-
Aksturslag innfæddra
1.990 kr.Í þessari bók birtast sjö smásögur sem allar eru sprottnar úr raunveruleikanum. Við sögu kemur fjölbreyttur hópur fólks sem lesendur kannast hugsanlega við. Sögurnar segja frá stuttum tímabilum eða einstökum viðburðum í lífi sögupersóna, eða lýsa jafnvel heilli ævi.
Hér er greint frá atburðum sem gætu virst hversdagslegir og smávægilegir við fyrstu sýn en ef lesið er á milli línanna endurspegla þeir stærri og flóknari hliðar tilverunnar.
Þórdís Gísladóttir hefur þýtt og skrifað fjölda barna- og unglingabóka, ljóðabækur, sjónvarpshandrit og skáldsögu fyrir fullorðna. Hún hefur getið sér orð fyrir að skrifa leikandi léttan texta sem einkennist af orðfimi og húmor og varpar nýstárlegu ljósi á hvunndaginn og samtímann. Verk hennar höfða til fjölbreytts hóps lesenda á öllum aldri.
Þórdís hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010 fyrir fyrstu ljóðabók sína, Leyndarmál annarra, og hefur síðan hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga fyrir frumsamin og þýdd verk.
-
-
Kalt er annars blóð
1.290 kr.Í Kalt er annars blóð er glæpasagnaformið fléttað glæsilega saman við íslenska sagnahefð og íslensk örlög í nútíð og fortíð eins og Þórunni Jörlu einni er lagið. Í kuldalegri Reykjavíkurborg flögrar krummi um og fylgist með viðburðum sem draga munu dilk á eftir sér; hann sér margt sem mannleg augu sjá ekki – peningar skipta um hendur, kettir eru keyrðir niður, hús brennd og menn skotnir eins og skepnur.
Þegar Ása finnur af tilviljun lík í malarhaugi norðan heiða ber margt fyrir augu sem áður hefur verið hulið – hvað rekur fólk til að ryðja öðrum úr vegi og hvað gerist þegar hömlurnar hverfa ein af annarri?
Kalt er annars blóð, sem sækir efnivið m.a. í Njálu, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2007.
-
-
Þrenna
5.190 kr.Bókin Þrenna samanstendur af bókunum Ár og sprænur; hulda ráðgátan, Ranimosk og Litlu sögurnar í hálfa samhenginu. Í bókunum koma meðal annars fram Penni Gúm, sem fann Penny Lane á You Tube, og Háloftamígur. Þar að auki er að finna prósa í hugleiðingaformi sem hverfast um vangaveltur höfundar um málefni líðandi stundar, texta sem ekki urðu að sjálfstæðum bókum ásamt endurminningum sem dansa á línu raunveruleika og skáldskapar.
Verk Einars Guðmundssonar tengjast framúrstefnuhreyfingum í myndlist fremur en því sem var efst á baugi í íslenskum bókmenntum. Sá tilraunaandi sem ríkir í verkum hans er vandfundinn í verkum annarra skáldsagnahöfunda. Eftir Einar liggja yfir 20 bækur, og eru margar þeirra orðnar efirsóttar meðal safnara. Meðal fyrri bóka Einars eru Harry the Caveman (1970), Lablaða hérgula (1975), Flóttinn til lífsins (1976) og Án titils (1978).
Bókin er gefin út í 300 tölusettum eintökum.
-
-
-
-
Drottningarnar í Garðinum
4.190 kr.Hópur kynlífsverkakvenna er á næturrölti í Sarmiento-garðinum í Córdoba, Argentínu. Þær heyra barnsgrát í nóttinni. Encarna frænka, leiðtogi þeirra, ryður sér leið í gegnum skógarþykknið og finnur barn, sem hún tekur að sér, eins og hún hefur tekið margar útskúfaðar konur að sér, þar á meðal Camilu. Í bleika húsinu hennar Encörnu frænku finnst skjól fyrir daglegum ógnum, sjúkdómum og ofbeldi af hálfu kúnna, lögregluþjóna og ástmanna. Mállaus kona umbreytist í fugl, hauslaus maður flýr stríð og Camila berst fyrir að ráða lífi sínu og kyngervi sjálf. Raunveruleikinn er sveipaður töfrum drungalegs ævintýris. Drottningarnar í garðinum hefur verið þýdd á ótal tungumál og unnið til margra verðlauna. Höfundurinn Camila Sosa Villada er einnig leikkona og baráttukona.
