Availability: Á lager

Algjör Perla

SKU: FORALG

4.990 kr.

Algjör Perla er glæný bók úr smiðju Jónínu Leósdóttur, sem hefur skrifað á þriðja tug bóka – þar á meðal tvær geysivinsælar glæpasagnaseríur kenndar við Eddu og Sáló ehf. Alþekkt kímnigáfa Jónínu nýtur sín sérstaklega vel í þessari margslungnu og hlýlegu sögu sem kemur sífellt á óvart.

Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bévað líkið, sem getur alveg ómögulega verið áfram þar sem það er.

En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri tekið til bragðs í slíkri stöðu? Vitanlega getur hún ekki blandað nokkrum í svo viðkvæmt mál. En það má komast ansi langt á þrjóskunni og hugvitinu einu saman … og stundum fær kona í neyð liðsauka úr óvæntustu átt.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Kilja