• Kleifarvatn

    Kleifarvatn

    Þegar vatnsborð Kleifarvatns lækkar í kjölfar jarðskjálfta finnst beinagrind af manni í sandinum sem vatnið huldi áður. Við hana er bundið fjarskiptatæki með rússneskri áletrun. Lögreglan er kölluð til og rannsókn málsins leiðir þau Erlend, Elínborgu og Sigurð Óla áratugi aftur í tímann, á vit fólks sem dreymdi um réttátara þjóðfélag og heitra tilfinninga sem lutu í lægra haldi fyrir köldu stríði.

    Bækur Arnaldar Indriðasonar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið þaulsætnar á metsölulistum hér heima og erlendis. Arnaldur hlaut tilnefiningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2004 fyrir Kleifarvatn. Bókin fékk bresku Barry-verðlaunin árið 2004 og hún hlaut einnig Le Prix du Polar Européen, bókmenntaverðlaun franska tímaritsins Le Point.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Innflytjandinn

    Innflytjandinn

    Innflytjandi finnst látinn úti í Örfirisey á dimmum og köldum febrúardegi. Um sömu helgi verða landsmenn helteknir af hvarfi ungrar, íslenskrar stúlku sem gufar sporlaust upp í myrkrinu, snjónum og ófærðinni.

    Hildur Haraldsdóttir sem búið hefur í New York um árabil kemur til Íslands með jarðneskar leifar vinar síns til að uppfylla hans hinstu ósk. Hún hefur þýtt Kóraninn á íslensku og leitar lögreglan ráða hjá henni í tengslum við lát innflytjandans. Sjálf á hún undir högg að sækja vestan hafs og sogast nú að auki inn í íslenskt skammdegi.

    Innflytjandinn er mögnuð skáldsaga um mátt og árekstur menningarheima, um vegi ástarinnar og óblíð örlög, um lystisemdir lífsins, vonir manna og vonbrigði.

    Verðlaunahöfundurinn Ólafur Jóhann Ólafsson hlaut einróma lof fyrir sína síðustu bók, Sakramentið, sem fór í efstu sæti metsölulista. Í Innflytjandanum sýnir hann allar sínar bestu hliðar og í stórbrotinni sögu sem kemur á óvart.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hansdætur

    Hansdætur

    Sumt fólk skilur ekkert nema kindur og fisk, líklega skilja Íslendingar ekkert nema kindur og fisk, sérstaklega ekki karlmenn.

    Í vestfirsku sjávarplássi í byrjun tuttugustu aldar gengur hver til sinna verka og nær óhugsandi er að rjúfa mörk stéttar og stöðu. Kona sem á þrjú börn með þremur mönnum á sér ekki viðreisnar von en dóttir hennar Gratíana þráir breytta tíma og betra líf. Hún hafnar þeim kvöðum sem hvíla á kven-fólki, hún vill ganga í buxum, frekar sulla í víni en vatni, og hún vill að Sella fái að syngja og Rannveig að ganga í skóla.

    Hansdætur er áhrifamikil örlagasaga úr íslenskum veruleika. Við sögu koma harðgerðar konur, viðkvæmar sálir, andans menn, óreiðufólk af ýmsu tagi, draumar og þrár, sorgir og sigrar.

    Benný Sif Ísleifsdóttir hefur skrifað fyrir bæði börn og fullorðna en Hansdætur er önnur skáldsaga hennar.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hundabeinagrafa, handprjónuð húfa – og Önd
  • Vorhænan og aðrar sögur

    Vorhænan og aðrar sögur

    Með þessu smásagnasafni kemur Guðbergur Bergsson lesendum enn einu sinni í opna skjöldu með hugmyndaflugi og efnistökum.

    Hér má lesa um ævintýralegan fund persónu við sitt innra líf, uppákomu sem Guðbergur hefur löngum gert óviðjafnanleg skil. Og um vorhænu sem ferðast í lest frá Portúgal til Spánar.

