-
Stórkostlegt líf herra Rósar
1.290 kr.Stórkostlegt líf herra Roósar og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólki
Herra Rós talar eingöngu við sjálfan sig og þá oftast um stjórnmál. Stundum er hann sammála, stundum ekki. Haraldur Sigfússon á sér þann draum að búa í piparkökuhúsi og á fimmtugsafmæli sínu tilkynnir hann að það sé loksins komið að því. Jón Jónsson er venjulegasti maður landsins samkvæmt meðaltali og Gunnar er til í tveimur eintökum. Einhvers staðar, efst á hárri byggingu, stendur ónefndur maður á brún og horfir niður. Hann ætlar sér að stökkva en það eru ákveðnir hlutir sem verða að gerast áður. Svo er það stelpan sem vinnur í kirkjugarðinum; hún hreinlega lifir fyrir miðvikudaga. Á miðvikudögum er nefnilega kveikt á líkbrennsluofnunum og allur kirkjugarðurinn angar af vöfflum.
Hér má einnig finna sögur af svaðilförum flatbökusendils, minnisleysi, mannáti, óhappdrætti, skuggaskorti og manninum sem býr til vísbendingar fyrir Jóladagatal Sjónvarpsins.
Ævar Þór Benediktsson er 25 ára nýútskrifaður leikari. Stórkostlegt líf herra Rósar og fleiri sögurúle af ótrga venjulegu fólki er fyrsta bók hans.
-
Utz
1.290 kr.Kaspar Utz á óviðjafnanlegt safn af Meissenpostulíni, matarílát og skrautmuni, sem honum hefur tekist að varðveita á tímum margvíslegra ógna. Hann er aðalsmaður af gamla skólanum, sem býr með postulínssafni sínu og þjónustustúlku í tveggja herbergja íbúð sinni í Prag. Sögumaður kemur á fund hans og verður margs vísari um merkileg örlög á umbrotatímum.
Bruce Chatwin lýsir hér sálarlífi ástríðusafnarans og afdrifum gamals og sérkennilegs menningararfs í stalínisma eftirstríðsáranna. Þar spinnist inn sögur um evrópskan aðal, um gyðinga og skriffinna kommúnismans. Chatwin er næmur höfundur, og hann hefur óvenjulega og auðuga kímnigáfu.
Unnur Jökulsdóttir og Þorbjörn Magnússon þýddu.
-
Heimur feigrar stéttar
1.290 kr.Sögusviðið er Suður-Afríka í ólgu sjötta og sjöunda áratugarins. Söguna segir Liz Van Den Sandt, hvít millistéttarkona. Fyrrum eiginmaður hennar, vanmáttugur og ráðvilltur uppreisnarmaður, hefur fyrirfarið sér. Liz verður hugsað til lífs þeirra saman og baráttu gegn aðskilnaðarstefnunni.
Hvernig er að vera hvít kona í Suður-Afríku á umbrotatímum sem ekki sér fyrir endann á? Er nóg að vilja vel? Er hægt að leiða kúgunina hjá sér? Verður sá sem tekur afstöðu einnig að hafa kjark til að gera eitthvað í málunum?
Þessi bók kemur við kvikuna í hinu margklofna þjóðfélagi Suður-Afríku frá sjónarmiði þess hluta hvíta forréttindahópsins sem finnur að samviskan er svört.
Ólöf Eldjárn þýddi.
-
Marta, Marta
4.390 kr.Titill þessarar áhrifamiklu skáldsögu vísar til Biblíupersónunnar Mörtu í Nýja testamentinu. Henni var ráðlagt að sneiða hjá óþarfa átökum og beina sjónum að hinu jákvæða og góða í lífinu. En Marta í skáldsögunni spyr hvar hið jákvæða og góða leynist í heimi þröngsýni og óréttlætis?
Árið 1993 dvaldi Marta á samyrkjubúi (kibbuts) í Jórdandalnum. Hún gerði sér far um að reyna að skilja eðli þeirrar pólitísku og trúarlegu átaka og spennu sem er allt um lykjandi á þeim slóðum. Þrjátíu árum síðar kemur ísrölsk vinkona hennar í heimsókn til Færeyja. Landið helga er þá enn opnara sár en nokkru sinni fyrr. Hvers vegna er ekki hægt að horfast í augu við veruleikann? spyr Marta.
