Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2018 |
| Form | Sveigjanleg kápa |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
Á mörkum mennskunnar – Viðhorf til förufólks í sögum og samfélagi
Í bókinni er fjallað um förumennsku í íslenska bændasamfélaginu, allt frá miðöldum til loka 19. aldar. Gefið er sögulegt yfirlit yfir þróunina og fjallað um fjölda förumanna, samsetningu hópsins og viðhorfin til þeirra á ólíkum tímum. Auk þess er athyglinni beint að lögum og reglum sem giltu um flakk og jafnframt óskráðum siðaboðum sem einkenndu samfélagið og samhjálparkerfi þess. Fjallað er um fjölmarga einstaka flakkara og leitast við að láta sögu þeirra og sögur um þá varpa ljósi á ákveðin hugtök sem tengjast samfélaginu, eins og vald og valdbeitingu, félagslegt taumhald, vinnusemi og viðhorf til vinnunnar, gestrisni og samhjálp. Hörmulegt atlæti Stuttu-Siggu í æsku, skringileg skemmtiatriði Halldórs Hómers, rifin klæði Jóhanns bera og uppreisnarseggurinn Sölvi Helgason koma öll við sögu ásamt fleirum. Jafnframt er fjallað um þjóðsögur og sagnir um förufólk, sagnamyndun um þennan hóp sem var gríðarlega mikil, þjóðtrú tengda förufólki og samspil sagnahefðarinnar við ímynd hópsins og viðhorf til hans.
Í bókinni er einnig fjallað um helstu heimildaflokka sem nýttir eru við rannsóknina, enda eru þeir óvenjulega fjölbreyttir og notkun þeirra krefst umtalsverðrar heimildarýni. Á meðal þessara heimilda eru svör við spurningalistum á Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins, viðtöl á Segulbandasafni Stofnunar Árna Magnússonar, þjóðsögur, sagnaþættir og ævisögur. Fræðileg umræða um heimildirnar og um förumennskuna sjálfa er einnig fyrirferðamikil í bókinni og hugað að fyrri rannsóknum á förufólkinu hér á landi.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2018 |
| Form | Sveigjanleg kápa |
| Ástand | notuð |