

Dagbók Hélène Berr
1.290 kr.Hélène Berr var ung stúlka af gyðingaættum sem bjó við gott atlæti hjá velstæðum foreldrum sínum í París og stundaði nám við Sorbonne-háskóla þegar síðari heimsstyrjöldin skall á. Það þrengdi sífellt meira að fjölskyldunni eins og öðrum gyðingum sem var smám saman útskúfað úr samfélaginu.
Hélène byrjaði að skrifa dagbók árið 1942 en síðasta færslan er 15. febrúar 1944, daginn sem hún er tekin höndum, og endar á tilvitnun í Macbeth: „Ó skelfing! skelfing! skelfing!“Þessari einstöku dagbók hefur verið líkt við „Dagbók Önnu Frank“, báðar stúlkurnar létu lífið skömmu áður en stríðinu lauk en höfðu lengi þraukað og barist við að gera það besta úr hörmulegum aðstæðum. Sögur þeirra eru þó gjörólíkar. Hélène Berr, hin 22ja ára listhneigða Parísarstúlka, hefur nýlega eignast kærasta. Ekki síst hans vegna skrásetur hún hugleiðingar sínar, þrár og væntingar og atburðina sem lýsa jöfnum höndum þjóðfélagsástandinu og sálarástandi hinnar ástföngnu og hæfileikaríku stúlku.
Minningarnar eru einstaklega vel skrifaðar, hjartnæmar og hrífandi enda hlaut bókin gríðarlega athygli þegar hún kom út í Frakklandi í janúar 2008 og þaut beint á metsölulista.
„Við upphaf þessarar bókar er við hæfi að þegja, hlýða á raust Hélène og ganga henni við hlið. Rödd og nærvera sem fylgir okkur ævilangt.“ – Patrick Modiano (úr formála)

Coal Black Mornings
990 kr.Brett Anderson came from a world impossibly distant from rock star success, and in Coal Black Mornings he traces the journey that took him from a childhood as ‘a snotty, sniffy, slightly maudlin sort of boy raised on Salad Cream and milky tea and cheap meat’ to becoming founder and lead singer of Suede.
Anderson grew up in Hayward’s Heath on the grubby fringes of the Home Counties. As a teenager he clashed with his eccentric taxi-driving father (who would parade around their council house dressed as Lawrence of Arabia, air-conducting his favourite composers) and adored his beautiful, artistic mother. He brilliantly evokes the seventies, the suffocating discomfort of a very English kind of poverty and the burning need for escape that it breeds. Anderson charts the shabby romance of creativity as he travelled the tube in search of inspiration, fuelled by Marmite and nicotine, and Suede’s rise from rehearsals in bedrooms, squats and pubs. And he catalogues the intense relationships that make and break bands as well as the devastating loss of his mother.
Coal Black Mornings is profoundly moving, funny and intense – a book which stands alongside the most emotionally truthful of personal stories.

Ferð höfundarins
990 kr.„Grundvallarrit fyrir kvikmyndagerðarfólk frábær leiðarvísir fyrir áhorfendur.“ – Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri.
HUGMYNDAHEIMUR GOÐSAGNA Í KVIKMYNDUM OG SKÁLDSKAP
Ferð höfundarins byggir á verkum goðsögufræðingsins Josephs Campbell. Hún sýnir hvaða aðferðum sagnaþulir á borð við Steven Spielberg og George Lucas hafa beitt við að semja sögur, hvernig kvikmyndir þeirra endurspegla goðsögulegan arf sem borist hefur milli kynslóða frá upphafi vega.
Bókin er afar hagnýt þeim sem fást við ritsmíðar og unna góðum sögum og kvikmyndum. Hún afhjúpar hið dulda mynstur sem býr í goðsögunum, mynstur sem varpar ljósi á líkamsbyggingu mannssálarinnar.
Bókin sýnir rithöfundum og kvikmyndagerðarmönnum hvernig söguþráður er byggður upp og við hvaða aðstæður persónur bera grímur stofngerðanna, til dæmis fórnarlambsins eða elskhugans. Tekinn er fjöldi dæma úr kvikmyndum, skáldskap og goðsögum, m.a. norrænum.
Höfundur bókarinnar Christopher Vogler er bókmenntafræðingur með ævintýri og goðsögur að sérsviði. Hann hefur metið og vegið fjölda kvikmyndahandrita fyrir flest stóru kvikmyndaveranna í Hollywood, þar á meðal Walt Disney, þar sem hann var sérstakur ráðgjafi við gerð hinna vinsælu teiknimynda um litlu hafmeyjuna og Fríðu og dýrið.
Í þessari annarri útgáfu bókarinnar á íslensku eru yfir 150 blaðsíður af nýju efni. Meðal annars greining á Reyfara eftir Quentin Tarantino og Titanic eftir James Cameron. Einnig er þar að finna afar fróðlegan kafla um hvernig líffæri líkamans bregðast við sögum.
„Öll vötn falla til Dýrafjarðar. Allir vegir liggja til Rómar. Hjörtum mannanna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu. Þessi bók útskýrir skýrt og skorinort, hvernig þá og hversvegna, svo er.“ – Ásgrímur Sverrisson leikstjóri og handritshöfundur.

