Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2006 |
| Tungumál | |
| Blaðsíður | 266 |
| Form | Stór kilja |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
„Þið skáldin eruð ekki í neinum tengslum við raunveruleikann,“ segir leigubílstjóri við Andra Snæ Magnason í upphafi þessarar frumlegu og makalausu bókar. Skáldið svarar kallinu og fer með lesandann í óvenjulegt ferðalag um íslenskan samtíma. Með því að skoða hlutina frá frumlegu og skáldlegu sjónarhorni lýkur Andri Snær upp algerlega nýrri sýn á kunnuglega hluti.
Í Draumalandinu víkur Andri Snær af braut fantasíu, bónusljóða og blárra hnatta og ræðst að kjarna stærstu mála samtímans. Allt myndar þetta hraða og spennandi bók sem hrærir upp í heimsmyndinni.
Draumalandið er áhrifamikil bók um brýnustu málefni okkar tíma, skrifuð af þekkingu og fágætri ástríðu sem hreyfir við hverjum lesanda. Svona bók hefur aldrei verið skrifuð áður á íslensku!
„Allt það sem stjórnvöld vildu að þú fengir ekki vita, færðu að vita í þessari bók“
Bubbi Morthens
„**** Snilld!“
Dr. Gunni, www.this.is/drgunni
„Gargandi snilld … þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA.“
Silja Aðalsteinsdóttir, www.tmm.is
„Sjaldan hef ég lesið bók sem hefur snert mig jafn sterkt. Hún er vel skrifuð, full af fróðleik, en jafnframt magnaðri kímni.“
Þorkell Sigurlaugsson, Viðskiptablaðið
www.edda.is
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2006 |
| Tungumál | |
| Blaðsíður | 266 |
| Form | Stór kilja |
| Ástand | notuð |