• We Do Not Part

    We Do Not Part

    Beginning one morning in December, We Do Not Part traces the path of Kyungha as she travels from the city of Seoul into the forests of Jeju Island, to the home of her old friend Inseon. Hospitalized following an accident, Inseon has begged Kyungha to hasten there to feed her beloved pet bird, who will otherwise die.

    Kyungha takes the first plane to Jeju, but a snowstorm hits the island the moment she arrives, plunging her into a world of white. Beset by icy wind and snow squalls, she wonders if she will arrive in time to save the bird – or even survive the terrible cold which envelops her with every step. As night falls, she struggles her way to Inseon’s house, unaware as yet of the descent into darkness which awaits her.

    There, the long-buried story of Inseon’s family surges into light, in dreams and memories passed from mother to daughter, and in a painstakingly assembled archive documenting a terrible massacre on the island seventy years before.

    We Do Not Part is a hymn to friendship, a eulogy to the imagination and above all an indictment against forgetting.

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Vegur allrar veraldar (kilja)

    Vegur allrar veraldar (kilja)

    Haustið 1479 kemur kona norður yfir Kjöl og teymir hest undir gömlum manni. Skáldið Sveinn döggskór Þórðarson er kominn í Reynistaðarklaustur til að deyja. Þó ekki fyrr en hann hefur skrásett sannleikann um atburðina í Rifi, þegar Englendingar drápu Björn Þorleifsson, hirðstjóra konungs á Íslandi. Vígið kveikti ófriðarbál innanlands og utan, og kona Björns, Ólöf ríka Loftsdóttir, hefndi bónda síns svo grimmilega að sögur hafa gengið um það allar götur síðan.

    En hvað af því er satt og hvað er logið, og hverjum leyfist að segja söguna?

    Löngu síðar, á tímum samfélagsmiðla og örbylgjupizza, reynir sagnfræðingurinn Eyjólfur Úlfsson að endurheimta akademískan orðstír sinn eftir að hafa óvart eyðilagt ómetanlegt fornrit. Þær hrakfarir leiða hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann rekur sig eftir ólíkindalegri slóð handrita og miðaldaklæða í átt að sannleikanum um atburðina í Rifi.

    Fimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar ljóslifandi fram: riddarar og sjóræningjar, konungar, hirðstjórar og höfðingjar, en líka fólkið sem þjónaði þeim og reyndi að ávinna sér frelsi og frið á vægðarlausum upplausnartímum.

    Vegur allrar veraldar – skálkasaga – er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims – riddarasögu, sem kom út 2022 og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Huldukonan (kilja)

    Huldukonan (kilja)

    Konurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra, með alla sína augljósu mannkosti, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Þær eru raunar hættar að hnýsast í hagi Sigvalda, því í hvert skipti verður augnaráð hans átakanlega tregafullt.

    Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku í fanginu og neitar að svara því hver sé móðir barnsins. Konurnar í fjölskyldunni hefja sína eigin rannsókn á málinu og smám saman hrannast sönnunargögnin upp: saga Lohr ættarinnar, þjóðsögurnar í Dýrleifarvík, leyndardómur um týnt barn og móður sem hvarf, undarlegir draumar, óvenjuleg hegðun Sigvalda og dulmagn hamranna í hlíðinni.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Nýtt nafn - Sjöleikurinn VI-VII

    Nýtt nafn – Sjöleikurinn VI-VII

    Nýtt nafn er þriðja og síðasta bindið í stórvirki norska Nóbelshöfundarins Jons Fosse, hinum svonefnda Sjöleik. Hér er á ferðinni seiðmagnað verk þar sem lífsbarátta og hugsjónir mætast. Undir sléttu yfirborði ólga heitar tilfinningar og glíma við drykkjuskap tekur sinn toll. Í samspili gleði og sorgar er samt óbilandi trúin á náð Guðs alltumlykjandi.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Pensilskrift

    Pensilskrift

    Tímamótaverk með hátt í 200 smáprósum sem rúma ótal persónur, þankabrot og atburði með fjölþættum spunaþráðum. Upphaflega gefin út ásamt systurbókinni, Þöglu myndunum, haustið 2022 og hlaut frábærar viðtökur en seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Þöglu myndirnar

    Þöglu myndirnar

    Margradda og magnað verk! Vel á annað hundrað smáprósar, þar sem birtist fjöldi persóna og alls kyns óvænt atvik eiga sér stað. Ásamt systurbókinni, Pensilskrift, sem kom samtímis út haustið 2022, hlaut bókin afar góðar viðtökur og seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Ljóðasafn IV – Gyrðir Elíasson

    Ljóðasafn IV – Gyrðir Elíasson

    Fjórða bindið af ljóðasafni Gyrðis geymir 3 bækur sem hafa verið ófáanlegar um langt skeið en eru nú saman komnar í einu lagi í vandaðri heildarútgáfu á verkum skáldsins. Hér birtast Upplitað myrkur, Nokkur almenn orð um kulnun sólar og Hér vex enginn sítrónuviður. Ómissandi verk í safn allra bókaunnenda.

