
Ég lifi lífi sem líkist ykkar
1.290 kr.Öðru hverju hitti ég fólk sem þekkti mig sem barn en bjóst ekki við að hitta mig sem fullorðinn mann. Af almennri kurteisi leynir það yfirleitt furðu sinni yfir því að sjá mig á lífi. Um stund ríkir þá þögn áður en samtalið hefst og fólk getur sagt það upphátt sem það hugsaði fyrst þegar það sá mig: Ert þú enn á lífi? Höfundur þessarar bókar hefur notað hjólastól frá barnæsku vegna vöðvarýrnunarsjúkdóms. Í bókinni lýsir hann lífi sínu og hugleiðir ýmsar áskoranir sem hann hefur mætt, bæði hversdagslegar og þungvægar. Hann greinir frá uppvextinum, baráttu sinni við kerfið, vonbrigðum og árangri, biturleika en einnig gleði. Jan Grue (f. 1981) er doktor í málvísindum og prófessor og rithöfundur í Osló. Hann hefur skrifað smásögur og skáldsögur auk fræðilegra greina. Ég lifi lífi sem líkist ykkar kom fyrst út 2018. Bókin fékk afar lofsamlega dóma, hlaut norsku gagnrýnendaverðlaunin og var síðan tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2019.

Fuglamál
5.290 kr.Ída er ekkert venjulegt barn. Hún hagar sér undarlega, talar tungum og á ósýnilegan vin, fuglinn Pótó. Brynja er sannfærð um að dóttir hennar sé andsetin og eftir því sem áhyggjur hennar aukast fara yfirnáttúrulegir atburðir að trufla veruleikaskynjun þeirra beggja. Meðan Hafliði vinnur að myndlistarsýningu með hópi flóttamanna leitar Brynja allra leiða til að fá skýringu á hegðun dóttur þeirra, og hvað það þýðir að vera foreldri.
Fuglamál er samtímasaga með hryllingsívafi um ást og aktívisma, listir og barneignir en fyrst og fremst allt hið óvænta og vandasama við móðurhlutverkið.
Marta María Jónsdóttir er myndlistarmaður og rithöfundur. Hún er með meistarapróf í ritlist frá Háskóla Íslands og í myndlist frá Goldsmiths, University of London. Marta hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningu í Sverrissal í Hafnarborg. Fuglamál er hennar fyrsta skáldsaga.


Litlar konur
4.690 kr.Litlar konur (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.
Bókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á nítjándu öld. Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.
Hugljúf og skemmtileg skáldsaga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.
Louisa May Alcott (1832–1888) var þekktur feministi á sinni tíð og tók einnig þátt í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds. Litlar konur er frægasta bók hennar. Hún byggir að hluta á æsku hennar sjálfrar. Alcott barðist hart fyrir því að konur fengju kosningarétt og var fyrsta konan til að skrá sig sem kjósanda í bænum Concord í Massachusetts.
Endurskoðuð þýðing Páls Skúlasonar ritstjóra.

Júlía
4.690 kr.Áhrifamikil og djörf endursköpun á skáldsögunni frægu 1984 eftir George Orwell þar sem varpað er ljósi á líf kvenna í Eyjaálfu.
Hér beinist sjónarhornið að Júlíu, einni dularfyllstu persónu 1984. Kæfandi veruleiki Eyjaálfu lifnar við á nýjan og óhugnanlegan hátt og afhjúpar það sem þarf til að lifa af undir stöðugu eftirliti Stóra bróður. Á endanum neyðist Júlía til að horfast í augu við mörk frelsis, sannleika og langana í samfélagi sem byggist á algjörri stjórn.
Mögnuð skáldsaga sem býður jafnframt upp á ferska sýn á hið sígilda verk Orwells.
Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.
* * * * * „Meistaraverk.“ The Telegraph
„Glæsileg skáldsaga.“ Booklist
„Skrifuð af mikilli list.“ The Times
„Heillandi ígrundun á alræðisstefnu eins og hún speglast í samtíma Orwells og okkar eigin.“ Guardian
„ Áhrífamikil … Newman nær að gefa öllum konunum rödd og best tekst henni endursköpun Júlíu sjálfrar sem er ekki lengur bara peð, svikin kona, heldur fullkomlega mótuð kraftmikil persóna, kona sem lifir af í hættulegum heimi.“ Irish Times
Auk Júlíu hefur bandaríska skáldkonan Sandra Newman meðal annars sent frá sér bækurnar The Country of Ice Cream Star og The Western Lit Survival Kit.