Péturspostilla: Hugvekjur handa Íslendingum
990 kr.Dögum oftar er höfundurinn beðinn um álit, skoðun, ávarp, hugvekju, ræðu, grein eða erindi. Afstaða undirritaðs hefur jafnan verið á eina lund: að segja já – trúr því hugboði að hlutverk höfundarins sé að skipta sér af því sem honum kemur ekki við. Berhentur, umboðslaus, oftar en ekki ólaunaður, en sannfærður um að leitin að merkingu sé leiðin til að ljá lífi okkar merkingu.
Péturspostilla – hugvekjur handa Íslendingum geymir safn erinda og greina sem Pétur Gunnarsson hefur tekið saman í áranna rás. Hér er komið víða við, sjálfsagðir hlutir settir glænýtt samhengi og aðrir sem ekki hafa endilega verið efstir á baugi eru kynntir til sögu með minnisstæðum hætti. Útkoman er lík öðru sem komið hefur frá höfundinum full af húmor, frumlegri hugsun og föstum tökum þess sem kann að láta ‚hugvekju‘ rísa undir nafni og gildir þá einu hvort nærföt eru til umfjöllunar, samgöngumál eða staða íslenskrar tungu.

Fellur mjöll í sedrusskógi
1.990 kr.ÞAÐ ER ÁRIÐ 1954 og sögusviðið er eyjan San Piedro úti fyrir ströndum Washingtonfylkis í Bandaríkjunum. Þar búa sjómenn og bændur, bæði af evrópsku og japönsku bergi brotnir og þarna mætast straumar úr ólíkum menningarheimum.
Fiskimaðurinn Carl Heine finnst látinn við dularfullar kringumstæður og böndin berast fljótlega að Kabuo Miyomoto sem er ákærður fyrir morð. Söguþráðurinn spinnst í kringum réttarhöldin yfir Kabuo sem ýfa upp vantraust og fordóma margra eyjarbúa gagnvart fólki af japönskum ættum eftir síðari heimsstyrjöld. Og æskuástin rifjast upp fyrir Ishmael Chambers, ritstjóra fréttablaðs eyjarinnar.
David Guterson kann þá list að heilla lesendur sína. Hann magnar upp andrúmsloftið á eyjunni San Piedro svo að persónurnar og samskipti þeirra, náttúran og veðrið, sagan öll, verða ljóslifandi í huga lesenda og grípa þá sterkum tökum.
Fellur mjöll í sedrusskógi hefur farið sigurför um heiminn á undanförnum árum og verið þýdd á fjölda tungumála.
Árni Óskarsson þýddi.

Myndin af Dorian Grey
3.990 kr.. . . Það er ekki unnt að hrinda fegurðinni af stóli; hún hefur guðdómlegan rétt til að drottna. Þeir sem eiga hana eru konungar . . .
Dorian Gray var fagur eins og grískur guð. Hann óskaði þess að mega halda í æsku sína og fegurð og sú þrá hans er kveikjan að þessari mögnuðu sögu. Honum er færð mynd af sér að gjöf og verður að ósk sinni með þeim hætti að myndin tekur á sig viðurstyggð elli og spillingar á meðan Dorian Gray heldur æskuþokka sínum óspilltum. Þegar fram í sækir reynist hann hafa selt sál sína fyrir fegurðina rétt eins og Galdra-Loftur fyrir þekkinguna.
Bókin kom fyrst út árið 1890 og þykir útmála vel upplausn og andlegar hræringar aldarlokanna. Þannig bregður sagan upp mynd af sæta liðinu“ í London: lífsnautnastefnu þess, skrautgirni og fegurðardýrkun, en um leið ýmsum skuggahliðum: sjálfbirgingshætti, mannfyrirlitningu og tærandi iðjuleysi. Bókin vakti úlfaþyt á sínum tíma og var meðal annars í miklu uppáhaldi hjá ungum íslenskum rithöfundum og menntamönnum upp úr aldamótum. Í henni er krökkt af þeirri orðheppni sem Oscar Wilde varð svo frægur fyrir og mörg spakmæli hennar hafa orðið klassísk.
Sagan kom út í íslenskri þýðingu Sigurðar Einarssonar 1949. Sú þýðing hefur lengi verið ófáanleg og kemur nú út á ný með smávægilegum lagfæringum.





