Availability: Á lager

Ósýnilega konan

SKU: SKLD0OSY

1.290 kr.

Í myndlistarmanninum og heimshornaflakkaranum Sigurði Guðmundssyni búa þrjár persónur sem sífellt takast á: Kallinn Sigurður Guðmundsson, Konan Sigurður Guðmundsson og Hulstrið Sigurður Guðmundsson. Þessar persónur lifa lífi höfundar í eitt ár, takast á um verk hans og rökræða allt sem fyrir augu ber horfa á líf hans og list augum kynjanna þriggja. Þetta ár er höfundur staddur í Kína og sjálfur horfir hann sínum vestrænu augum á menninguna þar eystra.
Kyngreining Sigurðar á sjálfum sér og þeirri menningu sem hann er hluti af fæðir af sér óvenjulegar og heimspekilegar myndir af tilvist okkar – myndir sem oft eru spaugilegar og á skjön við viðteknar hugmyndir um veruleikann og tungumálið.

„ . . . hvernig höfundurinn brýtur mannlega reynslu til mergjar, hvernig hann lýsir nöglinni á stórutá á blindri nuddkonu í Kína – er ekki á allra færi.“ – Kristján Guðmundsson

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2000

Tungumál

Kápuhönnun

Blaðsíður

182

Form

Innbundin

Ástand

notuð