-
Sendiboðinn
1.290 kr.Japan hefur um langa hríð verið lokað vegna ónefndra náttúruhamfara af mannavöldum. Eldra fólkið lifir lengi við hestaheilsu og annast um börnin sem eru viðkvæm og gömul fyrir aldur fram. Mumei býr með Yoshiro, fjörgömlum langafa sínum. Drengurinn er veikburða og með hitasótt en hann er klókur og alveg laus við sjálfsvorkunn og bölsýni. Yoshiro einbeitir sér að því að fæða og klæða Mumei, útvalinn sendiboða, þjakaður af samviskubiti vegna gjörða sinnar kynslóðar og afleiðinga þeirra.
Margverðlaunuð skáldsaga eftir japanska rithöfundinn Yoko Tawada, en áður hefur komið út á íslensku bókin Etýður í snjó eftir sama höfund. Þrátt fyrir að Sendiboðinn sé eins konar dómsdagsspá, þá er hér um að ræða hrífandi og gáskafulla skáldsögu.
-
-
-
-
-
-
Gott fólk
990 kr.Sölvi og Sara kynntust við ofbeldisfullar aðstæður. Þau kysstust fyrst á Austurvelli með lungun full af gasi.
Tveimur árum síðar banka tveir vinir Sölva upp á og birta honum bréf. Þar ber Sara hann þungum sökum og krefst þess að hann taki ábyrgð á framferði sínu.
Sölvi, sem áleit sig góðan og gildan þjóðfélagsþegn – hann hefur margoft starfað sem sjálfboðaliði – áttar sig á því að kannski er hann ekki hetjan heldur illmennið í sögunni.
Er hægt að beita ofbeldi án þess að átta sig á því? Er hægt að rétta yfir tilfinningalífinu? Og kannski er mikilvægasta spurningin þessi: Er hann góður?
Valur Grettisson er blaðamaður í Reykjavík. Þetta er hans fyrsta skáldsaga.
-
-
-
-
-
-
-
-
Sagan af Sigur Rós
5.990 kr.Hljómsveitin Sigur Rós sló í gegn á Íslandi er platan Ágætis byrjun kom út í júní árið 1999. Ekki löngu síðar var Sigur Rós orðin heimsfræg hljómsveit og er það enn.
Saga Sigur Rósar hófst hins vegar fimm árum áður en Ágætis byrjun leit dagsins ljós og lengi vel benti fátt til þess að hljómsveitin myndi ná nokkru flugi. Í þessari bók er fjallað um sögu Sigur Rósar frá upphafi og fram til þess tíma er Ágætis byrjun slær rækilega í gegn út um allan heim.
-
Snyrtistofan
3.490 kr.Þegar faraldur herjar á borgina neyðist sögumaður til þess að breyta snyrtistofunni sinni í Biðstofu dauðans. Hann reynir að sinna sjúklingunum ásamt skrautfiskum stofunnar en allt virðist umbreytingum háð og snýst upp í andhverfu sína.
Mario Bellatin er talinn einn áhugaverðasti samtímahöfundur Rómönsku Ameríku
-
Kvæði 90
1.490 kr.Kvæði 90, sjötta ljóðabók Kristjáns Karlssonar, er kvæðaflokkur sem ber heitið Engey í þröngum glugga, og vísar það til þess sviðs sem á er horft.
Kvæðin mynda sterka heild þar sem uppistaðan er útsýni frá Reykjavík og grennd. Efnið er sett fram í litsterkum myndum og út frá þeim hrannast minningar fjölbreyttrar ævi sem einnig stíga fram í myndum og líkingum.
Hvað úr hverju, smám saman eða allt í einu muntu verða til, tvö forvitin augu
sem koma í ljós einhvern góðviðrisdag við sjó
2
marglitir veggsteinar týndra borga
liggja á víð og dreif í bláum sandi
og ambergris, grár klumpur mör búrhvalsins og
3
festi í ilmvötn virði milljóna grotnar
undir bakka en uppi yfir hring-
sólar mávurinn vængjaður óstillandi grun
(Þrjú fyrstu erindin úr kvæðinu Brim.) -
-
-