Hjálmar Waag Árnason íslenskaði.
Færeyski rithöfundurinn Marjun Syderbø Kjelnæs (f. 1974) hefur lokið meistaraprófi í færeyskum bókmenntum og tungu, auk þess að vera hjúkrunarfræðingur. Hún hefur skrifað smásögur og skáldsögur, leikrit, ljóð og söngtexta.
-
Barnæska
4.390 kr.Jona býr með foreldrum sínum í Amsterdam þegar Þjóðverjar hertaka Holland í upphafi heimsstyrjaldarinnar síðari. Fjölskyldan er í óða önn að undirbúa flutning til Palestínu þegar hún er skyndilega vakin upp um miðja nótt, flutt nauðug í lest og að lokum í fangabúðirnar í Bergen-Belsen.
Áhrifamikið meistaraverk þar sem hryllingi Helfararinnar er lýst frá sjónarhóli barns.
Gyrðir Elíasson íslenskaði.
Jona Oberski (f. 1938) er hollenskur kjarneðlis- og öreindafræðingur. Hann er höfundur allmargra bóka en Barnæska er þeirra frægust.
„Þetta er bók sem snertir sérhvern lesanda með hjarta.“ – Isaac Bashevis Singer, Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum
„Látlaus … gagnorð … átakanleg.“ – Harold Pinter, Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum
„Myrkt ævintýri… um ótta og angist barns, byggð á reynslu sem lýtur ekki lögmálum skynseminnar en samt algerlega raunveruleg.“ – Heinrich Böll, Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum“
-
Sjö manngerðir sem finna má í bókabúðum
4.390 kr.Bækur Shauns Bythell um lífið í fornbókabúðinni hans í Wigton á Skotlandi hafa slegið í gegn víða um heim. Þar er brugðið upp lifandi myndum af daglegum gestum í bókabúðinni, skrýtna fólkinu sem vinnur þar, kettinum Kafteini og öllu amstrinu sem fylgir lífi fornbókasalans.
Í þessari bók reynir Shaun að átta sig á fólkinu sem ratað hefur í búðina hans á langri bóksalaævi. Heilt yfir finnst honum að viðskiptavinina megi flokka í sjö ólíkar manngerðir. Hnyttnar og snjallar mannlýsingar fornbókasalans gera þessa litlu bók að einstökum skemmtilestri.
Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.
„Grátbroslegar lýsingar … engum er hlíft.“ – Washington Post
„Fornbókasalinn lætur allt flakka með snilldarlegum hætti … mannfyrlitning í bland við elskulegheit.“ – Guardian“
-
Ariasman
1.290 kr.Ariasman – frásaga af hvalföngurum eftir Tapio Koivukari er söguleg skáldsaga um Spánverjavígin þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn af vestfirskum bændum haustið 1615 undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri.
Tveimur árum áður en þessir atburðir urðu stendur ung stúlka, Kristrún að nafni, undir Kaldbakshorni og skolar ull. Hún sér segl við sjóndeildarhring, ókunn segl og heimamenn leggja á flótta undan útlendum sjóreyfurum, að því er þeir halda. En komumenn eru friðsamir hvalfangarar og góður kunningsskapur myndast á milli þeirra og heimamanna fyrir milligöngu sóknarprestsins. Sjálfur Vestfjarðakóngurinn, Ari í Ögri, leggur blessun sína yfir veru þeirra á Ströndum.
Saga Spánverjavíganna og aðdraganda þeirra er hér rakin frá sjónarhorni bæði Íslendinga og Baska. Martin de Villafranca er ungur og metnaðarfullur maður í sinni fyrstu för sem hvalveiðikapteinn örlagasumarið 1615. Hann ávinnur sér brátt traust og virðingu áhafnarinnar en samskiptin við heimamenn ganga brösuglegar. Um borð er ungur piltur, aðstoðarbeykirinn Gartzia de Aranburu, en leiðir hans og Kristrúnar liggja saman.
Skömmu fyrir brottför veiðimannanna úr Reykjarfirði um haustið skellur á mikið óveður og þá hefst atburðarás sem endar með þeim ósköpum sem enn eru talin eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar.
