Availability: Á lager

Með hægð

Höfundur: Milan Kundera
SKU: SKLD0MEDHAE

1.290 kr.

MEÐ HÆGÐ gerist í fagurri höll einhvers staðar í Frakklandi. Þangað fara höfundurinn og kona hans til að leita sér hvíldar fjarri skarkala heimsins. En ýmsar persónur fara fljótlega á kreik og fylla hug höfundarins. Gangar og garðar lifna af sögum og hugleiðingar kvikna um nautnahyggju Epíkúrosar og Sade markgreifa, andstæðu nautnar og hraða, afdrif einlægni og heiðarleika á öld orðagjálfurs og fjölmiðlaljósa — lífsnautn átjándu aldarinnar andspænis nautnalífi þeirrar tuttugustu.

Meðan höfundurinn vakir tengjast ólíkar sögur: hlálegar uppákomur á alþjóðaþingi skordýrafræðinga kallast á við ástarsögu frá átjándu öld um unaðsnótt sem ungur riddari og fögur aðalskona eiga saman.

Milan Kundera hefur hér enn nálgast hið upprunalega markmið sitt að skrifa léttleikandi skáldsögu um hið þungbæra hlutskipti mannsins.

Friðrik Rafnsson þýddi.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1995

Titill á frummáli

La lenteur

Þýðandi

Kápuhönnun

Blaðsíður

133

Form

Sveigjanleg kápa

Ástand

notuð