-
-
-
-
Nýr penni í nýju lýðveldi
1.290 kr.Hvað er þetta, spyr ég og bendi á lokaðar dyr í holinu. Þetta er chambre horreur, kallar Elías innan úr stofu. Íbúðin er á fyrstu hæð við Birkimel 6a, baðherbergi og eldhús snúa út að bílaplani, svefnherbergi og stofa snúa út í garð. Elías situr á stól í stofunni, langur og mjór með krosslagða fætur, tekur út úr sér munnstykki og blæs frá sér þykku reykskyi sem blandast rykögnum í sólskininu sem berst inn um stofugluggann. Eitt augnablik virðist hann ætla að liðast upp með reyknum og hverfa.
-
Alla mína stelpuspilatíð
1.290 kr.Hvert hafa spor hálfsextugrar stelpu legið?
Hvers vegna þræddi hún þessa leið en ekki hina?
Og hvert fór eiginlega tíminn?
Sigríður Kristín er frá Garði í Mývatnssveit, dóttir Jakobínu Sigurðardóttur rithöfundar og Þorgríms Starra Björgvinssonar bónda og hagyrðings, komin af Reykjahlíðar- og Skútustaðaætt og af kjarnafólki á Hornströndum. En hún naut þess ekki alltaf eins og hún segir hispurslaust frá í þessari ögrandi og „öðruvísi“ ævisögu. Auk þess að lýsa því hvernig var að alast upp í norðlenskri sveit á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, þar sem foreldrarnir voru kommar og húsfreyjan skrifaði bækur með „orðbragði“, dregur hún upp litríka mynd af ættmennum sínum, einkum konunum og þá fyrst og fremst móður sinni, veltir fyrir sér hlutskipti kynjanna í fortíð og nútíð – og dásamar þá tilviljun sem lífið er.
-
Krossfiskar
1.290 kr.Enn horfði ég á vatnið. Mér fannst ekkert eðlilegra en að vera þar sem ég var, einmitt núna. Ég sá að ævi mín var bara undanfari pessa augnabliks.
Daníel er hættur í háskólanum og hefur hvorki efni á mat né eldsneyti. Dag einn fær hann tvö símtöl, eitt frá fyrrverandi skólafélaga og annað frá lögreglunni, sem hrinda af stað dularfullri atburðarás.
Krossfiskar er spennuþrungin skáldsaga um átök sálarinnar – um mörk góðs og ills. vonar og vonleysis – frá einum af áhugaverðustu ungum höfundum þjóðarinnar.
-
Stjörnur og stórveldi: Á leiksviðum Reykjavíkur 1925-1965
1.290 kr.Þetta er svolítið óvenjuleg bók. Hún er blanda af fræðimennsku og sagnaskemmtan, leiklistargagnrýni og leiklistarsögu, persónulegum endurminningum og hugleiðingum. Þegar höfundur hefur hana nú fyrir sér fullsamda læðist þó að honum sá grunur að hún sé fyrst og síðast ástarjátning hans til leiklistarinnar sjálfrar. Hún er skrifuð sem safn stuttra ævisagna, æviþátta, um þá leikara sem ásamt hópi yngri starfsfélaga sinna gerðu íslenska atvinnuleiklist að veruleika um miðja síðustu öld. Allir voru þeir hver með sínum hætti mikilhæfir listamenn, enginn þeirra alfullkominn, en þegar upp var staðið höfðu þeir á fjórum áratugum eða svo gefið þjóðinni leikhús sem hún mat mikils og vildi ekki vera án. Og á sjöunda og áttunda áratug aldarinnar hreif list þessa fólks svo ungan dreng að hann setti leiklistina öðrum listum ofar og helgaði henni starfskrafta sína fulltíða maður.
JVJÍ bókinni er nýstárlegum aðferðum beitt til að varpa ljósi á merkan kafla í íslenskri leiklistarsögu. Höfundur segir sögu allra helstu leikara tímabilsins, sigra þeirra og ósigra, jafnframt því sem hann gerir valdabaráttunni að tjaldabaki ítarleg skil. Hann hefur kannað ógrynni heimilda við undirbúning verksins og dregur fram í dagsljósið margt sem legið hefur í þagnargildi allt til þessa dags. Það er síst ofsagt að bókin sé hvalreki fyrir alla sem áhuga hafa á leiklist og íslenskri menningarsögu síðustu aldar.
