• Dreim: Dýr móðurinnar

    Dreim: Dýr móðurinnar

    Dýrin beruðu tennurnar gegn þeim sem sóttu að barninu við trjástofninn. Hreint, tært og hjalandi saug það fræ hennar á meðan laufkrónurnar vögguðu því í svefn. Hún sendi það mönnum. Barnið sitt. Enn falla tár hennar yfir regnskóginn – síðla hvern dag.
    – Sagan af Mtoto Ngala.

    Draupnir, máttugasta vera Dreim, er fallinn. Myrkrið vex beggja vegna skilanna og dreimfarar úr Fósturdal hafa örlög heimanna í höndum sér. Skömmu eftir komuna til Ngala, berst spádómur Draupnis. Von er á hinum mikla mætti og von ljóssins: Mtoto Ngala.

    Á meðan heift Alex hrekur hópinn í ógöngur er Daríus hvergi óhultur fyrir myrkrinu sem teygir sig á milli heima og þegar Bella slítur sig úr fjötrum reynist ást hennar á Staurian ógn við líf þeirra beggja. Þá er ónefnt litla dýrið sem enginn gefur gætur í allri óreiðunni. Það sem síst skyldi gleymast.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Silfurberg

    Silfurberg

    Þegar Berglind fer í útilegu með vinkonum sínum órar hana ekki fyrir því að duldir kraftar hennar muni vakna úr dvala og leiða hana inn í framandi veröld.

    Í Hásteinum, höfuðborg Álfheima, búa ljósálfarnir sig undir stríð. Svartálfadrottningin hefur ráðist á hvert vígið af öðru og nú steðjar hættan einnig að Mannheimum. Völva álfanna leitar aðstoðar meðal mannfólks í fyrsta skipti í aldaraðir og Berglind finnur sig knúna til að svara kallinu. Ljósálfarnir bjóðast til þess að þjálfa þær manneskjur sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum og Berglind kemst að því að sýnir hennar gætu bjargað þeim öllum.

    Það eru þó ekki allir jafn hrifnir af samstarfi álfa og manna og Berglind þarf að átta sig á því hverjum er treystandi.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Stríðsárin 1938-1945

    Stríðsárin 1938-1945

    Í þessu magnþrungna stórvirki er Ísland fært inn á landakort heimsstyrjaldarinnar síðari og sýnt hvernig það varð órofa hluti af hildarleiknum sem fram fór um víða veröld – og ekki síst á hafinu kringum landið. Grimmd, lífsþorsti, hetjudáðir og hryllingur stríðsátakanna er dreginn fram í fjölda frásagna, fréttaskeyta, leyniskjala, dagbóka og minningabrota, auk þess sem verkið geymir aragrúa ljósmynda, innlendra og erlendra, sem margar koma nú í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir.

    Páll Baldvin Baldvinsson, bókmenntafræðingur og menningarrýnir, hefur um árabil haft brennandi áhuga á þessu einstæða tímabili í sögu þjóðarinnar. Verkið er afrakstur gríðarlega umfangsmikillar vinnu hans við söfnun ljósmynda, endurminninga og annarra heimilda um stríðsárin.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Síðustu dagar skeljaskrímslisins

    Síðustu dagar skeljaskrímslisins

    Árið sem Lilja fór vorum við eittþúsund sjöhundruð þrjátíu og fjögur og árið eftir eittþúsund sjöhundruð þrjátíu og þrjú. Enginn dó og enginn fæddist.
    Í dag erum við þrjúhundruð og eitt og öll gerum við fastlega ráð fyrir að halda áfram. Útlendingarnir eru ekki taldir með frekar en kettirnir og miðaldra og gömul látum við sem ekkert sé þó okkur fari fækkandi, þó einn og einn hverfi , en þegar það gerist er dauðinn jafn hefðbundinn og tilbreytingarlaus og veðrið.

    Mitt skjól er hér í litlu höfninni og á meðan hafstraumarnir villast undir iljunum stend ég við gömlu eldavélina, fylli belginn á Nóa af matarlykt og salta og sýð niður matarforðann sem fer í búrið bak við eldhúsið. Innan um næringuna er líka lífsviðurværið mitt rabarbarabruggið sem ég sel síðustu manneskjunni í heiminum sem er ekki sama um mig, Nínu á Skeljabarnum. Það eina sem ekki er ætt þarna er Polaroid ljósmyndin af sólgrettri Lilju sem hangir litverp í horninu á bak við baunapokana innst í búrinu, en ég á sjaldan erindi þangað.

