• Sérðu það sem ég sé

    Sérðu það sem ég sé

    Sérðu það sem ég sé hefur að geyma tólf listilega samansettar smásögur sem veita ferskum og kitlandi andblæ inn í líf lesandans. Hér sýnir Þórarinn Eldjárn enn á ný að fáir standa honum á sporði í smásagnagerð.

    Sögurnar eru ólíkar að efni og stil. Allar bera þær hins vegar merki einstakrar frásagnargáfu þar sem saman fer hnitmiðuð uppbygging og örugg tök á tungumálinu. Gamansemin er ismeygileg en reynist oft egghvöss þegar betur er að gáð og kippir stundum fótunum undan lesandanum.

    Þórarinn kemur víða við í sögunum enda er honum fátt óviðkomandi. Hér segir af hremmingum íslenskra ungmenna í París, afdrifaríkum feluleik barna á Íslandi, deilum jurtasafnara og fuglaskoðara, magnaðri níðstöng og vandamálum við skráningu örnefna á íslenskum landnámsjörðum, svo fátt eitt sé nefnt.

    Bækur Þórarins Eldjárns hafa um árabil notið mikilla vinsælda. Sérðu það sem ég sé mun án vafa auka hróður hans enn frekar.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Óljós mörk

    Óljós mörk

    CHANTAL og Jean-Marc eru búsett í París. Þau eru komin á fimmtugsaldur, hafa verið í ástríkri sambúð í nokkur ár og telja sig þekkja hvort annað út og inn. Hann hefur fengist við eitt og annað í gegnum tíðina, hún vinnur á auglýsingastofu.

    Dag nokkurn skreppur hún ein í stutta gönguferð og fær þá skyndilega á tilfinninguna að aðdráttarafl hennar fari þverrandi, að karlmenn séu hættir að snúa sér við úti á götu og horfa á eftir henni. Þar með hefst atburðarás sem verður því undarlegri, hraðari og óhugnanlegri sem lengra líður á söguna…

    Skáldsögur Milans Kundera hafa orðið mjög vinsælar víða um heim, enda eru þær í senn skemmtilegar og vekjandi, auk þess sem hann hefur óvenju næmt auga fyrir því hjákátlega í hátterni okkar og samtíma. Í þessari nýju sögu glímir hann á sinn hátt við spurningar sem alla varða, s.s. sérkenni einstaklingsins, hvað greini eina manneskju frá annarri og hvar mörk ímyndunar og raunveruleika liggi.

    Friðrik Rafnsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Einu sinni var í austri

    Einu sinni var í austri

    Uppvaxtarsaga kínverska rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Xialou Guo (f. 1973) sem búsett hefur verið í Bretlandi í rúman áratug. Bók sem kölluð hefur verið Villtir svanir nýrrar kynslóðar.

    Hvernig er að vera listamaður þar sem ritskoðun drepur allan frumleika og það eina sem býðst er að skrifa léleg handrit að sápuóperum; hvernig er að vera kona í landi þar sem stúlkubörnum er ítrekað drekkt við fæðingu og kynferðisleg misnotkun er daglegt brauð; hvernig er hægt að elska þegar manni hefur aldrei verið kennt það.

    Xiaolu Guo heimsótti Ísland haustið 2018 við mikinn fögnuð lesenda. Auk uppvaxtarsögunnar hefur komið út skáldsagan Hnitmiðuð kínversk-ensk orðabók fyrir elskendur eftir sama höfund á íslensku. Mögnuð verk eftir einstakan listamann.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Glæpur við fæðingu

    Glæpur við fæðingu

    Stórmerkileg saga uppistandarans og stjórnmálaskýrandans Trevor Noah sem ólst upp í skugga aðskilnaðarstefunnar í Suður-Afríku: Sjálf tilvist hans var glæpur, því samband móður hans og föður af ólíkum hörundslit var refsivert á þeim tíma. Trevor segir á heillandi hátt frá æsku sinni og unglingsárum í samfélagi sem enn er í sárum, fyrstu skrefunum í skemmtanabransanum og trúrækinni móður sem opnaði fyrir honum heiminn.

    Trevor Noah (f. 1984) hefur vakið mikla athygli fyrir hárbeitta þjóðfélagsrýni í þættinum The Daily Show í Bandaríkjunum sem hann hefur stýrt frá árinu 2015. Hann er vinsæll uppistandari og má nálgast heimildarmyndir um hann á Netflix. Kvikmynd er í bígerð. Glæpur við fæðingu var valin ein besta bók ársins af helstu fréttamiðlum Bandaríkjanna þegar hún kom út. Bók sem sameinar kynslóðir í lestri. Besta þýdda bók ársins 2019 að mati bóksala á Íslandi. Sjöunda bókin í áskriftarröð Angústúru.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fiskarnir hafa enga fætur

    Fiskarnir hafa enga fætur

    Þetta er sviðið: Austfirsk fjöll og Keflavík sem kölluð hefur verið svartasti staður landsins.

    Hér er sögð saga ættar allt frá byrjun tuttugustu aldar og fram til okkar daga. Sagan teygir sig frá Norðfirði til Keflavíkur, hún nær yfir allt landið, yfir fjöllin sem eru fornar rósir færðar guðum og hraunið sem lítur stundum út eins og blótsyrði djöfulsins.

    Þetta er saga fólks sem elskar og þjáist, sem leitar og flýr, saga um sársauka og söknuð, ofbeldi og kvótalaust haf. Saga um Kanaskip, Bítlana og Pink Floyd, um bjarta og dimma daga á Norðfirði þar sem kona breytist í lifandi múmíu.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eitruð epli

    Eitruð epli

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Einar ríki - Fagur fiskur í sjó

    Einar ríki – Fagur fiskur í sjó

    Einar ríki

    II. bindi

    Fagur fiskur í sjó

    Þórbergur Þórðarson skráði

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Hin feiga skepna

    Hin feiga skepna

    Girnd og dauðleiki eru helstu viðfangsefni þessarar bókar. David Kepesh, andstæðingur hjónabands og talsmaður frjálsra ásta, er á sjötugsaldri þegar hann fellur fyrir 24 ára stúlku af kúbverskum ættum og allt fer á annan endann í lífi hans. Þetta er kröftugt uppgjör við kynlífsdýrkun Vesturlanda, við hömlur og hömluleysi, samkennd og einstaklingshyggju. Philip Roth er almennt viðurkenndur sem einn fremsti núlifandi rithöfundur Bandaríkjanna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vernon G. Little

    Vernon G. Little

    Vernon G. Little er 15 ára drengur sem búsettur er í bandarískum smábæ og á allt annað en auðvelt með að fóta sig í tilverunni. Hann lumar líka á allskyns mismerkilegum leyndarmálum, eins og kemur á daginn þegar yfirvöld og fjölmiðlar fá áhuga á honum í framhaldi af blóðugum fjöldamorðum í skólanum hans. Fyrr en varir er Vernon flæktur í þéttan lygavef sem torvelt reynist að losna úr.

    D.B.C Pierre hlaut, flestum að óvörum, Bookerverðlaunin fyrir þessa frumraun sína á sviði skáldskapar árið 2003. Síðan þá hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Hún er gegnsýrð af kolsvörtum húmor og nístandi kaldhæðni, en birtir jafnframt nýstárlega sýn á veruleika almennings á Vesturlöndum.

    1.290 kr.
    Setja í körfu