Jón Viðar Jónsson hefur verið um árabil einn helsti leiklistargagnrýnandi þjóðarinnar. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1975 og lauk doktorsprófi í leiklistarfræðum frá Stokkhólmsháskóla árið 1996. Á árunum 1982 til 1991 var hann leiklistarstjóri Útvarps. Hann gegndi stöðu forstöðumanns Leikminjasafns Íslands frá stofnun þess árið 2003 til 2012. Jón Viðar hefur fengist jöfnum höndum við fræðastörf og leiklistar- gagnrýni, ritað ævisögur Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu og Jóhanns Sigurjónssonar, annast útgáfu á heildarsöfnum leikrita Jökuls Jakobssonar og Guðmundar Steinssonar, auk þess sem hann hefur birt fjölda greina og ritgerða um leiklistarsögu og skyldar greinar í blöðum og tímaritum.
-
Vígroði
1.290 kr.Auður djúpúðga elur upp son sinn á eigin jörð á Katanesi. Hún hefur haldið sig fjarri Suðureyjum frá því að leiðir hennar og Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs skildu af ótta við að Ketill flatnefur, faðir hennar, gefi hana manni á ný.
Að veturnóttum 865 kemur hún þó í föðurhús, til brúðkaups bróður síns og dóttur Ingólfs Arnarsonar. Þar spá dísirnar því að vígroða muni brátt slá á víkinga í Vesturhafi. Og víst horfir ófriðvænlega á norðanverðum Bretlandseyjum þar sem innfæddir veita norrænum mönnum æ meiri mótspyrnu og Orkneyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Dyflinnarkonungur inn í Péttland, öllum að óvörum, og leiðir þeirra Auðar liggja saman að nýju …
Vígroði er framhald af skáldsögunni Auður sem kom út 2009, naut geysilegra vinsælda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
-
Gratíana
1.290 kr.Langþráð framhald Hansdætra. Leiftrandi örlaga- og þroskasaga ungrar konu sem tekst á við sjálfa sig og viðteknar venjur í byrjun tuttugustu aldar.
Þær framtíðarvonir sem Gratíana bar í brjósti sér eru að engu orðnar eftir þrjú ár í Bótarbugt en Evlalía móðir hennar er óbuguð enn. Með kænsku hreyfir hún við lífshjólinu og markar nýja stefnu, ekki aðeins fyrir sjálfa sig, heldur ekki síst Gratíönu og Ásdísi. Glóð kvenréttinda lifir í hjarta Gratíönu en samhliða kvikna aðrir logar sem hún brennir sig á, skilur ekki til fulls og veit ekki hvort hún vill glæða eða slökkva.
-
Speglahúsið
1.990 kr.Miðaldra hárgreiðslukonan Rósa leggur skærin á hilluna, flytur austur í Mjóafjörð og kemur á fót óvenjulegri ferðaþjónustu. Meðan ferðamenn setja sig í spor Lísu, sem lá lömuð þar um miðja síðustu öld, bakar Rósa fyrir kaffihúsið og hugsar til ömmu sinnar sem sá um Lísu og heimilið.
Mögnuð saga frá höfundi Hansdætra.
-
Skálds saga
1.990 kr.Hvernig er að vera rithöfundur? Hvaðan kemur innblásturinn og þörfin til að skrifa? Hvernig komast hugmyndirnar síðan á blað – og bók?
Verðlaunahöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir hefur á löngum ferli samið fjölda skáldsagna, ort ófá ljóð og skrifað vinsælar sannsögur, en hér er hún á nýjum slóðum og segir frá sjálfri sér, viðhorfum sínum, aðferðum og aðstöðu við skriftir.
Hún sýnir inn í vinnuherbergin og hugarfylgsnin, flakkar um landið og heiminn og dregur upp myndir af harðri glímu sinni við form og stíl, persónur og sögusvið, ytri aðstæður og innri hindranir. Um leið lýsir hún umhverfi, lífsreynslu og atvikum sem hafa orðið henni kveikjur að skáldskap og hvatning til að halda út dagana og árin sem það tekur að komast á leiðarenda, ljúka verki – sem ekki er alltaf sjálfgefið að takist.
Allt þetta kryddar Steinunn með sínum einstaka húmor, þekkingu og ærslafullum stíl sem enginn leikur eftir, og býður lesendum til ógleymanlegrar veislu. Fyrir seinustu skáldsögu sína, Ból, fékk hún Íslensku bókmenntaverðlaunin.
