Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |
4.690 kr.
Í þessari bók rýnir skáldið, rithöfundurinn og bókmenntaprófessorinn Njörður P. Njarðvík í 39 ljóð eftir 38 af okkar fremstu skáldum. Njörður greinir uppbyggingu ljóðanna, merkingu þeirra og tilætluð áhrif í samspili orða, hljóms og menningar.
Ljóðrýni þessi á uppruna sinn í kennslu Njarðar í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og birtist í blöðum á sínum tíma en er hér safnað í eina heild í tímaröð bókmenntasögunnar.
Njörður P. Njarðvík (1936–), prófessor emeritus, hefur sent frá sér fjölda bóka – ljóð, skáldsögur, barnabækur, ævisögur, kennslubækur og fræðirit auk þýðinga. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |