

Bronsharpan – kilja
3.490 kr.Þarna var hún!
Á upphækkuðum palli var skjannahvít stytta af konu. Hún sat á lágum kolli með bronslita hörpu í fanginu. Roðagullið bronsið var áberandi í marmarahöndunum og það glampaði á hljóðfærið í sólskininu. Elísa nálgaðist listaverkið, gjörsamlega hugfangin. Umhverfis styttuna var lágt grindverk. Á því hékk þunn steinplata með áletruninni:
Belinda og harpan.
Nýr andstæðingur. Nýir bandamenn. Meiri máttur.
Rúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa skyndilega stödd í ókunnum heimi. Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi. En tekst þeim ætlunarverk sitt?
Kristín Björg Sigurvinsdóttir útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2018 en ákvað svo að elta gamlan draum. Dóttir hafsins var hennar fyrsta skáldsaga og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Bronsharpan er önnur bókin í bókaflokknum Dulstafir.
Dulstafir, bók 1: Dóttir hafsins var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020.

Brásól Brella: Gildrur, gátur og Glundroði
3.990 kr.Brásól Brella hefur náð tökum á galdrakröftunum sínum. Eða svona nokkurn veginn. Það kemur nefnilega enn fyrir að hún galdri sig í örlítil vandræði. En núna er Kata systir hennar horfin og Brella kannast ekki við að eiga neinn þátt í því. Brella heldur af stað í leit að systur sinni. Vísbendingarnar leiða hana gegnum hinn stórhættulega Stóraskóg þar sem heyrst hefur af varasömum vampíruveiðurum.
TEKST BRELLU AÐ FINNA KÖTU OG STÖÐVA ILL RÁÐABRUGG VEIÐARANNA ÁÐUR EN AÐ VERÐUR UM SEINAN?
Ásrún Magnúsdóttir er með MA-gráðu í enskukennslu og hefur mikinn áhuga á ævintýrum og þjóðsögum. Hún hefur einnig einstakt dálæti á dýrum. Skemmtilegast þykir henni þegar það tvennt blandast saman.

Bekkurinn minn 7 – Bumba er best
3.690 kr.Bumba er best fjallar um Óðin, sem er óvenju daufur í dálkinn þessa dagana. Snjórinn lætur bíða eftir sér og mömmur hans vilja losa sig við köttinn þeirra. Það má ekki gerast! Með hjálp Halldóru vinkonu sinnar finnur Óðinn fullkomna lausn á málinu.

Bekkurinn minn 6 – Jólaleikritið
3.690 kr.JÓLALEIKRITIÐ fjallar um Unni Leu og jólaskemmtun bekkjarins. Unnur Lea skrifar leikrit, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið! Hún er viss um að þetta verði flottasta leiksýning allra tíma. Bara ef bekkjarfélagarnir tækju verkefnið alvarlega. Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan
veggja skólans.Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

Bekkurinn minn 5 – Varúlfurinn
3.690 kr.Varúlfurinn fjallar um Leonoru og orðróminn um varúlfinn í skólanum. Er Héðinn húsvörður í alvörunni varúlfur sem er læstur
inni í kompu þegar myrkrið skellur á? Daginn fyrir hrekkjavökuna komast Leonora og Ragnar til botns í málinu.
Bekkurinn minn 4 – Hjólahetjan
3.690 kr.Hjólahetjan fjallar um Jón Ingva sem lendir í vandræðum með hjólalásinn sinn þegar hann fer með pabba í vinnuna. Feðgarnir þurfa að redda málunum og lenda í óvæntri eftirför á leiðinni heim. Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.
Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.
Bekkurinn minn 3 – Lús!
3.690 kr.Lús! fjallar um Sigríði og lýsnar sem hreiðra um sig á höfði hennar. Það vill enginn vera með höfuðið fullt af lúsum … eða hvað? Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

Bekkurinn minn 2 – Geggjað ósanngjarnt!
3.690 kr.GEGGJAD OSANNGJARNT! fjallar um Bjarna Frey sem finnst hann ítrekað hafður fyrir rangri sök. Eitt skiptið er honum nóg boðið og hann strýkur úr frístund ásamt Mikael vini sínum. Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.
Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

Bekkurinn minn 1 – Prumpusamloka
3.690 kr.Prumpusamloka! fjallar um fyrsta skóladag Nadiru, sem nýflutt er til Íslands frá Írak. Við fylgjumst með henni fóta sig í bekknum, kynnast kennaranum og bekkjarfélögunum og læra ný orð, misnytsamleg þó.
Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.
Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

Amma óþekka – Klandur á Klambratúni
3.190 kr.Í þessari sögu má segja að ævintýrin elti ömmu og Fanneyju Þóru alla leiðina heim.
Þær langmæðgur eru að leika sér á Klambratúni í Reykjavík þegar gömul vá lætur á sér kræla; sjálf Grýla lifnar við og er sársvöng eftir langan dvala.
Sem betur fer eru Fanney Þóra og amma ráðagóðar sem fyrri daginn.
Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti.

Algjör steliþjófur!
3.190 kr.Hver var þessi undarlegi hlutur sem krakkarnir fundu í kartöflugarðinum? Hvers vegna tók flugmaðurinn hann af þeim og lét þau fá lakkrískonfekt í staðinn? Hvernig eiga þau að endurheimta hlutinn?
Spennandi, fyndin, vonandi dálítið fróðleg en samt aðallega ævintýralega hversdagsleg saga!