-
Hóras prins af Hákoti
4.390 kr.Uppgjafabóndinn Hóras gerist róni í Reykjavík á sjöunda áratug 20. aldar. Hann kemur víða við sögu og er um tíma formaður 17. nefndar Reykjavíkurborgar og síðar forsætisráðherra en stefnumálin eru vafasöm og sögulok ill. Hóras prins af Hákoti er drepfyndinn harmleikur í bundnu máli, ortur af galsafenginni ófyrirleitni sem kankast á við klassískan skáldskap fyrri alda.
-
Ör
990 kr.Jónas Ebeneser er 49 ára fráskilinn, valdalaus og gagnkynhneigður karlmaður sem hefur ekki haldið utan um bert kvenmannshold – alla vega ekki viljandi – í átta ár og fimm mánuði.
En hann er handlaginn. Hann hefur flísalagt sjö baðherbergi og þegar hann leggur af stað í ferðalag sem hann hefur ekki hugsað sér að snúa aftur úr, tekur hann með sér borvél.
Auður Ava Ólafsdóttir fjallar um stærstu spurningar mannsins, um lífið, dauðann og sjálfa ástina sem öllu skiptir, í sinni fimmtu skáldsögu. Auður Ava hefur skrifað skáldsögur, leikrit, ljóð og er textahöfundur popphljómsveitarinnar Milkywhale. Hún er margverðlaunuð fyrir skáldsögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.
-
Saklaust blóð í snjó
3.690 kr.Þessi bók er byggð á sannsögulegum atburðum er gerðust á Reyðarfirði veturinn 1726.
Á fjallveginum milli Reyðarfjarðar og Norðfjarðar, norðan megin við Oddskarðið stendur Höllusteinn. Undir þessum steini fæddi bláfátæk kornung stúlka barn, alein og útskúfuð í blindhríð um hánótt. Henni hafði verið úthýst í Helgustaðahreppi þetta sama kvöld. Enginn vildi láta óskilgetið barn fæðast á sínum bæ. Eftir þetta hefur þessi brekka verið kölluð Blóðbrekka.
Í raun fjallar þessi bók um það hvernig karlmenn á Íslandi fyrr á öldum misnotuðu vald sitt til misnotkunnar á konum og komust upp með það, því þeir einir skráðu söguna.
-
Vikuspá
4.390 kr.Vikuspá geymir áttatíu og sex sögur á einföldu máli. Í stuttum og aðgengilegum frásögnum eru ólíkar atvinnugreinar kynntar. Hér er leikið með þá íslensku þjóðtrú að það geti haft áhrif á hvað barn taki sér fyrir hendur í framtíðinni á hvaða vikudegi það fæðist. Sögupersónur takast á við þrautir og sigra í leit að hinum gullna meðalveg, milli frama og lukku. Sögurnar varpa ljósi á fegurð mannflórunnar og mikilvægi þess að þroskast og þróast í takt við tímann.
Vikuspá er sjálfstætt framhald af Árstíðum og Dagatali sem hafa notið mikilla vinsælda og verið kenndar víða á Íslandi sem og erlendis. Textarnir eru fjölbreyttir hvað varðar efnistök, form og stíl og flokkaðir eftir getustigi í samráði við sérfræðinga. Þar að auki fylgir viðauki með margskonar fróðleik um land og þjóð. Bókin nýtist jafnt við kennslu sem og til yndislestrar.
-
Auður
1.290 kr.Auður, dóttir víkingahöfðingjans Ketils flatnefs, vex upp á Suðureyjum, ættstór og skapheit. Allt hennar fólk er heiðið en þegar hún kynnist Gilla munki laðast hún bæði að honum og boðskap hans um Hvítakrist. Fullveðja er Auður gefin Ólafi hvíta, konungi yfir Dyflinni á Írlandi. Samband þeirra er heitt en stormasamt og vináttan við Gilla verður henni dýrkeypt …
Auður djúpúðga er í hópi þekktustu landnema Íslands. Hér er þroskasaga hennar sögð um leið og dregin er upp mynd af þeim róstusömu tímum þegar norrænir menn lögðu undir sig eyjarnar við Skotland og herjuðu í Vesturhafi. Vilborg Davíðsdóttir er þaulkunnug mannlífi sögutímans og Auður rís úr djúpi aldanna, sterk og heillandi kona.