Syngjandi steinn
4.690 kr.Í þessari bók rýnir skáldið, rithöfundurinn og bókmenntaprófessorinn Njörður P. Njarðvík í 39 ljóð eftir 38 af okkar fremstu skáldum. Njörður greinir uppbyggingu ljóðanna, merkingu þeirra og tilætluð áhrif í samspili orða, hljóms og menningar.
Ljóðrýni þessi á uppruna sinn í kennslu Njarðar í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og birtist í blöðum á sínum tíma en er hér safnað í eina heild í tímaröð bókmenntasögunnar.
Njörður P. Njarðvík (1936–), prófessor emeritus, hefur sent frá sér fjölda bóka – ljóð, skáldsögur, barnabækur, ævisögur, kennslubækur og fræðirit auk þýðinga. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf.

Fimmta barnið
4.690 kr.Fjögur yndisleg börn, fallegt gamalt hús, ástríkir ættingjar og vinir – líf Harriet og Davids Lovatt er hamingjusamt og gleðiríkt. En þegar fimmta barnið fæðist leggst dimmur skuggi yfir heimilislífið. Hinn ungi Ben er stór og ófrýnilegur, ofbeldisfullur og stjórnlaus. Harriet berst við að annast nýfætt barnið en stendur frammi fyrir myrkum og undarlegum mótþróa. Óttaslegin spyr hún sjálfa sig hvað það eiginlega sé sem hún hefur fætt í þennan heim …
Áhrifarík skáldsaga eftir Nóbelsverðlaunahafann Doris Lessing.
Ragnheiður Jónsdóttir íslenskaði.
„Það fer hrollur um mann við lesturinn en það er ómögulegt að leggja bókina frá sér … áhrifum hins undarlega og framandi barns á fjölskylduna er lýst af yfirvegun sem gerir vaxandi hryllinginn enn áhrifameiri.“ Sunday Times
„Lesið og skjálfið!“ Independent
Breski rithöfundurinn Doris Lessing (1919–2013) hlaut margskonar viðurkenningar fyrir verk sín, þar á meðal Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2007. Sjö bóka hennar hafa verið þýddar á íslensku, þar á meðal Grasið syngur (The Grass is Singing) í þýðingu Birgis Sigurðssonar, Minningar einnar sem eftir lifði (The Memoirs of a Survivor) í þýðingu Hjartar Pálssonar og Í góðu hjónabandi (A Proper Marriage) í þýðingu Fríðu Á. Sigurðardóttur. Af öðrum rómuðum skáldsögum hennar, auk Fimmta barnsins, má nefna The Golden Notebook og The Good Terrorist. Hún gaf einnig út sjálfsævisögu sína í tveimur bindum, Under My Skin og Walking in the Shade. Doris Lessing lést 17. nóvember 2013, 94 ára að aldri.
Ragnheiður Jónsdóttir hefur lokið BS-prófi í sálfræði. Hún hefur starfað við þýðingar frá því hún útskrifaðist úr meistaranámi í þýðingafræði frá Háskóla Íslands vorið 2024.