-
Hvaðan og hvert / Wherefrom and Whereto
9.990 kr.Þessi bók sýnir málverk Jóhönnu Boga frá margra áratuga tímabili. Auk þess eru að finna hugleiðingar Jóhönnu og annarra um ýmislegt sem tengist list hennar.
-
Undir Hraundranga: Úrval ritgerða um Jónas Hallgrímsson
1.990 kr.Undir Hraundranga er úrval ritgerða um Jónas Hallgrímsson frá 19. öld til nútímans. Hér er að finna fjölbreytt skrif um ævi og örlög Jónasar, um vísindastörf hans og hugmyndaheim, um áhrifavalda og umhverfi hans. Fjallað er um mörg áhugaverðustu verk skáldsins og tekist á um túlkun þeirra. Elstu ritgerðirnar eru eftir Konráð Gíslason og Hannes Hafstein og hinar yngstu eru frá allra síðustu árum. Auk núlifandi fræðimanna og skálda eiga margir þekktir höfundar frá 20. öld efni í bókinni. Meðal þeirra eru Einar Ól. Sveinsson, Halldór Laxness, Jakob Benediktsson, Kristinn E. Andrésson, Sigurður Nordal og Svava Jakobsdóttir. Bókin er gefin út í tilefni af því að tvær aldir eru liðnar frá fæðingu Jónasar. Ritstjóri er Sveinn Yngvi Egilsson sem einnig ritar inngang.
-
Játning
1.290 kr.Tveir íslenskir námsmenn, Elísabet og Benedikt, kynnast í Leipzig skömmu fyrir hrun múrsins. Þau fella hugi saman en líf þeirra tekur óvænta stefnu þegar yfirvöld fara að sýna þeim áhuga. Áratugum síðar neyðist Elísabet skyndilega til að minnast þessara löngu liðnu daga sem hún vill síst af öllu rifja upp.
Játning er stórbrotin skáldsaga um ást og minningar, heilindi og svik, fjölskyldusambönd og hverfulleika, um sannleika og lífslygi, og þær ákvarðanir sem við stöndum frammi fyrir á ögurstundum lífsins.
-
Jónas Hallgrímsson – Ævisaga (kilja)
1.290 kr.„Listaskáldið góða“ er sú einkunn sem þjóðin hefur gefið skáldinu Jónasi. Þjóðin hefur löngum séð fyrir sér mynd af viðkvæmum ljúflingi sem elskaði blómin og eina stúlku sem hann fékk ekki að eiga. Þessi mynd hefur vakið upp andstæðu sína: af beiskum drykkjumanni og auðnuleysingja sem orti fáein kvæði. Hvorug myndin er rétt, eins og Páll Valsson leiðir í ljós í þessu mikla verki um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar – þótt báðar feli í sér sannleikskorn. Jónas var ekki einungis ástsælasta skáld Íslendinga fyrr og síðar heldur líka innblásinn og umdeildur baráttumaður fyrir hvers kyns þjóðþrifamálum og fyrsti eiginlegi náttúrufræðingur okkar.
Á síðum þessarar bókar þar sem saman fer sannferðug og traust fræðimennska og fjörleg framsetning kviknar samtími Jónasar og fjöldi litríkra persóna kemur við sögu. Við sjáum Jónas með augum samtímamanna hans sem margir höfðu horn í síðu hans – og vinanna sem trúðu á hann. Rakin er sagan á bak við byltingarritið Fjölni, við kynnumst þrotlausum rannsóknum vísindamannsins Jónasar og farið er í saumana á fjölmörgum kvæðum hans, ástsælum jafnt sem minna þekktum. Höfundur leiðir margt nýtt í ljós um ástamál og einkahagi skáldsins og dregur upp heilsteypta mynd af lífi og starfi margbrotins manns.
Páll Valsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 fyrir þessa bók um Jónas Hallgrímsson.
„Grundvallarævisaga, verðskuldaður bautasteinn um einn helsta son Íslands … ástæða er til að fagna því að um svo merkilegan mann sé nú til ítarleg og skemmtileg ævisaga.“ – Ármann Jakobsson, DV
„Umfram allt er bókin skrifuð af greinilegri ást á viðfangsefninu og fyrir bragðið er frásögnin hvergi daufgerð en heldur athygli lesanda, auk þess sem textinn er auðlesinn og áhugaverður. Skemmtileg, vel sögð og byggist á vandaðri fræðilegri vinnu.“ – Skafti Þ. Halldórsson, Mbl.
