann hefur stýrt frá árinu 2015. Hann er vinsæll uppistandari og má nálgast heimildarmyndir um hann á Netflix. Kvikmynd er í bígerð. Glæpur við fæðingu var valin ein besta bók ársins af helstu fréttamiðlum Bandaríkjanna þegar hún kom út. Bók sem sameinar kynslóðir í lestri. Besta þýdda bók ársins 2019 að mati bóksala á Íslandi. Sjöunda bókin í áskriftarröð Angústúru.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Guli kafbáturinn

    Guli kafbáturinn

    Rithöfundur á miðjum aldri hefur komið sér fyrir í almenningsgarði í London. Hann á brýnt erindi við Paul McCartney, sem situr þar undir tré, en fortíðin truflar hann í sífellu og sækir að honum í líki gamals Trabants með rauðu þaki. Í bílnum sitja faðir hans, Guð með vodkaflöskuna, og Johnny Cash með gítarinn í aftursætinu, og fleiri bætast í hópinn; Sesselja gamla og Guðmundur á fjórðu hæðinni, Jesús og mamma hans, heill kirkjugarður af dánu fólki, Benjamín ökukennari og Örn Örlygsson, sem grefur upp 5000 ára gömul ljóð á súmerskum leirtöflum. Þetta er skáldsaga um listina, dauðann og þó miklu frekar um lífið, undursamlegan lækningamátt ímyndunaraflsins og Bítlana.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eitruð epli

    Eitruð epli

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Einar ríki - Fagur fiskur í sjó

    Einar ríki – Fagur fiskur í sjó

    Einar ríki

    II. bindi

    Fagur fiskur í sjó

    Þórbergur Þórðarson skráði

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Hin feiga skepna

    Hin feiga skepna

    Girnd og dauðleiki eru helstu viðfangsefni þessarar bókar. David Kepesh, andstæðingur hjónabands og talsmaður frjálsra ásta, er á sjötugsaldri þegar hann fellur fyrir 24 ára stúlku af kúbverskum ættum og allt fer á annan endann í lífi hans. Þetta er kröftugt uppgjör við kynlífsdýrkun Vesturlanda, við hömlur og hömluleysi, samkennd og einstaklingshyggju. Philip Roth er almennt viðurkenndur sem einn fremsti núlifandi rithöfundur Bandaríkjanna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vernon G. Little

    Vernon G. Little

    Vernon G. Little er 15 ára drengur sem búsettur er í bandarískum smábæ og á allt annað en auðvelt með að fóta sig í tilverunni. Hann lumar líka á allskyns mismerkilegum leyndarmálum, eins og kemur á daginn þegar yfirvöld og fjölmiðlar fá áhuga á honum í framhaldi af blóðugum fjöldamorðum í skólanum hans. Fyrr en varir er Vernon flæktur í þéttan lygavef sem torvelt reynist að losna úr.

    D.B.C Pierre hlaut, flestum að óvörum, Bookerverðlaunin fyrir þessa frumraun sína á sviði skáldskapar árið 2003. Síðan þá hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Hún er gegnsýrð af kolsvörtum húmor og nístandi kaldhæðni, en birtir jafnframt nýstárlega sýn á veruleika almennings á Vesturlöndum.

    1.290 kr.
    Setja í körfu