

Tvífari gerir sig heimakominn
1.490 kr.Tvífari gerir sig heimakominn er ljóðabók eftir Anton Helga Jónsson. Sviðið er höfuðborgin og í bókinni er að finna ljóð tengd ákveðum stöðum í Reykjavík s.s. Borgartúni, Miklubraut og Rauðavatni en einnig „óskáldlegri“ stöðum á borð við elliheimili, stúku á íþróttavelli og verslunarmiðstöð. Í bókinni birtast augnabliksmyndir af fólki sem oftar en ekki er að leita eftir sambandi við aðra en nær því ekki alltaf og situr eftir spyrjandi.


Tíminn á leiðinni
1.490 kr.Tíminn á leiðinni er ellefta ljóðabók höfuðskáldsins Steinunnar Sigurðardóttur. Meginstef hennar er tíminn sjálfur, ýmist gjöfull eða grimmur; kynslóðir sem koma og fara, árstíðir, upphaf og endalok horft er bæði inn á við og út í heiminn, á náttúruna, lífið sjálft. Ljóðmálið er leikandi létt og hnitmiðað, myndir dregnar skýrum og oft óvæntum dráttum, kaldhæðni og djúp alvara vegast á í skörpum og kjarnmiklum ljóðum.

Auðlesin
990 kr.Auðlesin er bráðfyndin og beitt samfélagsádeila sem tekst á við þær stóru siðferðis- og sjálfsmyndarspurningar sem þúsaldarkynslóðin stendur frammi fyrir.
Hugsjónaskáldið Nína Kristín ætlar að bjarga heiminum með ljóðum sínum en allt gengur á afturfótunum og við blasir að hún neyðist til að flytja aftur inn á forpokaða foreldra sína. Bjartur er verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg; réttsýnn og vinsæll umhverfisverndarsinni sem bjargar hunangsflugum í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum. En hversu djúpt rista hugsjónir þeirra beggja þegar virkilega reynir á?


Hansdætur
1.290 kr.Sumt fólk skilur ekkert nema kindur og fisk, líklega skilja Íslendingar ekkert nema kindur og fisk, sérstaklega ekki karlmenn.
Í vestfirsku sjávarplássi í byrjun tuttugustu aldar gengur hver til sinna verka og nær óhugsandi er að rjúfa mörk stéttar og stöðu. Kona sem á þrjú börn með þremur mönnum á sér ekki viðreisnar von en dóttir hennar Gratíana þráir breytta tíma og betra líf. Hún hafnar þeim kvöðum sem hvíla á kven-fólki, hún vill ganga í buxum, frekar sulla í víni en vatni, og hún vill að Sella fái að syngja og Rannveig að ganga í skóla.
Hansdætur er áhrifamikil örlagasaga úr íslenskum veruleika. Við sögu koma harðgerðar konur, viðkvæmar sálir, andans menn, óreiðufólk af ýmsu tagi, draumar og þrár, sorgir og sigrar.
Benný Sif Ísleifsdóttir hefur skrifað fyrir bæði börn og fullorðna en Hansdætur er önnur skáldsaga hennar.



Sund
2.990 kr.Sundlaugarnar eru helsti samkomustaður heillar þjóðar sem sækir þangað næði eða samveru, hreinsun og heilsubót sálar og líkama. Sundið er lífsnauðsyn fyrir eyjarskeggja, undursamlegur leikvöllur hinna ungu og nærandi þeim sem eldri eru. Í sundi birtist samfélagið sjálfu sér … á sundfötunum.
Sund segir ylvolga sögu af íslensku nútímasamfélagi í mótun, með léttri klórangan og hveralykt, gufuslæðu og skvampi. Sundið er skoðað frá ýmsum hliðum og öllum hornum landsins. Sundlaugagestir sjálfir fá orðið og lýsa upplifun sinni í bland við ótal ljósmyndir, gamlar og nýjar, sem sýna landsmenn léttklædda að læra, leika og njóta í sundi.
Höfundar eru þjóðfræðingar og auk þeirra leggja hönnuðir hönd á plóg. Útkoman er einstaklega falleg, fróðleg og aðgengileg bók um uppáhaldsiðju flestra Íslendinga.