    Guðbergur hefur sett mark sitt á íslenskar bókmenntir í fjóra áratugi og rutt nýjar brautir í íslenskri skáldsagnaritun. Bækur hans hafa komið út víða um heim og hlotið afburða viðtökur. Skáldsagan Svanurinn hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1991 og tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1993.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hnattflug

    Hnattflug

    Systir mín átti upplýstan brott rafmagnaðangrip og það er trúlega
    honum að kenna að ég hugsa mér stundum fimmþúsund vatta
    peru inni í jarðkúlunni þá verður hafið gegnsætt fjallgarðar
    logandi og örnefni vandlega letruð í litaðan svörðinn.

    Sá sem opnar þessa bók piggur boð um heimsreisu. Hvert ljóð er áfangastaður á ferð sem hefst á Íslandi en heldur áfram í austur allan hringinn. Stiklað er á lengdarbaugum frá einu kennileiti til annars og úrinu flýtt eftir atvikum.

    Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd árið 1973 á Akranesi. Hún hefur vakið athygli fyrir frumlega texta, bæði skáldskap og pistla, en hún starfar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Ljóðabókin Blálogaland kom út árið 1999. Sigurbjörg hefur hlotið ýmiss konar viðurkenningar fyrir ljóð sín og sögur. Hnattflug hlaut viðurkenningu dómnefndar í samkeppni um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2000.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Meistarinn og Margaríta

    Meistarinn og Margaríta

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Nakinn

    Nakinn

    Heimir Már Pétursson fæddist á Ísafirði árið 1962. Þetta er fjórða ljóðabók hans en einnig hefur komið út safn ljóða eftir hann í dagblaðsformi (1991). Fyrsta bókin var gefin út í tengslum við Sólrisuhátíð Menntaskólans á Ísafirði árið 1980.

    Það var mikil uppsveifla í útgáfu ljóðabóka á árunum upp úr 1980 og í þeim hópi voru áberandi skáld sem fædd eru á árunum 1960 1968. Heimir Már var í þessum hópi skálda sem gekk um götur og veitingastaði borgarinnar og seldi bækur sínar. Á þessu tímabili var veitingastaðurinn Mensa á horni Lækjargötu og Austurstrætis vinsæll meðal skálda og ljóðaunnenda og stóð fyrir reglulegum upplestrum sem voru fjölsóttir.

    Ljóðin í þessari bók voru samin á árunum 1991 til 2007.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Síðdegi

    Síðdegi

    Fyrsta ljóðabók Vilborgar Dagbjartsdóttur var Laufið á trjánum sem kom út árið 1960 og var hún þá ein af fáum konum sem ortu atómljóð. Vilborg á fjölda ljóða og greina í tímaritum og safnritum á Íslandi og í útlöndum auk þess að vera mikilvirkur þýðandi.

    Síðdegi er níunda ljóðabók Vilborgar og enn eru yrkisefnin áþekk og forðum. Í ljóðunum er þessi galdur sem gerir mannlífið fallegra.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Fyrir kvölddyrum

    Fyrir kvölddyrum

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Ævi mín og sagan sem ekki mátti segja

    Ævi mín og sagan sem ekki mátti segja

    Er Björn Sv. Björnsson kom heim til Íslands árið 1946 eftir að hata setið í fangelsi í Danmörku sakaður um stríðsglæpi beið faðir hans, forseti Íslands, komu hans á Bessastöðum. Hann tók af Birni loforð um að segja sögu sína aldrei. Síðan var ferill hans á styrjaldarárunum þoku hulinn.

    Hver var raunverulega saga forsetasonarins sem varð foringi í hersveitum Hitlers, sat í fangelsi sakaður um stríðsglæpi, kom heim til Íslands en flutti síðan til Suður-Ameríku þangað sem fjölmargir liðsmenn Hitlers leituðu eftir stríð? Af hverju varðist hann aldrei þeim óhróðri sem á hann var borinn?

    Danir kölluðu hann „manninn á bak við áróður Þjóðverja í Danmörku“. Um hann og verk hans spunnust ótal sögusagnir manna á meðal og ekki var minna skrafað um lausn hans úr fangelsi. Voru sögurnar sannar? Um það fengust engin svör, því að Björn hélt loforðið er hann gaf foreldrum sínum um að ræða aldrei þetta tímabil ævi sinnar og hafa ekkert samband við fyrri félaga.

