-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
Eftirmáli regndropanna
1.290 kr.Undur og stórmerki!
Fyrirbrigði sem Íslendingar þekkja vel af lestri og sumir af reynslu.
Hvers vegna að tala um slíkt hér?
Af því að þetta er sönn tveggja orða lýsing á þeirri skáldsögu sem hér birtist.
Einar Már Guðmundsson er engum líkur. Eftirmáli regndropanna er þriðja skáldsaga hans og sögusviðið er lítið hverfi í Reykjavík, en gæti eins verið heimurinn – mannlíf, börn og fullorðnir, miklu fremur á valdi ytri afla en eigin kennda og langana. Og frá öllu er sagt með hinni hljóðlátu kímni sem einkennir svo þennan höfund.
Orðstír Einars Más Guðmundssonar berst nú um útlönd. Báðar fyrri skáldsögur hans hafa verið þýddar á Norðurlandamál og hlotið góðar viðtökur. Hann er e.t.v. íslenskastur okkar ungu höfunda, en þær íslensku aðstæður sem hann lýsir fá ævinlega almenna skírskotun – snerta alla heimsbyggðina.
-
-
Brecht – kvæði og söngvar 1917-56
1.490 kr.Vondir menn skelfast þínar klær.
Góðir menn gleðjast við þinn þokka.
Svipað
vildi ég heyra
sagt um ljóð mín.Bertolt Brecht er eitt af mestu ljóðskáldum þessarar aldar. Hér á landi er hann þó þekktari af leikritum sínum en ljóðum, en í þessari bók gefst íslenskum bókmenntaunnendum í fyrsta skipti tækifæri til að kynnast stóru úrvali ljóða hans í búningi sextán íslenskra þýðenda. Einungis um þriðjungur þýðinganna hefur áður birst á prenti. Útgáfan er liður í þeirri viðleitni Forlagsins að kynna íslenskum lesendum fremstu ljóðskáld heimsbókmenntanna á okkar öld.
Þorsteinn Þorsteinsson annast útgáfuna og þýðir mikinn hluta ljóðanna í bókinni. Auk þess ritar hann ítarlegan inngang um ljóðskáldið Bertolt Brecht. Af öðrum þýðendum má nefna skáldin Halldór Laxness, Sigfús Daðason, Þorgeir Þorgeirsson, Þorstein frá Hamri og Þórarin Eldjárn. Úrvalið hefur að geyma á annað hundrað ljóða og þar á meðal er safn söngva úr leikritum Brechts.
„Öll mikil kvæði hafa heimildargildi,“ sagði Bertolt Brecht eitt sinn. Ljóð hans eru eftirminnilegri vitnisburður um nútímann en flest annað í ljóðagerð tuttugustu aldar. Þau eru öðrum þræði átakanleg saga styrjalda, útlegðar og stéttabaráttu. Um leið vitna þau um djarfmannlega leit gáfaðs listamanns og þrotlausa baráttu fyrir mannúðlegri og betri heimi.
-
-
Góðra vina fundur: Ljóðaþýðingar Kristins Björnssonar
2.990 kr.Fjársjóður þessi fannst fyrir hreina tilviljun. Jón Kristinsson, arkitekt, rakst á ljóðaþýðingar föður síns, Kristins Björnssonar, yfirlæknis á Hvítabandinu í bókasafni hins látna.Hér birtast vandaðar þýðingar á ljóðum eftir tuttugu og tvö evrópsk skáld.Það er mikil sköpunargleði og hugmyndaauðgi í orðavali þýðandans.
Að beiðni Jóns Kristinssonar völdu María S. Gunnarsdóttir og Gérard Lemarquis þetta úrval ljóðaþýðinga til birtingar. Þá sömdu þau einnig örstutta texta um skáldin.Titill þýddra ljóða er birtur á frummálinu þannig að allir, sem hafa áhuga, eiga að geta fundið frumtexta ljóðanna.