„Skemmtileg bók. Þessi bók er skrifuð fyrir fólkið í landinu.“ – Súsanna Svavarsdóttir, Ísland í bítið.
-
Missir
990 kr.Hvert leitar hugurinn þegar komið er á leiðarenda og fátt er framundan nema eilífið sjálf? Til liðinnar tíðar … sem geymir misfagrar minningar.
Ekkert rífur þögnina nema miskunnarlaust suðið í katlinum, hversdagslegur undirleikur við uppgjör einmana manns við tilveru sína, ástina eða ástleysið sem nær yfir mörk lífs og dauða – og ellina, það hlutskipti sem allra bíður þegar líkaminn hrörnar og þrekið þverr.
Guðbergur Bergsson veitir hér ögrandi og óvænta sýn inn í þá hversdagsheima sem allir þekkja en hver og einn fetar á sinn einstaka hátt. Missir er saga sem afhjúpar einstaklinginn gagnvart óhjákvæmilegum örlögum sínum.
Valin besta bók ársins 2010 af gagnrýnendum Morgunblaðsins, Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Árna Matthíassyni: „Guðbergur hefur hér meistaraleg tök á efninu og frásögninni allri. Missir er tvímælalaust eitt af hans áhrifameiri verkum, knappt og meitlað og vekur lesendann til umhugsunar.“
-
-
Heiðmyrkur
5.990 kr.Áratug eftir atburði Svikabirtu sækja illir draumar á Dimmbrá. Djúpt í iðrum jarðar kynnist hún leyndustu kimum seiðsins. Hnikar reikar um heimskautið uns hann finnur ný heimkynni langt í suðri; óafvitandi kallar hann Dimmbrá til sín með ófyrirséðum afleiðingum. Indra vex úr grasi á Bifröst uns hún stígur niður, þess albúin að leggja jörðina að fótum sér. Í bakgrunni er uppruni stjarneyga fólksins, útdauði mannkynsins og endalok skuggabrúarinnar.
Í Heiðmyrkri lýkur Ingi Markússon sögunni sem hófst með Skuggabrúnni og hélt áfram í Svikabirtu, bókum sem vakið hafa verðskuldaða athygli og lof. Heiðmyrkur bindur þríleikinn saman í myrkri frásögn á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar – sögu um vináttuna og hefndina; lífið og eilífðina; vitundina og vélina; ljósið, myrkrið og skugga mannsins.
-
Svikabirta
4.990 kr.„Á ísbreiðunni ofan við þorpið læddist skuggi …“
Fáeinum árum eftir að himnarnir opnuðust eru grimmileg morð framin á heimskautinu. Sú eina sem getur stöðvað morðingjann er máttug norn sem er fangelsuð í fjarlægu landi.
Agni, listhagur pörupiltur í neðanjarðarborginni Neðra, leggur á flótta eftir að hafa verið dæmdur til dauða. Brátt flækist hann í ógnvænlega atburðarás og tekst á hendur ferðalag yfir íshelluna í von um að kaupa frelsi nornarinnar og binda enda á illvirkin – en skugginn sem læðist er ávallt skrefi á undan.
Örlög stjarneyginganna Dimmbrár, Hnikars og hrafnsins Uglu, sem lesendur skildu við þegar Skuggabrúin féll, fléttast með óvæntum hætti inn í sprennuþrungna og myrka frásögn sem heldur lesendum föngnum frá upphafi til enda.
Í Svikabirtu dregur Ingi Markússon lesendur enn lengra inn í hélaðan heiminn sem hann skóp með fyrstu skáldsögu sinni, Skuggabrúnni, sem vakti mikla athygli og einróma lof gagnrýnenda. Svikabirta er morðsaga á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar, ætluð jafnt ungmennum sem fullorðnum – saga um líf og dauða; ljós og myrkur; trú, von og hefnd.
-
Skuggabrúin
4.990 kr.Í fjarlægri framtíð, á ísilagðri jörð, hafa allar stjörnurnar slokknað nema ein; án hennar væri vetrarmyrkrið algert.
Þegar síðasta stjarnan hverfur verða Dimmbrá og Hnikar viðskila og hrekjast á flótta um heimskautið. Ekki er allt sem sýnist og alls staðar grúfir myrkrið yfir, hyldjúpt og kalt. Hvað varð um stjörnuna, hvernig tengist hún skuggabrúnni – verður hægt að afstýra almyrkva?