Availability: Á lager

Köngurváfa

5.190 kr.

Köngurváfa er önnur ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur en þar tekst hún á við tilvistina með textum sem spretta úr upprunanum og horfa til framtíðar. Bókin spinnur þræði um formæður, fluguhnýtingar, ferðalög og stórtónleika heilmynda ABBA-flokksins, svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrri ljóðabók Arndísar, Innræti, hlaut góðar viðtökur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Arndís er jafnframt ötull barna- og ungmennabókahöfundur og hefur meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verk sín, auk tilnefninga til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Þýsku barnabókaverðlaunanna og Minningarverðlauna Astridar Lindgren.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Sveigjanleg kápa