-
Beckomberga-geðsjúkrahúsið
990 kr.Þegar Jimmie Darling er vistaður á Beckomberga-geðsjúkrahúsinu fer dóttir hans, Jackie, að eyða sífellt meiri tíma þar, og eftir að móðirin fer úr landi verður sjúkrahúsið hennar heimur. Þar er Edvard Winterson læknir sem tekur með sér Jim og sérvalda sjúklinga á hverri nóttu í partí niður í bæ, hjúkrunarkonan Inger Vogel sem fetar hárfína línu reglu og eyðileggingar í samskiptum og hin raunamædda en aðlaðandi Sabina. Þar er líka Paul og ástin, hin raunverulega geðveiki.
Beckomberga-geðsjúkrahúsið er heillandi frásögn um baráttuna og drauminn við að halda fólki í birtunni, um vanmátt foreldra og barna, um ótta og dauðageig. Í þessari seiðmögnuðu og hrífandi skáldsögu verður sjúkrahúsið táknmynd samfélags sem í senn reynir að halda utan um þá veiku en líka halda þeim fjarri.
Sara Stridsberg er einn virtasti rithöfundur Svíþjóðar, handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2007 og hefur hlotið fjölda annarra viðurkenninga, ekki síst fyrir Beckomberga-geðsjúkrahúsið.
Tinna Ásgeirsdóttir þýddi.
-
Dagskammtar
3.490 kr.Dagskammtar samanstendur af stuttum textum í lausu máli. Margir textanna tengjast ákveðnum atvikum, en aðrir eru fremur hugleiðingar eða þankabrot sem finna sér leið inn í hversdaginn. Líta má á textana sem eins konar dagbókarfærslur þar sem „ég“ frásagnarinnar miðlar reynslu sinni af atvikum og fyrirbærum daganna.
„Í dag er búið að vera mistur og rigning, en nú virðist vera að rofa til. Það er alveg logn og ég er ein á gangi á Sólvallagötunni. Nokkrum sólargeislum tekst að brjótast gegnum mistrið um leið og það hellist yfir mig skyndilegt regn. Það er þá sem ég sé regnbogann. Hann spennir marglitan bogann yfir nesið með annan endann í Faxaflóanum og hinn í Skerjafirðinum. Hann er rétt hjá mér, kannski í nokkur hundruð metra fjarlægð. Ósjálfrátt herði ég gönguna. Áður en ég veit af er ég farin að hlaupa.“
-
Galeiðan
1.290 kr.GALEIÐAN er nútímaskáldsaga og viðfangsefni hennar er í senn tímabært og sjaldséð í íslenskum bókmenntum. Lesandi slæst í hóp nokkurra stúlkna sem vinna í dósaverksmiðju og lifir með þeim súrt og sætt fáeina daga. Við kynnumst aðstæðum þeirra heima fyrir og á vinnustað og einnig yfirboðurum þeirra, æðri sem lægri.
Skýrar og margþættar persónulýsingar eru einn meginkostur bókarinnar og stúlkurnar verða því mjög sannfærandi og lifandi fyrir augum lesandans, hver með sínum persónusérkennum. Ekki síst þess vegna birtist glöggt það galeiðumynstur sem líf þeirra er í raun hneppt í, bæði á vinnustað og í einkalífi. Á þessum dögum gerast einnig atburðir sem gætu breytt lífi þessara stúlkna, a.m.k. reynist samstaða þeirra vonum meiri þegar í odda skerst…
Sagan er öll skrifuð af hispursleysi og næmu innsæi og frásögn er lipur og skemmtileg. Með þessari bók hefur Ólafur Haukur Símonarson bætt enn einni sögu af alveg nýrri gerð inn í fjölbreytt ritverkasafn sitt sem á vafalaust enn eftir að auka vinsældir hans meðal bókmenntaunnenda.
-
Hans Jónatan: maðurinn sem stal sjálfum sér
1.290 kr.Árið 1802 höguðu örlögin því þannig að ungur þeldökkur maður, þræll og stríðshetja frá Jómfrúreyjum, danskri nýlendu í Karíbahafi, settist óvænt að á Djúpavogi, kvæntist og gerðist verslunarmaður og bóndi. Nafn hans hefur verið sveipað ljóma en lítið um hann ritað. Hvers vegna kom hann til Íslands? Hvernig brugðust landsmenn við honum og hvernig brást hann við þeim?