    7.390 kr.
    Setja í körfu
  • Ótíð í víti

    Ótíð í víti

    Einstök og allt öðruvísi bók úr smiðju Gyrðis Elíassonar. Hér deilir hann með lesendum erfiðri lífsreynslu og dregur ekkert undan. Átakanleg og einlæg frásögn. Sannkölluð lífsreynslusaga.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Algjör Perla

    Algjör Perla

    Algjör Perla er glæný bók úr smiðju Jónínu Leósdóttur, sem hefur skrifað á þriðja tug bóka – þar á meðal tvær geysivinsælar glæpasagnaseríur kenndar við Eddu og Sáló ehf. Alþekkt kímnigáfa Jónínu nýtur sín sérstaklega vel í þessari margslungnu og hlýlegu sögu sem kemur sífellt á óvart.

    Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bévað líkið, sem getur alveg ómögulega verið áfram þar sem það er.

    En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri tekið til bragðs í slíkri stöðu? Vitanlega getur hún ekki blandað nokkrum í svo viðkvæmt mál. En það má komast ansi langt á þrjóskunni og hugvitinu einu saman … og stundum fær kona í neyð liðsauka úr óvæntustu átt.

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þórarinn Eldjárn - Úrval smásagna

    Þórarinn Eldjárn – Úrval smásagna

    36 smásögur úr áður útgefnum bókum, 1981-2021.

    Kristján Þórður Hrafnsson valdi sögurnar og ritaði eftirmála.

    9.990 kr.
    Setja í körfu
  • Edda – myndskreytt

    Edda – myndskreytt

    Snorri Sturluson skrifaði Eddu í Reykholti á árunum í kringum 1220. Verkið er eitt mikilvægasta framlag norrænna þjóða til evrópskar menningar og geymir fjölmargar skemmtilegar sagnir af hinum fornu goðum og hetjum: ævintýri guðanna gölmu, Óðins, Þórs, Baldurs, Freyju, Friggjar, Iðunnar og allra hinna, að ógleymdum hinum brögðótta Loka. Edda greinir einnig frá upphafi heimsins og endalokum hans í ragnarökum. Í þessari bók er birt úrval sagna og þær gerðar aðgengilegar almenningi.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Scenes from a Childhood

    Scenes from a Childhood

    Scenes From a Childhood is the latest collection of stories by Jon Fosse, one of Norway’s most celebrated authors and playwrights, famed for the minimalist and unsettling quality of his writing. In the title work, a loosely autobiographical narrative covers infancy to awkward adolescence, unearthing the moments of childhood that linger longest in the imagination. In ‘And Then My Dog Will Come Back To Me’, a haunting and dream-like novella, a dispute between neighbours escalates to an inexorable climax.

    Taken from various sources, the texts gathered here together for the first time demonstrate that the short story is one of the recurrent modes of Fosse’s imagination, and occasions some of his greatest works.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • A Clockwork Orange (Restored Edition)

    A Clockwork Orange (Restored Edition)

    Edited by Andrew Biswell With a Foreword by Martin Amis

    Fifteen-year-old Alex likes lashings of ultraviolence. He and his gang of friends rob, kill and rape their way through a nightmarish future, until the State puts a stop to his riotous excesses. But what will his re-education mean?

    A dystopian horror, a black comedy, an exploration of choice, A Clockwork Orange is also a work of exuberant invention which created a new language for its characters. This critical edition restores the text of the novel as Anthony Burgess originally wrote it, and includes a glossary of the teen slang ‘Nadsat’, explanatory notes, pages from the original typescript, interviews, articles and reviews, shedding light on the enduring fascination of the novel’s ‘sweet and juicy criminality’.

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Letters from Tove

    Letters from Tove

    “I find myself talking to you about all the great joys, all the agonies, all my thoughts…” Letter to Eva Konikova, 1946

    Out of the thousands of letters Tove Jansson wrote a cache remains that she addressed to her family, her dearest confidantes, and her lovers, male and female. Into these she spilled her innermost thoughts, defended her ideals and revealed her heart. To read these letters is both an act of startling intimacy and a rare privilege.

    Penned with grace and humour, Letters from Tove offers an almost seamless commentary on Tove Jansson’s life as it unfolds within Helsinki’s bohemian circles and her island home. Spanning fifty years between her art studies and the height of Moomin fame, we share with her the bleakness of war; the hopes for love that were dashed and renewed, and her determined attempts to establish herself as an artist. Vivid, inspiring and shining with integrity, Letters from Tove shows precisely how an aspiring and courageous young artist can evolve into a very great one.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Í hæfilegu magni

    Í hæfilegu magni

    Kraftmikil ljóðabók um litríka uppreisn gegn þeim þrönga stakki sem samfélagið sníður konum. Bók sem er of hávær, of fjörug og fjallar um allt of stórar tilfinningar.

    Í hæfilegu magni er fyrsta ljóðabók Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur (f. 1992) en hún bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2022 með sögunni Getnaði. Saga hennar Stúlkan sem skemmdi (næstum því) jólin varð hlutskörpust í samkeppninni um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2021.
    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Og svo varð ég forsetafrú

    Og svo varð ég forsetafrú

    Eliza Reid rifjar hér upp eftirminnilegan tíma sem forsetafrú Íslands og veitir lesendum innsýn í heim þar sem formlegheitin ráða ríkjum og opinberar heimsóknir og móttökur eru stór hluti af starfinu. Hún lét til sín taka í því sem henni þótti skipta máli, var óhrædd við að tala íslensku með erlendum hreim og hló að eigin mismælum. Hún talaði fyrir jafnrétti kynjanna og gerði góðlátlegt grín að þeirri þversögn að vera fyrst og fremst skilgreind út frá afrekum eiginmannsins.

    Í bókinni segir Eliza einnig frá uppvexti sínum í Kanada, árunum í Bretlandi, ferðalögum á fjarlægar slóðir og hvernig það var að flytja til Íslands og verða útivinnandi fjögurra barna móðir.

    6.990 kr.
    Setja í körfu
  • Collection Of Sand

    Collection Of Sand

    Italo Calvino claimed that ‘the brain begins in the eye’. The essays collected here display his fascination with the visual universe, in which the things we see tell a truth about the world. With encyclopedic knowledge and engaging curiosity, Calvino writes about such diverse subjects as the imaginative pleasures of maps, bizarre exhibitions and the earliest forms of written language. Books and paintings provoke discussions of artistic motivation, while descriptions of a meticulous Japanese garden, Trajan’s column crumbling to dust or a Mexican temple smothered by the jungle lead to contemplations on space, time and civilization.

    Surprising and profound, Collection of Sand provides a glimpse into the mind of a master of the imagination.

    Italo Calvino, one of Italy’s finest postwar writers, has delighted readers around the world with his deceptively simple, fable-like stories. Calvino was born in Cuba in 1923 and raised in San Remo, Italy; he fought for the Italian Resistance from 1943-45. He died in Siena in 1985, of a brain hemorrhage.

    Martin L. McLaughlin is Professor of Italian and Fiat-Serena Professor of Italian Studies at the University of Oxford where he is a Fellow of Magdalen College. He is the English translator of Umberto Eco and Italo Calvino among many others.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Köngurváfa

    Köngurváfa

    Köngurváfa er önnur ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur en þar tekst hún á við tilvistina með textum sem spretta úr upprunanum og horfa til framtíðar. Bókin spinnur þræði um formæður, fluguhnýtingar, ferðalög og stórtónleika heilmynda ABBA-flokksins, svo fátt eitt sé nefnt.

    Fyrri ljóðabók Arndísar, Innræti, hlaut góðar viðtökur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Arndís er jafnframt ötull barna- og ungmennabókahöfundur og hefur meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verk sín, auk tilnefninga til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Þýsku barnabókaverðlaunanna og Minningarverðlauna Astridar Lindgren.
    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Kona að hálfu

    Kona að hálfu

    Ponna og Kali reyna hvað þau geta til að eignast barn en allt kemur fyrir ekki. Síðasta hálmstráið er lokakvöld árlegrar musterishátíðar, þegar allir karlar eru guðir, en það gæti reynst þeim dýrkeypt.

    Perumal Murugan (f. 1966) er þekktasti rithöfundur Tamli Nadu-héraðs á Indlandi og jafnframt eini tamílski höfundurinn sem hlotið hefur tilnefningu til alþjóðlegu Booker-verðlaunanna. Lýsingar hans á helgisiðum héraðsins í Kona að hálfu vöktu mikla reiði trúarhópa á svæðinu og mátti Murugan sæta ofsóknum og ákærum, sem hæstiréttur í Madras ógilti síðar. Kona að hálfu hefur verið þýdd á átján tungumál. Áður hefur komið út á íslensku bókin Saga af svartri geit eftir sama höfund.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Framtíðin á ferðinni

    Framtíðin á ferðinni

    Stelpa og strákur hittast óvænt í erlendri borg og verða ástfangin. Þau koma úr ólíkum menningarheimum og átta sig fljótt á því að þeirra bíða margar og erfiðar hindranir eigi heitar tilfinningar að dafna. Ástin er voldugt afl en nær miskunnarlaus veruleikinn að buga hana?

    Í þessari hugstæðu skáldsögu tekst Þórhildur Ólafsdóttir á við áleitið efni sem lítt hefur verið fjallað um í íslenskum bókmenntum. Sagan talar beint til nútímans þótt höfundur sviðsetji hana í Reykjavík, París og litlu þorpi á Íslandi fyrir hálfri öld. Löngu liðnum tíðaranda er lýst á næman og áhrifaríkan hátt og persónur bókarinnar verða ljóslifandi fyrir augum lesenda.

    Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér meðal annars skáldsögu og ljóðabók auk þýðinga á bókum Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux.

    4.690 kr.
    Setja í körfu