Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1991 |
| Þýðandi | |
| Tungumál | |
| Titill á frummáli | An artist of the Floating World |
| Kápuhönnun | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.990 kr.
Sögusvið þessarar bókar er Japan að nýlokinni seinni heimsstyrjöldinni. Japanskar borgir eru rústir einar og uppbygging hafin. Sögumaður bókarinnar, Masuji Ono, lítur til baka. Fyrir stríð var hann vinsæll og virtur listmálari sem trúði því að listin væri tæki til að bæta og fegra lífið og snúa Japan til menningarlegrar endurreisnar. Nú er niðurlæging heimsstyrjaldarinnar að baki og hafið nýtt skeið með nýjum gildum.
Í heimi hvikuls ljóss er framúrskarandi skáldsaga, skrifuð af óvenjulegri snilld um listina, lífið og breyskleika mannanna.
Kazuo Ishiguro fæddist í japönsku borginni Nagasaki árið 1954 en fluttist til Englands sex ára að aldri. Þrátt fyrir ungan aldur er hann meðal dáðustu rithöfunda Englands. Í heimi hvikuls ljóss hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og fékk ein virtustu bókmenntaverðlaun Breta, Whitbreadverðlaunin, árið 1986. Áður hefur komið út á íslensku eftir Kazuo Ishiguro skáldsagan Dreggjar dagsins.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1991 |
| Þýðandi | |
| Tungumál | |
| Titill á frummáli | An artist of the Floating World |
| Kápuhönnun | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |