
Valtýr Pétursson
2.990 kr.Bókin um Valtýr Pétursson Í er nýjasta útgáfuverk Listasafns Íslands. Valtýr Pétursson var í hópi þeirra listamanna sem settu hvað strekastan svip á eftirstríðsárin á Íslandi. Hann var meðal brauðryðjanda abstraktlistar hér á landi, afkastamikill málari, gagnrýnandi og virkur þáttakandi í félagstarfi listamanna.
Bókin um Valtý og verk hans er samvinnuverkefni Listasafn Íslands og Listaverkasafns Valtýs Péturssonar.

Tómas Jónsson metsölubók
990 kr.„Hver er Tómas? Er hann við öll? Er hann tákn íslensku þjóðarinnar eins og hún er í dag, andlega og líkamlega karlæg?“
Tómas Jónsson metsölubók vakti bæði úlfúð og aðdáun þegar hún kom út árið 1966. Menn skiptust í flokka, með eða á móti skáldverkinu og margir sökuðu höfundinn um niðurrifsstarfsemi. Þar örlaði hvergi á „heilbrigðu mótvægi við sorann“. En aðrir tóku Tómasi Jónssyni afburðavel og spáðu nýjum tímum í íslenskum bókmenntum.
„Kraumandi seiðketill, þar sem nýtt efni, nýr stíll kann að vera á seyði. Fátt er líklegra en að sagan verði þegar frá líður talin tímamótaverk í bókmenntaheiminum: Fyrsta virkilega nútímasagan á íslensku.“
– Ólafur Jónsson„Bókin er borin uppi af furðulega sterkri skynjun og næmi sem vel má kalla ofnæmi… myndir hennar eru hlaðnar upp af satanísku fjöri… Það verður bæði auðveldara og erfiðara að skrifa skáldsögur á íslensku eftir tilkomu Tómasar Jónssonar.“
– Árni Bergmann„Guðbergur Bergsson hefur í ritum sínum brotið nýjum veruleika braut inn í íslenskar bókmenntir, auðgað þær af nýrri tóntegund.“
– Sigfús DaðasonNý útgáfa með formála höfundar.

Auður
990 kr.Auður Ketilsdóttir flatnefs vex upp á Suðureyjum, ættstór og skapheit. Allt hennar fólk er heiðið en þegar hún kynnist Gilla munki laðast hún að boðskap hans um Hvítakrist. Hún er gefin Ólafi hvíta konungi í Dyflinni og fer til Írlands með honum. En þangað á hún líka annað erindi og leynilegt…
Vilborg Davíðsdóttir hefur gert líf á norðurslóðum á fyrri öldum að sérsviði sínu. Saga hennar um æskuár landnámskonunnar Auðar djúpúðgu var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og vakti mikla ánægju lesenda og gagnrýnenda.
„Vilborg bregður upp skýrri og grípandi mynd af persónum sínum og því lífi sem þær lifðu: Lesandinn finnur lyktina af þeim, heyrir raddir þeirra, sér þær ljóslifandi … Skemmtileg og innihaldsrík saga …“
– Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið„… yndisleg bók … þroskasaga Auðar djúpúðgu verður í meðförum Vilborgar bæði sterk og heillandi.“
Jenný Anna Baldursdóttir, bókabloggari„Þetta er saga sem kveikir áhuga á landnámskonunni Auði… skemmtileg og spennandi…“
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir / bokmenntir.is
Á eigin vegum
990 kr.Sigþrúður er ekkja og vinnur fyrir sér með blaðburði. Hún ræktar garðinn sinn, hugsar um kettina og sækir jarðarfarir. Hún er ein en ekki einmana; allt frá barnæsku hefur lífið kennt henni að treysta ekki á aðra. Fólkið hennar er horfið á braut og hún fylgir því í huganum en situr sjálf um kyrrt. Djúpt í sálinni búa þó draumar um annað líf, annað land. Geta draumarnir ræst?
Kristín Steinsdóttir hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sin og nafn hennar er þekkt langt út fyrir landsteinana. Á eigin vegum hefur fengið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.
„Það er alltaf gaman að láta koma sér á óvart… [Verk] sem… er svo miklu meira umfangs en útlitið gefur til kynna.”
– Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is„Kristin slær einhvern óútskýranlegan tón Og skilar af sér frábærri bók… sem skilur ekki við lesandann fyrr en löngu eftir að lestri lýkur.”
– Óttar Martin Norðfjörð, DV„Snertir við lesandanum á áhrifaríkan hátt… Hér er engu ofaukið og ekkert vantar.”
– Auður Aðalsteinsdóttir, Víðsjá RÚV
Útlaginn
990 kr.Jón Gunnar Kristinsson er nýfermdur pönkari í Reykjavík sem er sendur í skóla vestur að Núpi í Dýrafirði. Á meðan fjöllin sofa sínum eilífa svefni iðar allt annað af lífi og drengurinn sem snýr aftur tveimur árum seinna er orðinn maður. En enginn venjulegur maður. Enda var það ekkert venjulegt sem gerðist. Örlög útlagans eru óumflýjanleg. Við tekur stefnulaus ferð um borg óttans.
Útlaginn er þriðja skáldævisaga Jóns Gnarr. Áður hafa komið út Indjáninn og Sjóræninginn. Hér rekur Jón sögu sína á aldrinum fjórtán til nítján ára af djúpri einlægni og alkunnum húmor. Með höfundur bókarinnar er Hrefna Lind Heimisdóttir.

Indjáninn
990 kr.Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu. Þetta er áhrifamikil uppvaxtarsaga sem sveiflast á milli strákslegrar gleði og nístandi einmanaleika þess sem ekki er alltaf í takt við umhverfið, en jafnframt er hér brugðið upp ljóslifandi mynd af samfélagi áttunda áratugarins frá sjónarhorni barnsins.

Litvindar
4.890 kr.Björg Örvar er myndlistarkona og skáld. Um tíu ára skeið bjó hún á Stokkseyri og var þar með vinnustofu. Dvölin á Stokkseyri var henni mikill innblástur og eru flest ljóðin þaðan runnin. Áður hafa komið út eftir Björgu ljóðabók og skáldsaga.

Íslenskar bókmenntir: Saga og samhengi
4.990 kr.Íslenskar bókmenntir: saga og samhengi er tveggja binda verk um sögu íslenskra bókmennta frá upphafi Íslandsbyggðar til vorra daga. Þar er sagan rakin á knappan hátt í samhengi við strauma og stefnur hvers tíma og er sú umfjöllun grundvölluð á rannsóknum seinustu áratuga.
Höfundar efnis:
Aðalheiður Guðmundsdóttir
Ármann Jakobsson
Ásta Kristín Benediktsdóttir
Jón Yngvi Jóhannsson
Margrét Eggertsdóttir
Sveinn Yngvi Egilsson
Ský – tímarit – nr. 7
2.990 kr.Einar Bragi – Tvö ljóð
Raymond Carver – Fimm ljóð
Bárður R. Jónsson – Tvö ljóð
Jón Karl Helgason 1– Þrá í augum
Kristján B. Jónasson – Úr plöntubókinni
Marína Tsvetajeva – Ljóð
Árni Árnason – Sama og síðast
Bjarni Bernharður – Tvö ljóð
Þorsteinn J. Vilhjálmsson – Tveir textar
Gunnar E. Randversson – Tvö ljóð
Hokusai – Hinn ákafi nemandi


