-
Dóttir hafsins – kilja
3.490 kr.Þegar hún lokaði augunum birtust myndir. Tærir tónar sögðu henni sögur af furðuveröld þar sem myrkrið réð ríkjum, lengst ofan í undirdjúpunum. Elísa tók eitt skref áfram. Svo annað. Lelena var hvíslað. Elísu krossbrá og hún galopnaði augun. Aftur var hvíslað en í þetta sinn var hún ekki hrædd. Áfram. Án þess að hika hljóp Elísa af stað.
Líf Elísu, sextán ára unglings frá Vestfjörðum, gjörbreytist á einni nóttu þegar hún heyrir tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru, ofan í undirdjúpin og að fjólubláu borginni. Elísa dregst inn í háskalega atburðarrás og kemst að því að hún er hluti af spádómi ævafornrar menningar á hafsbotni.
Er hún verðug þess að bera titilinn dóttir hafsins?
-
Heyrnarlaust lýðveldi
3.790 kr.Heyrnarlaust lýðveldi er nýstárleg og áhrifamikil ljóðabók sem fjallar um atburði í ónefndum bæ á stríðstímum. Þegar innrásarlið drepur heyrnarlausan dreng, verður byssuskotið það síðasta sem bæjarbúar heyra – allir missa heyrnina, en angist, reiði, skelfing og uppgjöf eru látin í ljós á táknmáli. Ljóðin eru tilfinningarík og dansa frjálslega á mörkum frásagnar og leikrits. Frásagnaraðferð skáldsins er bæði sérstæð og hrífandi, enda hefur bókin hlotið einróma lof og verið tilnefnd til verðlauna.
Ilya Kaminsky fæddist í Úkraínu, sem þá var hluti af Sovétríkjunum, en fluttist til Bandaríkjanna ungur að árum og skrifar á ensku. Verðlaunabók hans Dansað í Ódessa kom út í íslenskri þýðingu Sigurðar Pálssonar og Sölva Björns Sigurðssonar árið 2018.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði.
-
Glæpur við fæðingu
3.890 kr.Stórmerkileg saga uppistandarans og stjórnmálaskýrandans Trevor Noah sem ólst upp í skugga aðskilnaðarstefunnar í Suður-Afríku: Sjálf tilvist hans var glæpur, því samband móður hans og föður af ólíkum hörundslit var refsivert á þeim tíma. Trevor segir á heillandi hátt frá æsku sinni og unglingsárum í samfélagi sem enn er í sárum, fyrstu skrefunum í skemmtanabransanum og trúrækinni móður sem opnaði fyrir honum heiminn.
Trevor Noah (f. 1984) hefur vakið mikla athygli fyrir hárbeitta þjóðfélagsrýni í þættinum The Daily Show í Bandaríkjunum sem hann hefur stýrt frá árinu 2015. Hann er vinsæll uppistandari og má nálgast heimildarmyndir um hann á Netflix. Glæpur við fæðingu var valin ein besta bók ársins af helstu fréttamiðlum Bandaríkjanna þegar hún kom út. Kvikmynd er í bígerð.