• Fjögur ljóðskáld

    Fjögur ljóðskáld

    Fjögur ljóðskáld geymir úrval ljóða eftir fjögur öndvegisskáld nýrómantíska skeiðsins í íslenskri ljóðlist fyrir einni öld. Skáldin eru Jóhann Gunnar Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti, Jóhann Sigurjónsson og Jónas Guðlaugsson. Hér er að finna margt það fegursta og fágaðasta í íslenskri ljóðagerð fyrr og síðar. Hannes Pétursson skáld valdi ljóðin og ritaði inngang að safninu og hefur hann sérstaklega endurskoðað innganginn fyrir þessa útgáfu frá árinu 2000 en upphaflega kom bókin út árið 1957.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Móðurást: Oddný
  • Bak við hafið

    Bak við hafið

    Úrval úr ljóðum Jónasar Guðlaugssonar

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Ástkona franska lautinantsins
  • Eva Luna

    Eva Luna

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Konur

    Konur

    Konur er fimmta skáldsaga Steinars Braga og vakti mikla eftirtekt þegar hún kom út.  Sagan segir frá ungri íslenskri listakonu sem snýr heim til Íslands eftir nokkurra ára dvöl í Bandaríkjunum og reynir að raða saman brotunum í lífi sínu. Lánið virðist leika við hana þegar bankamaður, einn íslensku útrásarvíkinganna, býður henni af örlæti að dvelja endurgjaldslaust í glæsilegri þakíbúð í háhýsi við Sæbraut meðan hún kemur sér fyrir. En smám saman fær hún á tilfinninguna að verið sé að leiða hana í gildru …

    Konum var fádæma vel tekið af gagnrýnendum og lesendum og hún var tilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Augu þín sáu mig

    Augu þín sáu mig

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Gargantúi og Pantagrúll

    Gargantúi og Pantagrúll

    Gargantúi og Pantagrúll er eitt þekktasta skáldverk sem ritað hefur verið á franska tungu fyrr og síðar. Þetta er flokkur fimm skemmtisagna eftir munkinn, lækninn, húmoristann og mannvininn François Rabelais (1484-1553), en fyrir þetta verk hefur Rabelais löngum verið settur á stall með klassískum höfundum á borð við Shakespeare, Dante og Cervantes. Hugmyndaflugið og frásagnargleðin er slík að lesandinn sogast inn í frásögnina og lendir með persónunum í ótrúlegustu ævintýrum, tekur þátt í spaklegum vangaveltum um aðskiljanlegustu málefni og skemmtir sér konunglega. Hann kynnist þar fjölda skrautlegra persóna, m.a. risahjónunum Grandgussa og Gargamelu og syni þeirra, átvaglinu Pantagrúl, raunum Panúrgs í kvennamálum og ferðalögum hans til furðulegra staða. En að baki glettninni býr þekking, viska og snörp ádeila höfundar sem var fjölfróðari en flestir samtímamenn hans. Ádeila hans á valdapot, menntasnobb, vanahugsun og helgislepju hverskonar kom illa við kaunin á samtímamönnum hans, einkum valda- mönnum kóngs og kirkju. Allar götur síðan hafa menn skipst í tvö horn í afstöðunni til verka Rabelais. Enda eru verk hans háskaleg fyrir þá sem ekkert skopskyn hafa. Fyrir alla aðra eru þau veisla.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Harún og Sagnahafið

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder
  • Jónas Hallgrímsson - Ævisaga

    Jónas Hallgrímsson – Ævisaga

    „Listaskáldið góða“ er sú einkunn sem þjóðin hefur gefið skáldinu Jónasi. Þjóðin hefur löngum séð fyrir sér mynd af viðkvæmum ljúflingi sem elskaði blómin og eina stúlku sem hann fékk ekki að eiga. Þessi mynd hefur vakið upp andstæðu sína: af beiskum drykkjumanni og auðnuleysingja sem orti fáein kvæði. Hvorug myndin er rétt, eins og Páll Valsson leiðir í ljós í þessu mikla verki um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar – þótt báðar feli í sér sannleikskorn. Jónas var ekki einungis ástsælasta skáld Íslendinga fyrr og síðar heldur líka innblásinn og umdeildur baráttumaður fyrir hvers kyns þjóðþrifamálum og fyrsti eiginlegi náttúrufræðingur okkar.

    Á síðum þessarar bókar þar sem saman fer sannferðug og traust fræðimennska og fjörleg framsetning kviknar samtími Jónasar og fjöldi litríkra persóna kemur við sögu. Við sjáum Jónas með augum samtímamanna hans sem margir höfðu horn í síðu hans – og vinanna sem trúðu á hann. Rakin er sagan á bak við byltingarritið Fjölni, við kynnumst þrotlausum rannsóknum vísindamannsins Jónasar og farið er í saumana á fjölmörgum kvæðum hans, ástsælum jafnt sem minna þekktum. Höfundur leiðir margt nýtt í ljós um ástamál og einkahagi skáldsins og dregur upp heilsteypta mynd af lífi og starfi margbrotins manns.

    Páll Valsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 fyrir þessa bók um Jónas Hallgrímsson.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • 101 dagur í Bagdag

    101 dagur í Bagdag

    Åsne var í Bagdad þegar fyrstu sprengjurnar féllu á borgina og þar til yfir lauk var hún í hringiðu atburða og flutti fréttir af vettvangi. Í bókinni lýsir hún því sem á daga hennar dreif, en á tíu ára ferli sínum sem stríðsfréttamaður segist Åsne aldrei hafa unnið við erfiðari aðstæður en í Írak. Hún dregur upp áhrifamiklar myndir úr stríði sem segja mikla sögu af lífi venjulegs fólks við hrikalegar aðstæður.

    „Þetta er bók um ferð blaðamanns, stríð og fólk í stríði. Í hundrað og einn dag, frá því í janúar og fram í apríl 2003, reyndi ég að miðla því sem ég upplifði í Bagdad … Áður en stríðið braust út þurfti að kljást við grundvallarvanda: Enginn sagði orð. Írakarnir töluðu undir rós og af miklum barnaskap – af hræðslu við að segja eitthvað vitlaust eða láta uppi hvað þeir voru að hugsa.“

    Åsne Seierstad er heimsþekktur stríðsfréttaritari. Sérstaklega hefur raunsæ umfjöllun hennar um ástandið í Afganistan og Írak eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 vakið mikla athygli. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar og öðlaðist heimsfrægð fyrir metsölubókina, Bóksalann í Kabúl. Bók hennar, 101 dagur í Bagdad, hefur hlotið frábærar viðtökur og er af mörgum talin áhrifamesta lýsing á Íraksstríðinu sem völ er á.

    990 kr.
    Setja í körfu