• Uppfærslur

    Uppfærslur

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Skóhljóð
  • Í Babýlon við Eyrarsund

    Í Babýlon við Eyrarsund

    Í félagsskap íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn 1893-1970.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Við Þórbergur

    Við Þórbergur

    Margrét Jónsdóttir ekkja Þórbergs segir frá

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Heimsmynd á hverfanda hveli II

    Heimsmynd á hverfanda hveli II

    Saga vísinda frá Brúnó til Newtons+


    Hvaða mynd getum við gert okkur af heiminum út frá því sem sést með berum augum? Hvernig þróaðist stjarnfræðin á bökkum Nílar? Hvernig gat atómhugmyndin orðið til með Forngrikkjum? Var bara myrkur á miðöldum? Hvernig litu kirkjufeðurnir á heiðna þekkingu? Hvað lögðu Arabar til mála? Í hverju fólst bylting Kóperníkusar? Þessar spurningar og margar fleiri ræðir Þorsteinn Vilhjálmsson í Heimsmynd á hverfanda hveli. Í þessu fyrra bindi verksins er rakin saga vísinda, með hliðsjón af þeirri mynd af heiminum sem þau gefa hverju sinni, frá öndverðu til Kóperníkusar. Frásögn Þorsteins er fróðleg og aðgengileg og bókin öll prýdd fjölda mynda og skýringarteikninga. Hún er skemmtileg aflestrar, án þess að slakað sé á fræðilegum kröfum, um leið og hún bregður birtu sögunnar á okkar eigin vísindaskilning og heimssýn.

    Þorsteinn Vilhjálmsson (f. 1940) er dósent í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur numið og starfað við háskóla í Danmörku og Bandaríkjunum og kennt stjörnufræði og vísindasögu auk eðlisfræðinnar, en þær greinar fléttast saman í þessari bók.

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Heimsmynd á hverfanda hveli I

    Heimsmynd á hverfanda hveli I

    Heimsmynd vísinda frá öndverðu til Kóperníkusar


    Hvaða mynd getum við gert okkur af heiminum út frá því sem sést með berum augum? Hvernig þróaðist stjarnfræðin á bökkum Nílar? Hvernig gat atómhugmyndin orðið til með Forngrikkjum? Var bara myrkur á miðöldum? Hvernig litu kirkjufeðurnir á heiðna þekkingu? Hvað lögðu Arabar til mála? Í hverju fólst bylting Kóperníkusar? Þessar spurningar og margar fleiri ræðir Þorsteinn Vilhjálmsson í Heimsmynd á hverfanda hveli. Í þessu fyrra bindi verksins er rakin saga vísinda, með hliðsjón af þeirri mynd af heiminum sem þau gefa hverju sinni, frá öndverðu til Kóperníkusar. Frásögn Þorsteins er fróðleg og aðgengileg og bókin öll prýdd fjölda mynda og skýringarteikninga. Hún er skemmtileg aflestrar, án þess að slakað sé á fræðilegum kröfum, um leið og hún bregður birtu sögunnar á okkar eigin vísindaskilning og heimssýn.

    Þorsteinn Vilhjálmsson (f. 1940) er dósent í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur numið og starfað við háskóla í Danmörku og Bandaríkjunum og kennt stjörnufræði og vísindasögu auk eðlisfræðinnar, en þær greinar fléttast saman í þessari bók.

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þetta breytir öllu: Kapítalisminn gegn loftslaginu
  • Stúlkan frá Púerto Ríkó
  • Aldrei nema vinnukona

    Aldrei nema vinnukona

    Aldrei nema vinnukona er sjálfstætt framhald bókarinnar Aldrei nema kona sem kom út 2020.

    Höfundurinn, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, hefur þýtt bækur og sjónvarpsefni auk þess að gefa út söguna Aldrei nema kona. Sú bók hefur notið mikilla vinsælda, einkum fyrir glögga mynd af kjörum kvenna á 18. og 19. öld.

    Eins og í fyrri bókinni eru öll nöfn, tímasetningar og stærri viðburðir sannleikanum samkvæmir og stuðst við bréf og opinber skjalagögn auk ýmissa rita og vefsíðna sem fjalla um þennan tíma.

    Í þessari bók fer fram tvennum sögum, af ferðinni frá Íslandi til Ameríku og minningarbrotum Þuríðar Guðmundsdóttur úr vistum í Skagafirði og Húnavatnssýslum.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ormar

    Ormar

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Tæmdur bikar

    Tæmdur bikar

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Meðan húsið svaf

    Meðan húsið svaf

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sara og Dagný og ég

    Sara og Dagný og ég

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þjóðin og valdið
  • Fimm ljóð

    Fimm ljóð

    Engin sjoppa er betri

    en pylsan sem hún selur.

    Segir hún.

    Og í þessum sjoppum

    er alls staðar seld

    sama pylsan.

    Alltaf með engu, svarar hann,

    og alltaf með öllu.

