Í meistaralega myndríkum stíl segir Melville áhrifamikla dæmisögu um sakleysi og fólsku í mannheimum þar sem hreinlyndur sjóliði verður fórnarlamb úthugsaðra vélabragða.

Billy Budd, sjóliði
4.990 kr.Billy Budd hefur stundum verið kölluð besta stutta skáldsaga sem skrifuð hefur verið og er jafnan talin meðal öndvegisverka bandarískra bókmennta. Billy Budd var síðasta stórvirki bandaríska rithöfundarins Hermans Melville sem skrifaði eina frægustu skáldsögu heimsbókmenntanna, Moby Dick. Bókin kom fyrst út að höfundinum látnum árið 1924 og kemur nú í fyrsta sinn fyrir sjónir íslenskra lesenda hundrað árum síðar. Baldur Gunnarsson íslenskaði.
Herman Melville (1819–1891) fæddist í New York. Eftir lát föður síns hætti hann í skóla og vann ýmis störf uns hann fór á sjóinn nítján ára gamall. Á næstu árum lenti hann í mörgum ævintýrum á hvalveiðiskipi í suðurhöfum sem hann lýsti í bókum sínum, svo sem Typee, Omoo, White-Fang, The Confidence-Man og stórvirkinu Moby Dick. Hann sinnti ýmsum störfum meðfram ritstörfunum, lengst af sem tollvörður í New York.
Baldur Gunnarsson er cand.mag. í ensku og enskum bókmenntum frá Háskóla Íslands og MA í bandarískum bókmenntum frá State University of New York at Stony Brook. Baldur kenndi klassískar bókmenntir um árabil við Háskóla Íslands. Eftir hann liggur fjöldi skáldsagna og ljóðasafn.

Með minnið á heilanum
4.490 kr.Hvernig sér lítil sveitastelpa á árunum kringum 1960 veröldina sína ? Í þessari bók leyfir Þórhildur Ólafsdóttir, rithöfundur og þýðandi, barninu sem hún var að fá orðið, segja frá fólki, dýrum, húsum og náttúru í fjarlægum heimi. Barnið horfir á, drekkur í sig myndir, atburði, orð og sögur sem móta það fyrir lífstíð. Skynjunin birtist milliliðalaust og frásagnirnar ná að fanga almennan veruleika sem nær langt út fyrir stað og stund frásagnanna.
Með minnið á heilanum er óvenjuleg minningabók. Minnið er hverfult og tilviljanakennt enda leitast höfundur alls ekki við að finna eitthvað sem kalla mætti sannleika. Með hjálp barnsins er frekar reynt að uppgötva og nálgast, draga litlu stelpuna og nærumhverfi hennar upp úr hjúpi gleymskunnar sem endanlega mun hylja allt.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung.

Kvæðakver
1.290 kr.Þessi nýja útgáfa Kvæðakvers hefur að geyma kvæði Halldórs Laxness frá löngum ferli. Hér er að finna mörg ástsælustu ljóð þjóðarinnar, skáldskap sem nánast hefur ort sig inn í þjóðarvitundina, oft fyrir tilstilli fremstu tónskálda okkar.
Þegar Kvæðakver kom fyrst út, árið 1930, þótti það allnýstárlegt. Þar komu fram djarfar tilraunir til að leysa íslenskt ljóðmál úr viðjum hins hefðbundna forms og tónninn var ögrandi. Í ljóðunum mátti finna háðska ádeilu, stælingar og gamanmál, uppreisn gegn fáfengilegu orðaprjáli og uppblásnum hátíðleik.
Í annarri útgáfu Kvæðakvers 1949 var fjölda ljóða aukið við og nú hefur enn verið bætt í safnið kvæðum úr skáldsögum og leikritum höfundar sem ekki hafa fyrr ratað í kverið.
Í pistli í bókarlok greinir Halldór Laxness frá hvar og hvenær einstök kvæði eru ort og varpar ljósi á baksvið þeirra.









Atvik – á ferð um ævina
4.490 kr.Menningarfrömuðurinn Njörður P. Njarðvík hefur oft verið hvattur til að skrifa ævisögu sína, enda komið víða við á fjölbreyttri og áhugaverðri ævi. En hann hefur ævinlega vikist undan slíkum hvatningum. Það hefur þó hvarflað að honum að gaman gæti verið að skrifa um ýmislegt minnisstætt sem hefur haft áhrif á hann – bæði til góðs og ills. Og nú, þegar hann er kominn hátt á níræðisaldur, hefur hann loks látið verða af því að festa á blað eftirtektarverð atvik – á ferð um ævina í þessari þokkafullu minningabók.
Njörður P. Njarðvík (1936–) er prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Hann hefur sent frá fjölda bóka – ljóð, skáldsögur, barnabækur, ævisögur, kennslubækur og fræðirit – auk þýðinga. Njörður hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf.
