


Sérðu það sem ég sé
1.290 kr.Sérðu það sem ég sé hefur að geyma tólf listilega samansettar smásögur sem veita ferskum og kitlandi andblæ inn í líf lesandans. Hér sýnir Þórarinn Eldjárn enn á ný að fáir standa honum á sporði í smásagnagerð.
Sögurnar eru ólíkar að efni og stil. Allar bera þær hins vegar merki einstakrar frásagnargáfu þar sem saman fer hnitmiðuð uppbygging og örugg tök á tungumálinu. Gamansemin er ismeygileg en reynist oft egghvöss þegar betur er að gáð og kippir stundum fótunum undan lesandanum.
Þórarinn kemur víða við í sögunum enda er honum fátt óviðkomandi. Hér segir af hremmingum íslenskra ungmenna í París, afdrifaríkum feluleik barna á Íslandi, deilum jurtasafnara og fuglaskoðara, magnaðri níðstöng og vandamálum við skráningu örnefna á íslenskum landnámsjörðum, svo fátt eitt sé nefnt.
Bækur Þórarins Eldjárns hafa um árabil notið mikilla vinsælda. Sérðu það sem ég sé mun án vafa auka hróður hans enn frekar.

Sýrópsmáninn
1.290 kr.Ungur maður, sem missti vinnuna á Vísindavefnum fyrir að svara út í hött, heldur í sumarleyfi til Ítalíu ásamt eiginkonu og syni. Í farteskinu eru leifar af órædri þoku sem lagst hefur yfir Reykjavík og landið allt, minningar um ástir sem farið hafa forgörðum og sorgir sem aldrei hafa verið færðar í orð.
Sýrópsmáninn er listilega skrifuð bók um fermingarmyndir í fjöru, boku sem mátar skó og hið tortimandi afl ástarinnar.
Eiríkur Gudmundsson hlaut mikið lof fyrir síðustu skáldsögu sína Undir himninum, meðal annars sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins: „Það er nautn að lesa textann og sagan er í senn fyndin, írónísk, persónuleg, kátbrosleg, ljúfsár og melankolísk.“
„Þetta er skemmtilegur texti og furðulegur. Hann fengi í mínum kladda fimm stjörnur væru þær gefnar.“
– Páll Baldvin Baldvinsson um Undir himninum

Sumarljós, og svo kemur nóttin
1.990 kr.Við ætlum ekki að segja frá öllu þorpinu, förum ekki hús úr húsi, en hér verður þó örugglega sagt frá girndinni sem hnýtir saman daga og nætur, frá einmana bónda og fjögur þúsund ára gamalli múmíu. Við segjum frá hversdagslegum atburðum, en líka þeim sem eru ofvaxnir skilningi okkar; menn hverfa, draumar breyta lífi. Og að sjálfsögðu ætlum við að segja þér frá nóttinni sem hangir yfir okkur, frá dögunum sem koma og fara, frá fuglasöng og síðasta andartakinu – þetta verða áreiðanlega margar sögur.
Jón Kalman Stefánsson hefur á undanförnum árum skapað persónulegan og seiðandi sagnaheim í röð tengdra skáldsagna og smásagna. Tvö þessara verka, Sumarið bakvið brekkuna og Ýmislegt um risafurur og tímann, voru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á sínum tíma. Jón Kalman heldur hér áfram að víkka út sagnaheim sinn, nú með þessu óvenjulega safni tengdra sagna og brota. Sögusviðið er smáþorp á Vesturlandi þar sem hver íbúinn á fætur öðrum reikar ráðþrota um villugjörn öngstræti hjartans.


Glæpur við fæðingu
1.290 kr.Stórmerkileg saga uppistandarans og stjórnmálaskýrandans Trevor Noah sem ólst upp í skugga aðskilnaðarstefunnar í Suður-Afríku: Sjálf tilvist hans var glæpur, því samband móður hans og föður af ólíkum hörundslit var refsivert á þeim tíma. Trevor segir á heillandi hátt frá æsku sinni og unglingsárum í samfélagi sem enn er í sárum, fyrstu skrefunum í skemmtanabransanum og trúrækinni móður sem opnaði fyrir honum heiminn.
Trevor Noah (f. 1984) hefur vakið mikla athygli fyrir hárbeitta þjóðfélagsrýni í þættinum The Daily Show í Bandaríkjunum sem hann hefur stýrt frá árinu 2015. Hann er vinsæll uppistandari og má nálgast heimildarmyndir um hann á Netflix. Kvikmynd er í bígerð. Glæpur við fæðingu var valin ein besta bók ársins af helstu fréttamiðlum Bandaríkjanna þegar hún kom út. Bók sem sameinar kynslóðir í lestri. Besta þýdda bók ársins 2019 að mati bóksala á Íslandi. Sjöunda bókin í áskriftarröð Angústúru.

Guli kafbáturinn
1.290 kr.Rithöfundur á miðjum aldri hefur komið sér fyrir í almenningsgarði í London. Hann á brýnt erindi við Paul McCartney, sem situr þar undir tré, en fortíðin truflar hann í sífellu og sækir að honum í líki gamals Trabants með rauðu þaki. Í bílnum sitja faðir hans, Guð með vodkaflöskuna, og Johnny Cash með gítarinn í aftursætinu, og fleiri bætast í hópinn; Sesselja gamla og Guðmundur á fjórðu hæðinni, Jesús og mamma hans, heill kirkjugarður af dánu fólki, Benjamín ökukennari og Örn Örlygsson, sem grefur upp 5000 ára gömul ljóð á súmerskum leirtöflum. Þetta er skáldsaga um listina, dauðann og þó miklu frekar um lífið, undursamlegan lækningamátt ímyndunaraflsins og Bítlana.

Ýmislegt um risafurur og tímann
990 kr.„Amma og afi. Tvö orð sem geta hughreyst mann eins og trúarbrögð, eins og risafura.“
Ég er tíu ára og allt leikur í lyndi. Borgirnar breyta ekki um nöfn meðan ég sef, járntjaldið heldur heiminum saman, ósonlagið kemst aldrei á forsíður blaða. Og nú hafa örlögin úthlutað mér löngu útlensku sumri í húsi afa og ömmu. Ævintýrin suða í loftinu, Tarzan og Léttfeti á næsta leiti. En það er kónguló undir rúminu og einhvers staðar í hverfinu leitar fáklædd kona að lyklinum að hliði himnaríkis.


Einar ríki – Fagur fiskur í sjó
2.990 kr.Einar ríki
II. bindi
Fagur fiskur í sjó
Þórbergur Þórðarson skráði