-
-
Veðurfregnir og jarðarfarir
3.990 kr.Veðurfregnir og jarðarfarir er skáldsaga þriggja kynslóða sem gerist á mismunandi stöðum: á Íslandi, í Frakklandi og Póllandi. Veðurfræðingurinn Lena, sem er aðalpersóna ferðast um tíma og rúm í leit að sátt við lífið og fortíðardrauga. Íslenskar veður- og náttúrulýsingar eru aðalhrynjandi sögunnar og í þeim endurspeglast tilfinningar og ástarmál veðurfræðingsins. Hugleiðingar um dauðann og missi slá mikilvægan tón í frásögninni líkt og samskipti milli mæðgna, vinkvenna, systkina.
-
Sakfelling
3.890 kr.Sjö sögur frá Norður-Kóreu sem lýsa lífi fólks í landi einræðis og einangrunar í stjórnartíð Kim Jong-Il.
Eftirlitsmaður í verksmiðju neyðist til að velja á milli þess að sýna gömlum vini eða Flokknum hollustu; kona sveltir sjálfa sig til að eiginmaður hennar, fyrirvinnan, fái nóg að borða til að halda starfskröftum sínum; ljós rennur upp fyrir dyggum Flokksmnni þegar sonur hans afhjúpar raunveruleika þeirra sem leikhús fáránleikans. Einstaklega fallega skrifaðar sögur, samdar af næmni fyrir mannlegri tilveru.
Bandi, sem þýðir eldfluga, er dulnefni norðurkóresks rithöfundar sem starfar á vegum Rithöfundarsambands Norður-Kóreu en á árunum 1989-1995 skrifaði hann í leyni sögur og ljóð þar sem hann gagnrýndi stjórnarfarið í ríkinu. Árið 2013 tókst að smygla sögunum úr landi og birtast sjö þeirra í þessari bók. Rétturinn að henni hefur verið seldur til 20 landa.
Þýðandi Ingunn Ásdísardóttir.
-
Saga af svartri geit
3.990 kr.Dagsgömul, agnarsmá geit kemst óvænt í hendur fátæks, aldraðs bónda sem ásamt konu sinni fórnar öllu til að koma huðnukiðinu á legg. Það reynist erfitt í hörðum heimi þar sem fátækt, kúgun og uppskerubrestur eru veruleiki manna og dýra. Heillandi saga lítillar geitar.
Saga af geit og samfélagi, stétt og kærleika. Einnig saga af því hvernig lítið kraftaverk getur steypt venjulegum manneskjum í glötun. Perumal Murugan (f. 1966) er fyrsti tamílski rithöfundurinn sem gefinn er út á íslensku. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.
-
Skuggavíddin
3.990 kr.Í einræðisríki Pinochets í Chile kemur órólegur karlmaður inn á ritstjórnarskrifstofu dagblaðs á vegum stjórnarandstæðinga í landinu. Hann er öryggissveitarmaður. Ég vil segja frá því sem ég hef gert, segir hann, og blaðakonan kveikir á upptökutæki til að hlýða á vitnisburð sem opnar dyr inn í áður óþekkta vídd.
Nona Fernández (f. 1971) virkjar ímyndunaraflið til að komast á staði sem hvorki finnast í minningum né skjölum. Hún tvinnar saman eigin reynslu og sannsögulega atburði og útkoman er áhrifamikil og grípandi. Ein besta bók sem skrifuð hefur verið um þetta átakanlega tímabil í sögu Chile.
-
Heaven
3.890 kr.Sögumaðurinn er fjórtán ára. Hann hefur lengi mátt þola einelti jafnaldra sinna. Dag einn berst honum óvænt bréf frá bekkjarsystur sinni. Það er upphafið að vináttu byggðri á sameiginlegri reynslu þeirra. En hvers virði er vinátta sem á sér rætur í ótta og sársauka? Og hefur þjáningin merkingu? Magnað verk frá einum áhugaverðasta höfundi Japan.
