• Náttvíg

    Náttvíg

    Ástin, dauðinn, hafið: Thor Vilhjálmsson fléttar þessa þræði saman í áhrifamikla sögu úr undirheimum Reykjavíkur, sem lögð er í munn leigubílstjóra. Sagan gerist að mestu á tveimur nóttum. Þá fyrri sýnast viðburðir allir sakleysislegri, en þó geymir nóttin víg; seinni nóttina ryðjast þrír rustar inn í bíl sögumanns og neyða hann í leiðangur – þeir sækja sér skotvopn og fremja svo óhugnanlegt innbrot. Þessi skelfilega för vekur með sögumanni minningar um fortíð hans á sjónum, um ofbeldi, dauða og varnarleysi lífsins. En hann er ekki laus: lögreglan þarf á liðveislu hans að halda við að leita illvirkjana uppi, og sú ferð reynist ekki síður viðburðarík.

    Inn í þessa meginsögu fellir Thor margar aðrar úr næturlífi Reykjavíkurborgar, af fortíð persóna en líka af öðru fólki, sumar erótískar, aðrar háðskar, en allar bornar uppi af einstakri frásagnargáfu hans og stílgaldri.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin til að elska mig.

    Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin til að elska mig.

    Hér missir kona rödd og fær hana aftur. Mögnuð ljóðabók sem hefur verið ófáanleg lengi.

    Elísabet Jökulsdóttir er alvöru skáld. Hún horfir fast í augun á lesandanum og orðar sterkar tilfinningar; ást, heift, gleði og sorg, af oddhvassri blíðu og lífsþorsta, sýnir náttúru landsins á síkvikan hátt og lítur aldrei undan.

    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Babúska

    Babúska

    Unglingsstúlka verður fyrir bíl fyrir framan Þjóðleikhúsið og lætur lífið. Eina vitnið að þessum atburði er Svetlana, rússneskur bókmenntafræðingur sem skúrar gólfin í Arnarhvoli. Hún hjólar burt grunlaus um þær skelfingar sem af þessu hljótast. Norður í Urriðavík stendur öll sveitin á öndinni vegna dularfullra morða og reimleika. Birta var fjórtán ára niðursetningur sem hengdi sig úti í fjósi fyrir hundrað árum. Hún gengur nú aftur og er kennt um voðaverkin. Hvernig tengjast þessi mál?

    Hallveig Thorlacius leysir gátuna í grípandi og spennandi frásögn sem er ekki laus við gráglettni og þjóðfélagsgagnrýni.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Reisubókarkorn

    Reisubókarkorn

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Mr. Awkward Show Present: Mr. Poser

    Mr. Awkward Show Present: Mr. Poser

    Anton Lyngdal sem gengur undir listamannanafninu Mr. Awkward show gefur út ljósmyndabók um Mr. Poser.

    Mr. Poser er tískukóngur og sérlegur áhugamaður um vegglistasenuna á Íslandi. Hann á sér uppáhalds vegglistamann sem er einn sá stærsti og afkastamesti í senunni hér á landi, þ.e. Opes_vs_Vato. Í bókinni ferðast Mr. Poser um Höfuðborgarsvæðið og stillir sér upp í sínum bestu klæðum við vegglistaverk eftir Opes_vs_Vato.

    Mr. Poser er einn af karakterum Antons sem vaknar til lífsins fyrir framan myndavélina, enda líður Mr. Poser best í sviðsljósinu og er handviss um að hann ætti heima á tískusýningunum í París.