    Eiríkur Örn Norðdahl (f. 1978) er ötull og framsækinn höfundur, búsettur á Ísafirði, og einn af upphafsmönnum skáldahópsins Nýhil. Auk ljóða hefur hann sent frá sér leikrit, ritgerðir, þýðingar og níu skáldsögur. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Náttúrulögmálin og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Illsku en sú bók var líka tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

    Fimm ljóð er áttunda ljóðabók Eiríks Arnar en átta ár eru liðin frá því að sú síðasta, Óratorrek, kom út.

    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Úr hvalnum / Whale of a Time
  • Eignatal

    Eignatal

    Francesca Cricelli er brasilískt skáld, þýðandi og fræðimaður. Hún hefur sent frá sér fjórar ljóðabækur og hér birtist sú nýjasta frá 2024. Um árabil hefur Francesca verið búsett á Íslandi og ljóð hennar bera þess ótvíræð merki. Þau eru fjölbreytt og forvitnileg, einlæg og margslungin í senn.

    Pedro Gunnlaugur Garcia íslenskaði.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Ástin á tímum kólerunnar

    Ástin á tímum kólerunnar

    Ný skáldsaga eftir kólumbíska Nóbelsverðlaunahafann Gabriel García Marquez, skáldsaga þeirrar gerðar sem lesandinn getur sökkt sér ofan í, og látið berast með straumi frásagnarinnar um leið og honum opnast nýir og hrífandi heimar.

    Sagan gerist í litskrúðugri hafnarborg við Karíbahaf undir lok síðustu aldar og á fyrstu áratugum þessarar. Hún er einstæð ástarsaga um Florentino Aríza, mann sem bíður elskunnar sinnar í hálfa öld, svo gagntekinn verður hann á unga aldri af hinni ómótstæðilegu Fermínu Daza. Og meðan lesandinn bíður með honum, sífellt spenntari og vondaufari í senn, skemmtir Marquez honum með ótal frásögnum – af skákmanninum og útlaganum Jeremíah de Saint-Amour og kynblendingsstúlkunni, af Júvenal Úrbíno lækni og páfagauknum hans, af Kínverjanum sem vann bókmenntaverðlaun Gullorkideunnar, af baráttunni við kóleruna og mörgu fleiru – uns niðurstaða fæst í skipsferð með Karabíska fljótasiglingafélaginu eftir hinu mikla Magdalenufljóti.
    um
    Ástin á tímum kólerunnar kom út á spænsku á síðasta ári og hlaut afbragðsviðtökur. Guðbergur Bergsson hefur þýtt verkið.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Óbærilegur léttleiki tilverunnar

    Óbærilegur léttleiki tilverunnar

    Hvað gerir maður þegar fallega þjónustustúlkan á hótelinu úti á landi stendur allt í einu á tröppunum hjá honum í borginni með hafurtask sitt og er bara komin…? Tómas er góður læknir og ennþá betri kvennamaður og ákveður að hleypa hinni ástföngnu Teresu inn í líf sitt. En framhaldið er ekki á hans valdi þau eru leiksoppar sögunnar, fórnarlömb ytri afla eins og heimaland þeirra, Tékkóslóvakía. Örlög þess í greipum grannans í austri fléttast óviðráðanlega saman við örlög persóna bókarinnar. Samt er þetta engin harmsaga: Óbærilegur léttleiki tilverunnar er full af óvæntri gamansemi og lýsir samhengi stjórnmála, kynlífs og dauða með grátbroslegum hætti. Léttleiki frásagnarinnar og frelsi draumsins verður athvarf mannshugans andspænis óbærilegum lögmálum sögunnar.

    Milan Kundera er fæddur í Prag árið 1929. Hann hefur fengist við tónlist og kvikmyndir auk bókmennta, og hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldverk sín. Árið 1975 fluttist hann til Frakklands, þar sem hann hefur búið síðan. Óbærilegur léttleiki tilverunnar kom fyrst út 1984 og hefur síðan verið þýdd á fjölmörg tungumál.

    Friðrik Rafnsson íslenskaði.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Rigning í nóvember

    Rigning í nóvember

    Þannig horfir þetta við mér nú þegar ég lít um öxl og man þetta kannski ekki alveg í réttri röð. Allavega, þá stöndum við þétt saman fyrir miðri myndinni, ég held um axlirnar á honum og hann heldur líka einhversstaðar í mig – eðli málsins samkvæmt frekar neðarlega ég er með dökkbrúnan lokk niður á mjög fölt enni, hann brosir breitt og heldur á einhverju í lokuðum lófanum sem hann réttir fram.

    Á þeim orðum hefst verðlaunaskáldsaga Auðar Ólafsdóttur. Ung kona stendur á tímamótum. Hún stígur upp úr volgri hjónasæng og heldur í ævintýralegt ferðalag um myrkt og blautt landið. Með í för er heyrnarlaust barn sem henni hefur verið falið að gæta. Þar með hefst leit að týndum þræði og stefnu-
    mót við heim handan orða. Heitir líkamar, matur, nærgöngul samskipti og leyndarmál úr fortíðinni mæta söguhetjunni í kaldri nóvemberrigningunni.

    Rigning í nóvember hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2004.

    1.990 kr.
    Setja í körfu