Mieko Kawakami kom eins og ferskur andblær inn í fremur karllæga bókmenntahefð Japan með sinni fyrstu skáldsögu árið 2008. Síðan þá hefur hún unnið til fjölmargra virtra bókmenntaverðlauna og bækur hennar verið þýddar á yfir 30 tungumál.
-
Tsjernobyl-bænin
3.890 kr.Þann 26. apríl 1986 urðu sprengingar í kjarnakljúfi í Tsjernobyl í Úkraínu sem ollu stærsta kjarnorkuslysi allra tíma. Himinninn logaði og geislunin náði yfir stórt landsvæði. Slysið hafði hörmuleg áhrif á líf hundruði þúsunda mann til frambúðar. Ráðamenn reyndu að þagga það niður. Þetta er vitnisburður þeirra sem eftir lifðu. Tsjernobyl-bænin byggir á hundruðum viðtala hvítrússneska rithöfundarins og blaðamannsins Svetlönu Aleksíevítsj við fólk sem lifði kjarnorkuslysið af. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2015 ,,fyrir margradda skrif, minnisvarða um þjáningar og hugrekki á okkar tímum“, og hafa bækur hennar verið þýddar á 53 tungumál. Tsjernobyl-þættirnir vinsælu eru að hluta til byggðir á þessari bók.
-
Kramp
3.890 kr.Hin sjö ára M fylgir föður sínum D í söluferðir til smábæja í Chile með byggingavörur frá framleiðandanum Kramp á tímum Pinochet-harðstjórnarnarinnar. Saklaust barnið heillast af heimi farandsölumannanna og gerir sér aðeins óljósa grein fyrir þeirri pólitísku spennu sem kraumar undir niðri í samfélaginu.
Chileski rithöfundurinn María Jóse Ferrada (f. 1977) fangar í ljúfsárri frásögn óvenjulegt feðginasamband og hverfulleika lífsins frá sjónarhóli barns í heimi sem hún heldur sig þekkja. Saga sem er í senn nostalgísk, hættuleg og gull af gleði og undrun.
-
-
Tíkin
3.590 kr.Damaris þráir það heitast að verða móðir en þrátt fyrir töfradrykki, smyrsl og helgiathafnir geta þau Rogelio ekki eignast barn. Þegar henni býðst að taka að sér tíkarhvolp grípur hún tækifærið feginshendi en tíkin lætur ekki temja sig frekar en náttúran.
Áhrifamikil skáldsaga eftir kólumbíska rithöfundinn Pilar Quintana (f. 1972) sem gerist í litlu þorpi við kólumbísku Kyrrahafsströndina, þar sem samfélagið endurspeglar óblíð náttúruöflin. Tíkin hlaut hin virtu kólumbísku bókmenntaverðlaun Biblioteca de Narrativa. Útgáfurétturinn hefur verið seldur til 14 tungumálasvæða.
-
Kona í hvarfpunkti
3.590 kr.Firdaus hefur verið dæmd til dauða fyrir morð. Hún segir sögu sína nóttina fyrir aftökuna.
Egypsk, femínísk klassík sem afhjúpar undirokun kvenna í samfélögum Austurlanda nær eftir höfund sem hefur verið á dauðalistum íslamskra öfgahópa. Mergjuð skáldsaga.
Með eftirmála eftir Maríönnu Clöru Lúthersdóttur.
Nawal El Saadawi (f. 1931) er egypskur rithöfundur, læknir og baráttukona fyrir mannréttindum. Hún er einn áhrifamesti feminíski hugsuður arabaheimsins, hefur skrifað um stöðu kvenna í íslömskum samfélögum og gagnrýnt feðraveldið, trúarbrögð og kapítalisma fyrir kerfisbundna kúgunkvenna um allan heim. Kona í hvarfpunkti, sem byggð er á sannri sögu, fékkst upphaflega ekki útgefin í heimalandi höfundar og kom fyrst út í Líbanon árið 1975. Bókin hefur komið út á 22 tungumálum.