    7.490 kr.
    Setja í körfu
  • Áttaskil - Ljóð og lausavísur

    Áttaskil – Ljóð og lausavísur

    Hér birtast ljóð og lausavísur úr fórum skáldsins og kvæðakonunnar góðkunnu, en þar eru náttúruljóð í fyrirrúmi þótt ýmislegt annað komi við sögu. Í eftirmála segir Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku m.a.: Þegar ljóð hennar eru lesin er eins og landið Ísland, með öllum sínum dyntum, veðurfarssveiflum og skapbrigðum hafi valið hana til að túlka sjónarmið sín.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Kína frá fyrri öld - China Before

    Kína frá fyrri öld – China Before

    Unnur Guðjónsdóttir rak um árabil ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í ferðum til Kína. Hún tók snemma ástfóstri við þetta stóra og mikla land, með „teljandi“ íbúum, og árunum 1983 og 1992 tók hún þar mikið magn mynda, sem finna má í þessari einstöku bók, sem sýnir okkur Kína frá síðustu öld, en margt hefur nú breyst þar og því nauðsynlegt að varðveita gamla tímann eins og kostur er.

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Eldhús

    Eldhús

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Mynd örlaganna

    Mynd örlaganna

    Isabel Allende hefur nú skrifað sjálfstætt framhald hinnar geysivinsælu sögu, Dóttir gæfunnar, og myndar þá þessi bók miðsöguna í þríleik sem endar á Húsi andanna, fyrstu bók Allende. Sú sem hér segir frá er Aurora del Valle, barnabarn Elísu Sommers og hins kínverska læknis Taos Chi’en. Sagan gerist bæði í San Francisco og Chile og við sögu koma meðal annarra undurfögur en ógæfusöm móðir Auroru, gerspilltur og lífsleiður faðir hennar, stórbrotin föðuramma og í fyllingu tímans eiginmaður sem býr yfir leyndarmáli og er þá fátt eitt talið af litríkum persónum sem fylla hér blaðsíðurnar eins og í fyrri bókum höfundar. Hér er sögð margþætt saga af stórbrotnum örlögum, ósviknum ástríðum og spaugilegum atvikum með samblandi af heitri samúð og stríðnisbliki í auga. Kolbrún Sveinsdóttir þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Guðsgjafaþula

    Guðsgjafaþula

    Guðsgjafaþula er rituð í endurminningastíl með tilstyrk „sögumanns“, greinargerð um liðið tímabil. Þessi sögumaður er rithöfundur, en verzlar líka með fugla. Hann kemur fyrst við í frásögn sinni árið 1920 í Kaupmannahöfn, þarnæst 1938 í norðlenzk-vestfirzku síldarplássi, Djúpvík. Og loks í London eftir síðara stríð. Þetta er hið mikla „tímabil norðurlandssíldarinnar“. Aðalsöguhetjan, Bersi Hjálmarsson, Íslandsbersi öðru nafni, er síldarspekúlant af þeirri tegund, sem uppi var í þann tíð. Reyndar er þessi síldarkaupmaður varla neinnar tegundar, hann er náttúrufyrirbæri og sögulegt undur. Hann er sömuleiðis einhver skemmtilegasta persóna, sem komið hefur fyrir í sögum Halldórs Laxness.

    Síldin er alls staðar í baksýn, dularfull, óútreiknanleg, einnig þegar hún er komin á land. Henni fylgir rökleysi í lífi manna og athöfnum. Guðsgjafaþula er mikill aldarspegill. Siöalögmál, trú, pólitík, einkum verklýöspólitík þessa tíma, hættir manna, hugmyndir og búnaður, allt birtist í óvæntu og stundum miskunnarlausu ljósi. Samt er frásögn sögumanns blandin mikilli mildi. Hann er gestur í heimi athafnanna. Og það er Bersi Hjálmarsson reyndar líka. Hann er a.m.k. af tveimur heimum. En um það fjallar sagan.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • KRANT - 1. tölublað