    Eftir heimkomuna hafði Björn á sér svartan stimpil í augum margra samferðarmanna sinna og ef til vill dæmdu þeir hann harðast, sem minnst vissu. Ferill hans var litríkur og ævintýralegur og spor hans hafa víða legið, en jafnan hefur þó hvílt skuggi yfir hluta af ævi hans og mörgum spurning- um hefur verið ósvarað. Eftir meira en fjörutíu ára þögn segir hann sögu sína í fyrsta sinn – söguna sem ekki mátti segja.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Mannsævi

    Mannsævi

    Andreas Egger er fluttur kornabarn í lítið fjallaþorp í Ölpunum rétt eftir aldamótin 1900. Þar á hann illa vist en persónueinkenni þróast með honum; seigla, líkamlegur styrkur, hneigð til einveru. Egger verður maður verka fremur en orða. Ungur maður ræður hann sig í vinnu hjá verktökum sem hyggjast reisa kláf upp á fjallstind, nútíminn heldur innreið sína í þorpið og við það breytist öll tilvera íbúanna.

    Mannsævi eftir Robert Seethaler er afar áhrifamikil bók um mannlega reisn og hæfni til að sigrast á erfiðum aðstæðum. Um leið og saga Eggers er sögð í meitluðum og áreynslulausum stíl, endurspeglar hún á margvíslegan hátt sögu tuttugustu aldarinnar – sögu einnar mannsævi.

    Mannsævi var tilnefnd til Booker-verðlaunanna árið 2016.

    Mannsævi er fimmta bók Roberts Seethaler, sem auk þess að vera rithöfundur starfar sem leikari og býr í Berlín.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Óþægileg ást

    Óþægileg ást

    Delia á von á móður sinni með lestinni til Rómar, en hú skilar sér ekki. Skömmu síðar finnst lík hennar í sjónum við baðstað þar sem fjölskyldan hafði stundum farið í sumarfrí.

    Í tengslum við jarðarförina þarf Delia að takast á hendur ferð til æskustöðvanna og um leið á vit erfiðrar bernsku með tvístraðri fjölskyldu. En ekki síst þarf hún að svara knýjandi spurningu: Hver var eiginlega móðir hennar?

    Í þessari fyrstu skáldsögu Elenu Ferrante fjallar hún um það efni sem einkennt hefur höfundarverk hennar síðan: flókin og margræð sambönd kvenna. Hér er mæðgnasamband í forgrunni, en einnig samskipti kynjanna, dulin og ódulin, og hvernig konur sem storka karlveldinu eiga erfitt uppdráttar.

    Um þetta fjallar Elena Ferrante af þeirri stílgáfu, dýpt og innsæi sem lesendur þekkja af Napólí-fjórleik hennar, og gert hefur hana að einum vinsælasta rithöfundi samtímans. Eftir þessari bók var gerð vinsæl kvikmynd.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Saga af sæháki

    Saga af sæháki

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Úlfur og Ylfa: Sumarfrí

    Úlfur og Ylfa: Sumarfrí

    Úlfur og Ylfa eru bestu vinir. Þau eru komin í sumarfrí og eru á leið í ferðalag með mömmum hans Úlfs. Þau ætla að keyra alla leið á Vestfirði og að sjálfsögðu slæst hundurinn Bósi Ljóshár með í för. Vinanna bíða mörg ævintýri á áfangastað, bæði náttúruundur og nýir vinir og þau taka þátt í spennandi keppni.

    Höfundar bókarinnar eru Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir sem halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn. Bókin er önnur í röðinni um vinina Úlf og Ylfu. Bókaflokknum er ætlað að fagna fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð í skemmtilegum sögum fyrir hressa krakka. Fallegar myndir bókarinnar teiknaði Auður Ýr Elísabetardóttir.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Oddur pennans er nál

    Oddur pennans er nál

    Hvað er ást? Hvað er merking? Hvað er tilgangur? Hver er ég og til hvers er eitthvað yfir höfuð? Engum þessara spurninga og allmörgum til verður ekki svarað í nýjustu bók Ægis Þórs.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Kompa

    Kompa

    Fræðimaður, ung kona, verður fyrir smávægilegri truflun inni á handritasafni við rannsókn á 365 ára gamalli dagbók. Afleiðingarnar eru afdrifaríkar en koma þó ekki í ljós fyrir en sex árum síðar þegar konan áttar sig á að rannsóknartilgáta hennar hefur í öll þessi ár verið byggð á röngum forsendum, og að ritgerðin, heilar 600 síður, er að öllum líkindum þvættingur frá upphafi til enda.