    7.990 kr.
    Setja í körfu
  • Efri hæðin

    Efri hæðin

    Litla stúlkan lendir í óvæntum ævintýrum þegar hún ætlar að sækja mjólk handa kisu að lepja.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Paradísareyjan

    Paradísareyjan

    Eyjuhátíðin er haldin árlega en í þetta sinn fer allt úr böndunum … Vinirnir Freyja og Hallgrímur eru yfir sig spennt og mæta niður á bryggju að taka á móti gestunum. En þeir eru fleiri en vanalega og líka dónalegri! Þegar Freyja og Hallgrímur fara að rannsaka málið komast þau að því að fæstir eru komnir til að taka þátt í hátíðinni.

    Af hverju kom þetta fólk á eyjuna?

    Hefur það eitthvað að gera með nýja bæjarstjórann?

    … og hvað er eiginlega Paradísareyjan?

    Paradísareyjan er þriðja bók Emblu Bachmann. Fyrstu tvær: Stelpur stranglega bannaðar (2023) og Kærókeppnin (2024) voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Embla hefur líka umsjón með Krakkafréttum og útvarpsþáttunum Hvað ertu að lesa? Árið 2024 hlaut hún Vorvinda IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt til barnamenningar.

    Bókin er myndlýst af hinni hæfileikaríku og margverðlaunuðu Bergrúnu Írisi, rithöfundi og teiknara

    5.690 kr.
    Setja í körfu
  • Grænland og fólkið sem hvarf

    Grænland og fólkið sem hvarf

    Hvað varð af norrænu byggðinni á Grænlandi sem hvarf með dularfullum hætti fyrir 500 árum? Hér er reynt að ráða gátuna auk þess sem rýnt er í sögu landsins frá komu danskra nýlenduherra, mikilla þjóðfélagsbreytinga á 20. öld og svo umsvifum Bandaríkjanna eftir síðari heimsstyrjöld og fram á okkar daga. Aðgengilegt sagnfræðirit og ferðasaga í bland.

    Árið 1408 var brúðkaup haldið í Hvalseyjarkirkju á Grænlandi. Í kjölfarið héldu brúðhjónin til Íslands og hefur ekki spurst til byggðar norrænna manna á Grænlandi síðan. Þremur öldum síðar kom danski presturinn Hans Egede til landsins í leit að afkomendum norrænna manna. Þeir fundust ekki en Danir tryggðu sér yfirráð yfir eyjunni, sem með einhverjum hætti standa enn. En hvað varð af þessu samfélagi norrænna manna á Grænlandi sem hafði fyrirfundist í næstum 500 ár?

    Sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson veltir hér upp ráðgátunni um þetta dularfulla hvarf heillar siðmenningar. Sagt er frá byggð norrænna manna á miðöldum, allt frá Eiríki rauða til brúðkaupsins í Hvalseyjarkirkju. Einnig er saga landsins fram á okkar daga rakin. Grænland sem hluti af nýlenduveldi Dana, þjóðfélagsbreytingarnar miklu á 20. öld, umsvif Bandaríkjamanna sem hófust í síðari heimsstyrjöld og hin ýmsu hneykslismál sem hafa flækt samband Grænlands og Danmerkur undanfarið.

    Valur dvaldi á Grænlandi og skoðaði þar fornminjar jafnt sem að taka heimamenn tali og dvaldi auk þess á hreindýrabúi um stund. Bókin er aðgengilegt sagnfræðirit og ferðasaga í bland eins og höfundar er von og vísa.

     

    6.390 kr.
    Setja í körfu
  • Einn góðan veðurdag

    Einn góðan veðurdag

    Góðan daginn! Eigum við að koma saman í sveitina? Hér er á ferðinni falleg harðspjaldabók eftir Ævar Þór með myndum eftir Lóu Hlín fyrir yngstu kynslóðina.

    Það er gott veður í dag. Eigum við að kíkja í sveitina?

    Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað ótrúlega margar barnabækur og búið til alls konar efni fyrir bæði sjónvarp og útvarp. Hann ólst líka upp í sveitinni sem þú lest um þessari bók!

    Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar og teiknar bækur fyrir börn og stundum semur hún líka brandara fyrir fullorðna og syngur í hljómsveit. Þegar hún var lítil hjálpaði hún til við sauðburðinn í sveitinni hjá frænku sinni.

    3.890 kr.
    Setja í körfu
  • Sjáandi

    Sjáandi

    Þegar dularfull spákona úr austri birtist í friðsælum dal í íslenskri sveit fara ævintýralegir hlutir að gerast og allt sem áður var fer úr skorðum. Saman við komu spákonunnar fléttast barátta kotbænda við auðvaldið úr nærliggjandi kaupstað, hrifnæmni fjósastráks, forboðnar ástir heimasætu og förukona sem enginn veit hvort er að koma eða fara.

    Ester Hilmarsdóttir er bóndadóttir úr Aðaldal. Hún hlaut tilnefningu til Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabók sína Fegurðin í flæðinu en Sjáandi er fyrsta skáldsaga hennar. Hún segir frá uppvexti, ást sem er alheimsfasti, vaxtarverkjum nýrra tíma, samstöðu og baráttu fyrir afkomu og verndun náttúrunnar. Harmur og húmor liðast um söguna líkt og áin sem rennur um dalinn – stundum gjöful en stundum brigðul, þar sem auðvelt er að festast í slýinu og missa fótanna.

    7.790 kr.
    Setja í körfu
  • Heimsins besti dagur í helvíti

    Heimsins besti dagur í helvíti

    „Ég get skipt lífinu upp í þrjá kafla.
    Fyrir, eftir og ferðalagið þar á milli.“

    Þegar Lilja Ósk flækir fæturna í hundabúri í miðju matarboði og dettur á höfuðið er hún sannfærð um að hún muni jafna sig fljótt og örugglega, enda hefur hún hvorki tíma né þolinmæði til annars. Raunin verður þó önnur. Hvað tekur kona til bragðs sem týnir sjálfri sér? Hvenær ætli heimsins besti dagur í helvíti komi?

    Hrá, einlæg, átakanleg og á köflum fyndin frásögn af því hvernig lífið getur breyst á einu andartaki.

    6.890 kr.
    Setja í körfu
  • Ísbirnir

    Ísbirnir

    Það er órói í samfélaginu. Eitthvað slæmt liggur í loftinu. Þegar Dagbjört, samfélagsmiðlastjarna í blóma lífsins, hverfur sporlaust þarf Guðgeir að hafa sig allan við að leysa málið. Hver klukkustund telur og eftir því sem líður á rannsóknina rætist versta martröð lögreglunnar. Hvarf Dagbjartar er ekki einangrað tilvik.

    „Það var gripið fast um axlir hennar. Hún fann heitan másandi andardrátt við hálsinn. Klær klipu í holdið. Rispuðu og rifu í það. Sársaukinn var nístandi sár en Dagbjört streittist á móti af öllu afli. Hún var sterk, fann fyrir hverjum vöðva líkamans en allt kom fyrir ekki. Hrammarnir þrýstu henni niður, neglurnar boruðu sig inn fyrir húðina. Hún var keyrð niður í gólfið af villidýri.“

    Ísbirnir er níunda bók Sólveigar Pálsdóttur en bækur hennar hafa komið út í nokkrum löndum og hlotið mikið lof. Sólveig hlaut Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bók sína Fjötrar. Sama ár var hún útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness, fyrst rithöfunda.

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Njála hin skamma

    Njála hin skamma

    Þessi myndabók byggist á einni ástsælustu Íslendingasögunni, Brennu-Njáls sögu, sem rituð var seint á þrettándu öld en lýsir atburðum sem gerðust þrjú hundruð árum fyrr. Njáls saga er æsispennandi örlagasaga sem hverfist m.a. um ást, öfund, vinskap, svik, forlagatrú, hefnd, hetjudáðir, sæmd, lagaklæki og sættir.

    Hér hefur listakonan og rithöfundurinn Kristín Ragna Gunnarsdóttir dregið Njálu saman í stuttu máli og myndum til að fólk geti kynnst nokkrum af litríkum persónum hennar og áttað sig á þræði sögunnar í grófum dráttum.

    5.690 kr.
    Setja í körfu