    KRANT – 1. tölublað

    Krant.is er einföld og aðgengileg bloggsíða sem allir geta tekið þátt í. Á síðunni verða engar auglýsingar, engir óþarfa flipar, ekkert kommenntakerfi og engir persónulegir aðgangar, aðeins sköpunargleði. Fólk er beðið um að senda færslur á tölvupóstnetfangið okkar en færslurnar mega vera hvað sem er: skoðanapistlar, ljósmyndir, skapandi skrif, hugleiðingar, skemmtilegar staðreyndir, spurningaþrautir, menningargagnrýni eða hvað sem höfundum dettur í hug. Færslurnar geta verið eins langar og stuttar og höfundur vill, þær mega vera nafnlausar, undir dulnefni eða undir eiginnafni. Eina ritskoðun af okkar hálfu er ef um hatursorðræðu sé að ræða.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Seiglazine

    Seiglazine

    Seiglazine er árlegt tímarit gefið út í tengslum við tónlistarhátíðina Seiglu, sem fer fram í Hörpu aðra helgina í ágúst á hverju ári. Þetta er fyrsta tölublað ritsins en það kemur út í ágúst á hverju ári.

    Í ritinu má finna aðsendar greinar, smásögur, ljóð, myndir og teikningar, hugleiðingar, slúður, verkalista og ýmislegt fleira sem barst ritinu í opnu kalli fyrr á árinu, og auk þess er þar að finna hátíðardagskrá Seiglu og upplýsingar um viðburði og flytjendur hátíðarinnar.

    Höfundar efnis eru Ásta Kristín Pjetursdóttir, Edda Oskars, Erna Vala Arnardóttir, Guja Sandholt, Hlín Pétursdóttir Behrens, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Lee Marable, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, Zygmund de Somogyi.

    1.800 kr.
    Setja í körfu
  • Vaxtarræktarkonan einmana

    Vaxtarræktarkonan einmana

    Frumlegar smásögur úr japönskum samtíma sem fjalla um tengsl og samskipti á óvæntan hátt. Sögupersónurnar takast á við hið gróteska, framandi og ævintýralega í hversdeginum og frelsast úr viðjum vanans.

    Yukiko Motoya (f. 1979) er ein ferskasta rödd japanskra samtímabókmennta. Hún skrifar skáldverk og leikrit og stýrir eigin leikfélagi, auk þess sem gerðar hafa verið kvikmyndir eftir verkum hennar. Motoya hefur unnið til virtra bókmennta- og leiklistarverðlauna í heimalandi sínu.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Flóra

    Flóra

    Flóra geymir myndir af flestöllum tegundum íslenskra blómplantna og byrkninga, alls um 460. Hér er megináherslan á að sýna plönturnar sjálfar, fegurð þeirra og sérkenni, fremur en vistfræði, útbreiðslu og flokkunarfræði – því hlutverki gegna fjölmörg önnur verk. Langflestar myndanna eru gerðar eftir lifandi eintökum en annars byggt á bestu heimildum sem völ er á til að gefa sem sannferðugasta mynd af hverri tegund auk þess sem ýmis einkenni eru dregin fram.

    Myndir listamannsins Jóns Baldurs Hlíðberg af íslenskri náttúru, dýrum og foldarskarti, eru löngu kunnar hér á landi auk þess að hafa birst víða erlendis og hlotið þar margháttaða viðurkenningu.

    Fátt jafnast á við að njóta skrúðs og fjölbreytileika blómanna í náttúrunni sjálfri en þegar því verður ekki við komið er gott að geta notið þeirra í myndasafni eins og því sem hér birtist.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Jarðtengd norðurljós

    Jarðtengd norðurljós

    Jarðtengd norðurljós inniheldur áður óbirt ljóð af ýmsu tagi, óbundin, háttbundin og yrkisefnin fjölbreytileg.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Eldri konur

    Eldri konur

    Ég hef alltaf verið rótlaus og vannærð. Þegar ég kynntist áfengi fannst mér eins og ég væri gróðursett í sólríkan lund. Tilveran fékk á sig fagurgulan blæ eins og horft væri gegnum litað gler. Allt varð bærilegra. Fljótlega fór ég þó út í harðara efni.

