• Einar ríki – Fagurt galaði fuglinn sá

    Einar ríki – Fagurt galaði fuglinn sá

    Einar ríki

    III. bindi

    Fagurt galaði fuglinn sá

    Þórbergur Þórðarson skráði

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • ÞÞ – í forheimskunarlandi

    ÞÞ – í forheimskunarlandi

    Ævisaga Þórbergs Þórðarsonar, skráð af rithöfundinum Pétri Gunnarssyni, hefur vakið verðskuldaða athygli. Fyrra bindi sögunnar, ÞÞ – Í fátæktarlandi, kom út árið 2007 og hlaut þá tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Seinna bindið, ÞÞ – Í forheimskunarlandi, kom út árið 2009 og seldist upp.

    Í bókunum endurskapar Pétur þroskasögu Þórbergs sem rithöfundar og einstaklings. Hann leitar víða fanga, m.a. í sendibréfum, dagbókum og óútgefnu ævisöguhandriti, svo og í útkomnum verkum Þórbergs. Pétur endurskapar andrúmsloft liðinna ára og dregur upp forvitnilega og heillandi mynd af einum merkasta rithöfundi okkar sem koma mun nýjum sem gömlum aðdáendum Þórbergs á

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • ÞÞ – í fátæktarlandi

    ÞÞ – í fátæktarlandi

    Þórbergur Þórðarson er án efa einn fremsti höfundur íslenskra bókmennta, en það vekur furðu hve seint hann „fór í gang“. Hann er orðinn 36 ára þegar Bréf til Láru kemur út og stendur á fimmtugu þegar hans fyrsta eiginlega skáldverk, Íslenskur aðall, lítur dagsins ljós.

    Hvað hafðist hann að fram að því? Hann háði löngum tvísýna glímu við sárustu fátækt, gaf sig allan á vald háleitustu hugsjónum og átti í litríkum ástarævintýrum.

    Í ÞÞ – í fátæktarlandi endurskapar Pétur Gunnarsson þroskasögu Þórbergs og leitar víða fanga, ekki aðeins í útkomnum verkum heldur líka ríkulegu óbirtu efni: sendibréfum, dagbókum og óútgefnu ævisöguhandriti. Hér er dregin upp mynd sem á eftir að koma nýjum sem gömlum aðdáendum Þórbergs á óvart.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Iðnríki okkar daga

    Iðnríki okkar daga

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Stund og staðir

    Stund og staðir

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Yfir heiðan morgun
  • Útlagamorðin

    Útlagamorðin

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Naðran á klöppinni

    Naðran á klöppinni

    NAÐRAN Á KLÖPPINNI gerist á síðari hluta 19. aldar. Sagan fjallar um ekkjuna Teu og hennar fólk sem býr á afskekktri leigujörð og þarf að greiða fátækt sína háu gjaldi. Hér er sagt frá valdníðslu og undirokun, sem kallar annaðhvort á uppgjöf eða hefnd. En einnig er sagt frá tónlistinni sem streymir úr orgelinu, deyfir sársauka og litar gleðistundir.

    Torgny Lindgren rekur hér myrka sögu en hefur frásagnargleðina að leiðarljósi. Sagan er full af hlýju og sérstæðri kímni. Hún hefur verið þýdd á fjölda tungumála.

    Hannes Sigfússon íslenskaði.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Einkavegir

    Einkavegir

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sjónhverfingar

    Sjónhverfingar

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ósýnilega konan

    Ósýnilega konan

    Í myndlistarmanninum og heimshornaflakkaranum Sigurði Guðmundssyni búa þrjár persónur sem sífellt takast á: Kallinn Sigurður Guðmundsson, Konan Sigurður Guðmundsson og Hulstrið Sigurður Guðmundsson. Þessar persónur lifa lífi höfundar í eitt ár, takast á um verk hans og rökræða allt sem fyrir augu ber horfa á líf hans og list augum kynjanna þriggja. Þetta ár er höfundur staddur í Kína og sjálfur horfir hann sínum vestrænu augum á menninguna þar eystra.
    Kyngreining Sigurðar á sjálfum sér og þeirri menningu sem hann er hluti af fæðir af sér óvenjulegar og heimspekilegar myndir af tilvist okkar – myndir sem oft eru spaugilegar og á skjön við viðteknar hugmyndir um veruleikann og tungumálið.

    „ . . . hvernig höfundurinn brýtur mannlega reynslu til mergjar, hvernig hann lýsir nöglinni á stórutá á blindri nuddkonu í Kína – er ekki á allra færi.“ – Kristján Guðmundsson

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sólskinsrútan er sein í kvöld
  • Sálin vaknar

    Sálin vaknar

    Þegar bókin Sálin vaknar kom út í Bandaríkjunum árið 1899 fékk hún mjög blendnar viðtökur enda var efniviður sögunnar eldfimur; staða og reynsla kvenna í hinu formfasta samfélagi nítjándu aldar.

    Söguhetjan, Edna, uppgötvar að tilvistin hefur upp á fleira að bjóða en hefðbundið hjónaband og barnauppeldi. Hún leitar útrásar fyrir tjáningarþörf sína og tilfinningar og hirðir lítt um þær skorður sem henni eru settar sem eiginkonu og móður.

    Nú telst Sálin vaknar til sígildra verka bandarískra bókmennta og hefur verið þýdd á fjölda tungumála.

    Jón Karl Helgason þýddi og ritaði eftirmála.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hnotskurn

    Hnotskurn

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Friðþæging

    Friðþæging

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Undir Yggdrasil

    Undir Yggdrasil

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fótspor á himnum

    Fótspor á himnum

    „Á Spáni er maður sem heitir Franco. Ég hef hugsað mér að skjóta hann. Síðan kem ég aftur og elska þig jafn heitt og áður.“ Þannig kveður Olli Spánarfari Unni fögru áður en hann heldur af stað í borgarastyrjöldina á Spáni ásamt vini sínum, risanum Ragnari.

    Fjölskylda Ragnars er í forgrunni þessarar mögnuðu sögu um líf og örlög Íslendinga sem vaxa úr grasi á fyrstu áratugum aldarinnar. Hér er lýst fjölda minnisstæðra og litríkra persóna; Haraldi tómthúsmanni, afa Ragnars, foreldrum hans, Óla ragara og Guðnýju sem gerist dyggur liðsmaður Hvítasunnu- safnaðarins, stórum systkinahópi og lagsbræðrum Ragnars í kommúnisma, Olla Spánarfara og Grími boxara.

    Þetta er saga stoltra einstaklinga sem verður um leið þjóðarsaga. Einar Már hefur sjaldgæf tök á efni sínu, byggir á heimildum og hugarflugi, sameinar raunsæja þjóðlífslýsingu og ljóðrænar stemningar og kryddar með snjöllum tilsvörum og góðum húmor.

    Fótspor á himnum er fyrsta skáldsaga Einars Más Guðmundssonar eftir Engla alheimsins, sem færði honum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, og hefur síðan farið sigurför um heiminn.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Arnaldur Indriðason deyr
  • Svar við bréfi Helgu

    Svar við bréfi Helgu

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eldarnir

    Eldarnir

    Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir.

    Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og hamingjuríkt líf hennar lætur ekki lengur að stjórn.

    Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála.

    1.290 kr.
    Setja í körfu