    Í örvæntingu sinni grípur hún til þess eina ráðs sem virðist geta bjargað henni úr skelfilegum aðstæðum, en verknaðurinn eykur bara á hremmingar hennar og áfallið í kjölfar þessa alls verður til þess að gömul veikindi taka sig upp. Buguð og í fræðilegri sjálfheldu frestar hún námslokum og fylgir eiginmanni sínum heim til Íslands.

    Þar burðast hún með leyndarmál sitt og laskaða sjálfsmynd gagnvart fjölskyldu og vinum, og tekst á við afleiðingar veikinda sinna, ofskynjanir, sem virðast þó að lokum ætla að opna henni leið út úr ógöngunum.

    Kompa er skáldsaga um uppruna sögulegra heimilda og tilviljunarkennda varðveislu þeirra.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Stundarfró

    Stundarfró

    Arinbjörn Hvalfjörð er efnilegasta skáld Íslands. En hversu lengi getur hann skákað í því skjólinu? Fimm árum eftir sína fyrstu bók er hann engu nær um næstu skref í tilverunni. Sérhver dagur er leikinn af fingrum fram og þverrandi fimi. En í unglingsstúlku norður á Akureyri sér hann mögulega eitthvað til að byggja á. Framtíð ef til vill. Hér sendir Orri Harðarson frá sér sína fyrstu skáldsögu sem hefur hlotið einróma lof þeirra sem hafa lesið.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Endurfundir

    Endurfundir

    Vorið 1991 snýr Ágúst Bergsson heim á Skagann eftir misheppnaða dvöl í New York. Hann flosnaði upp úr kvikmyndanámi og stóð í erfiðum sambúðarslitum við sænska kærustu sem reyndist ekki öll þar sem hún var séð. Í gamla heimabænum virðist fátt annað bíða en foreldrahús, fiskvinnsla og alltumlykjandi grámi. Ástin er þó aldrei langt undan. En á hún aðeins erindi við aðra?

    Í þessari leiftrandi skemmtilegu skáldsögu Orra Harðarsonar er brugðið húmorísku ljósi á líf ungs manns sem þarf að læra að fóta sig upp á nýtt og finnur þá gamlar tilfinningar vakna í brjósti. Um leið einkennist sagan af djúpri hlýju og hispursleysi, þar sem lipurlegur stíll og ósvikin frásagnargleði skila persónum og sögusviði ljóslifandi til lesenda.

    Fyrsta skáldsaga Orra, Stundarfró, kom út árið 2014 og hlaut verðskuldað lof gagnrýnenda og lesanda. Hún var meðal annars tilnefnd til Menningarverðlauna DV sem skáldverk ársins.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Skáldleg afbrotafræði

    Skáldleg afbrotafræði

    Skáldleg afbrotafræði er makalaus aldarfarssaga sem bregður upp litríkri mynd af samfélagi og tíðaranda í byrjun 19. aldar.

    Nýjar hugmyndir eru á kreiki í veröldinni og upplýsingarstefnan að ryðja sér til rúms, meira að segja í örsmáu sjávarþorpi á hjara veraldar. Prestar og hreppstjórar ráða enn örlögum smælingja en alþýðan er farin að átta sig á óréttlætinu og það styttist í að hún láti verkin tala.

    Hér eru ótal þræðir á lofti; gleði og sorg, kúgun og frelsi, sögulegur fróðleikur í bland við yfirskilvitleg fyrirbæri, magnaðar persónur og misfagrir hugarheimar – og allt þetta fellir höfundurinn saman í þéttan og margslunginn vef eins og honum er lagið.

    Einar Már Guðmundsson hefur sent frá sér tugi skáldverka og hlotið fyrir þau ýmis verðlaun. Bækur hans hafa verið gefnar út víða um lönd en sérstakra vinsælda nýtur hann í Danmörku, þar sem bækur hans koma nú út samtímis útgáfu hér heima.

    1.290 kr.
    Setja í körfu