Í framlínu: lögreglumenn segja frá
5.490 kr.Í bókinni birtist lesandanum reynsla lögreglumanna og viðhorf þeirra til starfsins í gegnum þeirra eigin frásagnir, sem fela um leið í sér sögulegt yfirlit löggæslu síðustu 40 ára. Viðmælendur skipta tugum, eru af báðum kynjum og á öllum aldri, víðs vegar af landinu og búa að fjölbreyttum bakgrunni. Viðlíka innsýn hefur ekki áður verið gefin í lögreglustarfið hérlendi


Svanvængjuð þrá
5.190 kr.Svanvængjuð þrá er áttunda ljóðabók metsöluhöfundarins Valdimars Tómassonar. Hér er ort um brostnar vonir, sorg og tilgangsleysi á einstaklega næman og fínlegan hátt. Formið sækir Valdimar til þríhendunnar en kveður þó með sínu lagi.

Harðindi
4.790 kr.Steinn leggur ríðandi af stað úr bænum og ætlar aldrei að snúa aftur. Hann hefur misst trúna á framtíðina eftir að lífið í landinu fór snarversnandi á aðeins örfáum árum. Hrakinn og særður er hann á mörkum þess að gefast upp þegar loks sjást blikur á lofti.
Harðindi er spennandi og áleitin frásögn af ferðalagi manns og merar á nöturlegum tímum.Vilhjálmur Pétursson hefur starfað við þýðingar síðan hann útskrifaðist úr ritlist við Háskóla Íslands. Harðindi er fyrsta bók hans en sagan bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2026.
Salka Valka
9.990 kr.Sagan af uppvexti og þroska hinnar stoltu og sterku Sölku Völku á Óseyri við Axlarfjörð er í senn saga þorps og svipmikilla einstaklinga. Í þorpinu ræður kaupmaðurinn lögum og lofum en lífsbarátta alþýðunnar er hörð og óvægin. Þegar nýir vindar blása um samfélagið fara átakatímar í hönd – en ávallt leika ást og dauði undir.
Salka Valka er meðal þekktustu skáldsagna Halldórs Laxness. Hún kom upphaflega út í tveimur bindum 1931–1932 og hefur verið gefin út margoft síðan heima og erlendis.
Sjálfstætt fólk
9.990 kr.Saga hins þrjóska einyrkja, Bjarts í Sumarhúsum, og baráttu hans við allt og alla er bæði þjóðleg og alþjóðleg – sígild frásögn af hlutskipti fátæks fólks í hörðum heimi. Magnaðar persónulýsingar og djúpur mannskilningur gera þessa miklu sögu að óviðjafnanlegu bókmenntaverki þar sem leikið er á strengi andstæðra tilfinninga af stakri snilld.
Sjálfstætt fólk er þekktasta skáldsaga Halldórs Laxness og sú sem víðast hefur ratað. Hún kom fyrst út í tveimur bindum 1934–1935 og hefur verið gefin út margsinnis síðan á ótal tungumálum.
Samfélag heilagra
4.590 kr.Samfélag heilagra er rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin. Sex höfundar flétta saman sjálfssögum um vígslur, veislur og nýtt upphaf þar sem tekist er á við spurningar um hlutverk trúarbragða í nútímanum og kannað hvernig manneskjan mótar sjálfsmynd sína í tengslum við það samfélag sem hún tilheyrir.
„Og þetta er það sem er virkilega í húfi, Síta – þetta samfélag heilagra. Ekki heilagra manna og kvenna, ekki heilags anda eða orða, heldur tengsla – tengsla sem binda okkur hvert við annað…“
Bókin er samstarfsverkefni meistaranema í ritlist og hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands

Í fylgd norðanpósts í 150 ár
5.190 kr.Var póstur kominn?
Nú ætlar honum að seinka!Magnús Pétursson fór á árunum 2021 til 2023 gangandi og á hestum milli Reykjavíkur og Skagafjarðar og fylgdi á ferðalaginu slóð norðanpósta fyrri tíðar sem fóru vegleysur og yfir heiðar og ár í öllum veðrum. Hann fer yfir póstsöguna, rifjar upp frásagnir um hetjudáðir landpósta og hrakninga og segir frá þætti þeirra í því að færa fólki nauðsynlega upplýsingu og fróðleik til að efla vitund þess um eigin getu í framfarasókn þjóðarinnar. Þetta er alvöruþrungin frásögn en oft í gamansömum tón.