Saga Hans Jónatans varpar ljósi á nýlendutímann, þrælahald, kúgun og viðskipti, uppreisn og frelsisþrá. Hún teygir sig yfir höfin, frá Vestur-Afríku til Jómfrúreyja, til Danmerkur og Íslands. Sagan á brýnt erindi við samtímann – enn er tekist á um mannréttindi og innflytjendur, samskipti við fólk sem er „öðruvísi en við“.
Gísli Pálsson stundaði nám við Háskóla Íslands og Manchesterháskóla. Hann hefur lengst af starfað sem prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands en einnig við Oslóarháskóla og nú er hann gistiprófessor við King’s College í London. Hann hefur ritað margt um ólík efni félagsvísinda og náttúrufræða – meðal annars umhverfismál, sögu norðurslóða, heilbrigðismál og erfðarannsóknir – og hlotið viðurkenningu fyrir framlag sitt bæði heima fyrir og erlendis.
-
Ofurnæfur
1.290 kr.Skáldsagan Ofurnæfur hefur vakið mikla athygli víða um lönd fyrir það hversu góða innsýn höfundurinn, Erlend Loe, gefur í veruleika ungs fólks þar sem gömlum gildum og verðmætum hefur verið hafnað. Gagnrýnendur hafa líkt sögunni við Bjargvættinn í grasinu eftir J. D. Salinger auk þess sem hún minnir um margt á 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason. Þetta er óvenjuleg skáldsaga um ungan mann sem skyndilega veit ekki hvert skal stefna í lífinu. Frásögnin er sposk og barnslega einlæg; sögumaðurinn veigrar sér við að lifa lífinu en leitar um leið ákaft að fótfestu í tilverunni.
Ofurnæfur er þekktasta verk Norðmannsins Erlends Loe en bókin hefur aflað honum gríðarlegra vinsælda í heimalandinu og verið þýdd á fjölda tungumála. Hann lýsir hér á einfaldan hátt örvæntingu manns sem misst hefur tökin á tilverunni; sagan er einlæg en jafnframt leiftrandi af kímni. Þórarinn Eldjárn þýddi verkið á íslensku.
„… sjaldgæft að rekast á bækur sem eru skrifaðar af jafn miklu kæruleysi og sannfærandi getu í senn…“
Huldar Breiðfjörð, Morgunblaðinu -
Úngur eg var
2.990 kr.Úngur eg var er skáldverk um minningar höfundar frá árinu 1919. Í upphafi frásagnarinnar er hann að leggja á stað „útí þann stóra heim“, sem er Kaupmannahöfn. Heima í Reykjavík er fyrsta bók hans, Barn náttúrunnar, í þann veginn að koma út. Þessi ungi maður er félítill, en fullur bjartsýni. Það gengur á ýmsu um hagi hans, en hvar sem hann drepur sér niður, er hann óðara farinn að skrifa. Hann á góða að, en einkum lukkuna, sem ekki svíkur hinn óforsjála. Margir nafnkenndir Íslendingar koma við söguna, allt frá því að höfundurinn stígur á skipsfjöl. Í þessum hópi, sem Halldór dregur upp mynd af, er til dæmis Hallgrímur Kristinsson, Einar Benediktsson, Jón Helgason, og aðrir, sem birtast jafnskýrt þó þeir komi ekki beint við gang sögunnar, eins og Þórbergur Þórðarson eða höfundar, sem Halldór les á þessu ferðalagi og gerir fyndin reikningsskil við, til dæmis Hamsun og Strindberg.
Það ljómar víða af þessum tíma í bókinni: maður sér heiminn með bjartsýni hins eilífa unglings, og Íslendings, á leið út í heiminn, „á hraðri leið til útlendra menningarborga“. En annars skiptast á ljós og skuggar í verkinu. Mér er til efs að Halldór hafi oft verið fyndnari en hér. Þó að áherzlur frásagnarinnar séu léttar og höfundurinn auðtekinn í þessu verki er ekki alltaf jafnvíst fyrst í stað að hverju vér erum að hlæja. Vér vitum að för sögumannsins heppnaðist, þó að það standi ekki hér, og hann sé endanlega einn til frásagnar um það. Til íhugunar er þar á móti saga Jóns Pálssonar frá Hlíð, sem í sögulok finnst sjórekið lík úti í,,Effersey”.
K.K.