    Efnið mitt gerir mig heila, fyllir mig krafti, lífi, fær mig til að engjast um af fráhvörfum og þráhyggju, lemja, slá, fær mig umsvifalaust til að steypa mér í glötun.

    Efnið mitt er eldri konur.

    Ung kona gefur rapport af þráhyggju sinni fyrir eldri konum og rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsára gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana.

    Eldri konur er röntgenmynd af ástandi. Við kynnumst konunni með ólíkum brotum af sögu hennar, uppvexti í flóknum heimilisaðstæðum, mismunandi vinnustöðum, vináttu, ástum, sigrum og ósigrum.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Himintungl yfir heimsins ystu brún (kilja)

    Himintungl yfir heimsins ystu brún (kilja)

    Hvort er mikilvægara, að segja sannleikann eða vernda þá sem maður elskar? Árið er 1615, og veröldin er gengin úr lagi, því jörðin er ekki lengur miðdepill alheimsins. Presturinn Pétur á Meyjarhóli skrifar bréf – eða skýrslu, jafnvel ákæruskjal – til að henda reiður á atburðum sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi og kippt stoðum undan tilveru hans og ástvina hans.

    Himintungl yfir heimsins ystu brún er saga sem talar til samtímans aftan úr öldum, um ástina, mennskuna og ábyrgðina sem við berum hvert á öðru. Hún dregur upp ljóslifandi mynd af opinni, forvitinni og ástríðufullri öld, þar sem ný vísindi takast á við trúna, og penninn er beittari en sverðið.

    Jón Kalman Stefánsson er fæddur árið 1963. Himintungl yfir heimsins ystu brún er hans fimmtánda skáldsaga. Fjarvera þín er myrkur (2020) hlaut virt frönsk verðlaun LePoint og France Inter sem besta þýdda skáldsagan vorið 2022. Jón Kalman hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin.

    Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans

    Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans

    Þetta er saga af nokkrum framsæknum nútíma Íslendingum sem lenda í ýmsum ævintýrum en bjargast úr hverjum háska með þjóðlegu hugviti og hreysti.

    Langt er síðan Guðbergur Bergsson skipaði sér í röð allra fremstu rithöfunda þjóðarinnar, og verk hans hafa notið mikillar hylli. Þessi bók er nýr sproti á þeim meiði. Persónurnar hafa ekki birst áður í bókum Guðbergs og stíllinn er nýr. Spurning er hvort skáldgáfa hans nýtur sín ekki einmitt best í þeim ærsla- og fjarstæðustíl sem hér er að finna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Öll í hóp á einum sóp

    Öll í hóp á einum sóp

    Kötturinn malaði, kerlingin söng,
    á kústi í rokinu ferðin var löng.

    Norn og köttur fljúga saman á töfrasóp um loftin blá – og þar er nóg pláss fyrir vinalegan hund, frosk og fugl sem vilja vera með. En þegar glorhungraður dreki birtist skyndilega verða nornin og vinir hennar að grípa til sinna ráða.

    Öll í hóp á einum sóp er þriðja bók metsöluhöfundanna Juliu Donaldson og Axels Scheffler sem kemur út á íslensku en bæði Greppikló og Greppibarnið hafa átt miklum vinsældum að fagna meðal íslenskra barna. Sigríður Ásta Árnadóttir þýddi.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Greppibarnið

    Greppibarnið

    „Engin Greppikló má,“ sagði Greppikló, „gera sér ferð inn í Dimmaskóg . . . “

    Greppiklóin er ekki búin að gleyma músinni ógurlegu sem gabbaði hana eitt sinn og því harðbannar hún Greppibarninu að fara inn í skóginn. En Greppibarnið óttast ekki neitt og eina dimma vetrarnótt læðist það frá mömmu sinni.

    Greppibarnið, í vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárns, er nú loks fáanleg að nýju. Því fagna börn á öllum aldri, sérstaklega þau sem bæði eru hugdjörf og heimakær.

    4.990 kr.
    Setja í körfu