Skáldaval #3
Bókaklúbbur með Sjón: The Hearing Trumpet
Skáldaval er nýr bókaklúbbur Skáldu þar sem rithöfundur eða skáld velur bók sem verður til umræðu eina kvöldstund. Sjón mun velja næstu bók, en fyrir valinu varð The Hearing Trumpet eftir Leonoru Carrington.
„The Hearing Trumpet eftir enska myndlistarmanninn og rithöfundinn, Leonoru Carrington hefur verið ein af mínum uppáhalds bókum frá því að ég fékk hana að lestrarláni hjá Alfreð Flóka árið 1981. Hún er fyndin, uppreisnargjörn, falleg, súrrealísk og djúpvitur. Og það besta er að hin 92 ára gamla Marian Leatherby er í upphafi með ólíklegustu persónum í bókmenntasögunni til þess að standa fyrir þessu öllu. Sjálf varð Leonora 94 ára og gaf Marian ekkert eftir í sérvisku og trú á ímyndunaraflið fram að hinstu stundu,“ segir Sjón um ástæðu þess að hann valdi bókina.
Til þess að taka þátt í Skáldavali þarftu einfaldlega að kaupa bókina í Skáldu eða hér í vefverslun. Bókaklúbburinn mun síðan hittast fimmtudaginn 8. október kl. 20 og Sjón leiðir umræður.
Athugið að takmarkaður fjöldi er í boði!
Um bókina:
The Hearing Trumpet is the story of 92-year-old Marian Leatherby, who is given the gift of a hearing trumpet only to discover that what her family is saying is that she is to be committed to an institution. But this is an institution where the buildings are shaped like birthday cakes and igloos, where the Winking Abbess and the Queen Bee reign, and where the gateway to the underworld is open. It is also the scene of a mysterious murder.
Occult twin to Alice in Wonderland, The Hearing Trumpet is a classic of fantastic literature that has been translated and celebrated throughout the world.
Fyrri viðburðir
Skáldaval #2
Skáldaval er nýr bókaklúbbur Skáldu þar sem rithöfundur eða skáld velur bók sem verður til umræðu eina kvöldstund. Sigríður Hagalín Björnsdóttir mun velja næstu bók, en fyrir valinu varð Eurotrash eftir svissneska rithöfundinn Christian Kracht.
„Eurotrash er ein þeirra bóka sem ég kaupi aftur og aftur, því ég er alltaf annað hvort búin að gefa hana eða lána einhverjum eintakið mitt. Höfundur fer í ferðalag með aldraðri móður sinni til að gefa burt illa fenginn ættarauð, og ferðasagan er svo fyndin og sorgleg og miskunnarlaus, og segir okkur eitthvað mikilvægt um vestræna menningu og kærleikann. Ég er ekki alveg viss um hvað það er, en kannski er hægt að komast að því með því að ræða hana í sameiningu,“ segir Sigríður um ástæðu þess að hún valdi Eurotrash.
Til þess að taka þátt í Skáldavali þarftu einfaldlega að kaupa bókina í Skáldu eða hér í vefverslun. Bókaklúbburinn mun síðan hittast miðvikudaginn 26. ágúst kl. 20 og Sigríður leiðir umræður.
Athugið að takmarkaður fjöldi er í boði!
Um bókina:
Realising he and she are the worst kind of people, a middle-aged man embarks on a dubious road trip through Switzerland with his eighty-year-old mother, recently discharged from a mental institution. Driving across the country, they attempt to give away her arms-industry wealth, but a fortune of such immensity is hard to squander. Haunted in different ways by the figure of her father, an ardent supporter of Nazism, mother and son can no longer avoid delving into the darkest truths about their past.
Eurotrash is an unsparingly funny, vertiginous mirror-cabinet of familial and historical reckoning, a tragicomic quest punctuated by the tenderness and spite meted out between two people who cannot escape one another.
Skáldaval #1
Fríða Ísberg mun ýta Skáldavali úr vör og hún valdi bókina Big kiss, bye-bye eftir breska rithöfundinn Claire-Louise Bennet. „Ég er enn að lesa þessa bók; ég er bara hálfnuð og mig langar svo að ræða hana við einhvern. Hér er mjög lítið plott, bara innri heimur konu, að rifja upp fyrri sambönd sín við karlmenn,“ segir Fríða um ástæðu þess að hún valdi Big kiss, bye-bye.
Til þess að taka þátt í Skáldavali þarftu einfaldlega að kaupa bókina í Skáldu eða hér í vefverslun og þú færð skilaboð þegar þú getur sótt bókina. Bókaklúbburinn mun síðan hittast kl. 20 fimmtudaginn 9. apríl og Fríða leiðir umræður.
Athugið að takmarkaður fjöldi er í boði!
Um bókina:
The things that hold life in place have been lifted off and put away. Uprooted by circumstance from city to deep countryside, a woman lives in temporary limbo, visited by memories of all she’s left behind. The most insistent are those of Xavier, who has always been certain he knows her better than anyone, better than she knows herself.
Xavier, whom she still loves but no longer desires, a displacement he has been unable to accept. An unexpected letter from an old acquaintance brings back a torrent of others she’s loved or wanted. Each has been a match and a mismatch, a liberation and a threat to her very sense of self.
The ephemera left by their passage – a spilled coffee, an unwanted bouquet, a mind-blowing kiss – make up a cabinet of curiosity she inventories, trying to divine the essence of intimacy. What does it mean to connect with another person? What impels us to touch someone, to be touched by them, to stay in touch? How do we let them go? In yet another tour de force of fiction, Claire-Louise Bennett explores the mystery of how people come into and go out of our lives, leaving us forever in their grasp.
Nánar má lesa um bókina hjá útgefandanum Fitzcarraldo Editions.