
Þú sem ert á jörðu (kilja)
4.790 kr.„Smám saman brá dagrenning birtu á landslagið. Að baki þeim rann jökullinn til sjávar og snæviþaktar þúfur vörpuðu löngum skuggum undir fannhvítum fjallshlíðum. Manneskjan gekk um þennan svarthvíta heim í skærlitum dúnjakka og með rauða púlku í eftirdragi. Á eftir henni tölti hundurinn í nokkuð hófsamari litbrigðum“
Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.
Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.


Algjör Perla
4.990 kr.Algjör Perla er glæný bók úr smiðju Jónínu Leósdóttur, sem hefur skrifað á þriðja tug bóka – þar á meðal tvær geysivinsælar glæpasagnaseríur kenndar við Eddu og Sáló ehf. Alþekkt kímnigáfa Jónínu nýtur sín sérstaklega vel í þessari margslungnu og hlýlegu sögu sem kemur sífellt á óvart.
Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bévað líkið, sem getur alveg ómögulega verið áfram þar sem það er.
En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri tekið til bragðs í slíkri stöðu? Vitanlega getur hún ekki blandað nokkrum í svo viðkvæmt mál. En það má komast ansi langt á þrjóskunni og hugvitinu einu saman … og stundum fær kona í neyð liðsauka úr óvæntustu átt.

Í hæfilegu magni
5.190 kr.Kraftmikil ljóðabók um litríka uppreisn gegn þeim þrönga stakki sem samfélagið sníður konum. Bók sem er of hávær, of fjörug og fjallar um allt of stórar tilfinningar.
Í hæfilegu magni er fyrsta ljóðabók Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur (f. 1992) en hún bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2022 með sögunni Getnaði. Saga hennar Stúlkan sem skemmdi (næstum því) jólin varð hlutskörpust í samkeppninni um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2021.
Köngurváfa
5.190 kr.Köngurváfa er önnur ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur en þar tekst hún á við tilvistina með textum sem spretta úr upprunanum og horfa til framtíðar. Bókin spinnur þræði um formæður, fluguhnýtingar, ferðalög og stórtónleika heilmynda ABBA-flokksins, svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrri ljóðabók Arndísar, Innræti, hlaut góðar viðtökur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Arndís er jafnframt ötull barna- og ungmennabókahöfundur og hefur meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verk sín, auk tilnefninga til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Þýsku barnabókaverðlaunanna og Minningarverðlauna Astridar Lindgren.
Bubbi
1.290 kr.„Bubbi Morthens er rétt að segja einhver frægasti maður landsins. Hann hefur verið sjálft vorið í íslenskri rokktónlist og hlotið slíkt lof að þess munu vart finnast dæmi hliðstæð“. Þetta skrifaði Gunnar Salvarsson í desember 1980, árið sem Bubbi sló svo eftirminnilega í gegn, og ekki hefur frægð hans dvínað síðan né dregið úr lofinu. Hvaðan kemur þessi maður sem svo rækilega losaði íslenska dægurtónlist úr fjötrum meðalmennskunnar? Hvernig stendur á frægð hans og hvernig hefur ferill hans verið? Og hvað finnst honum sjálfum um þetta allt saman?
Um það og ótal margt fleira geta lesendur fræðst í þessari lifandi og kraftmiklu bók þeirra Ásbjarnar og Silju. Bubbi segir frá bernsku sinni og uppvexti, misheppnaðri skólagöngu og litríkum tíma sem farandverkamaður, frá árunum í rokkinu en líka frá freistingum dópsins, sorginni og ástinni. Um leið lýsir bókin merkilegum þætti íslenskrar menningar, og skýrir kannski af hverju svo ótal margir, ungir sem aldnir, hafa hrifist af tónlist og textum Bubba undanfarinn áratug.
Á annað hundrað ljósmyndir eru í bókinni, fjöldi texta er birtur, og sömuleiðis er hér ítarleg plötu- og lagaskrá, sem kærkomin er öllum aðdáendum Bubba.

Jörðin undir fótum hennar
1.290 kr.Þetta er fyrsta mikla rokkskáldsagan og jafnframt saga síðustu fimmtíu ára – eins og hún hefði getað orðið. Þetta er bók um dulspeki og jarðskjálfta, veruleikann og handanheiminn og samspilið þar á milli, bók um goðsagnir fornaldar og okkar tíma, bók um þrjár stórkostlegar borgir: Bombay, London og New York. En fyrst og fremst er þetta bók um stórbrotna ást í anda Orfeusar og Evridísar.
Eftir því sem sögunni vindur fram komumst við að raun um að hún gerist í öðrum veruleika en okkar, veruleika sem liggur samsíða okkar veruleika og það gefur höfundinum færi á að leika sér fram og aftur með alls kyns tilvísanir, útúrsnúninga og skopstælingar. Stundum skarast þessir heimar með ógnvænlegum afleiðingum. Hér segir frá parinu Ormusi og Vínu sem eru dáðustu rokkstjörnur okkar daga, bæði Indverjar með guðlega tónlistargáfu. Saga þeirra er rakin allt frá því að leiðir þeirra liggja saman í Bombay á Indlandi endalokanna og sá sem segir söguna er ljósmyndarinn Rai, vinur Ormusar og ástmaður Vínu. Í fyrsta hlutanum opnast fyrir okkur borgin Bombay í allri sinni litadýrð, annar hlutinn geymir satíru á hina gjálífu London á sjöunda áratugnum og í þriðja hluta fáum við innsýn í firrt líf hinnar yfirþjóðlegu rokkstjörnu.
Jörðin undir fótum hennar hefur verið kölluð glaðlegasta bók Rushdies, frásögnin einkennist af fimlegum stökkum fram og til baka á hverri blaðsíðu eru dæmi um orðgnótt höfundarins, dálæti hans á orðaleikjum og stílgaldur. Árni Óskarsson þýddi.



Svarta meinið
1.290 kr.JEVGENÍJ PETROVÍTSJ hefur misst konu sína og býr við fátækt í París. Hann langar að freista gæfunnar og flytur búferlum til Ameríku, þar sem hann ræður sig í vinnu til auðugra mæðgina. Jevgeníj bindur miklar vonir við vin sinn í Chicago en bæði vinurinn, borgin og konurnar sem hann kynnist reynast öðru vísi en hann vænti.
Svarta meinið er skemmd sem hefur vaxið í demanti einum á löngum tíma og verður eins konar grunntónn í sögunni. Hún einkennist öll af sérstæðu andrúmslofti, sem er tjáð jöfnum höndum með atburðarás og stíl, á afar listfengan hátt.
Nína Berberova hefur vakið mikla athygli víða um lönd fyrir sögur sínar. Í fyrra kom út sagan Undirleikarinn eftir hana.
Árni Bergmann þýddi.

Júlíana Jónsdóttir – Ljóðmæli: Stúlka & Hagalagðar
7.990 kr.Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar.
Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu.
Silja Aðalsteinsdóttir og Sólveig Ásta Sigurðardóttir rita for- og eftirmála.

Mið-Austurlönd – fortíð, nútíð og framtíð
6.990 kr.Mið-Austurlönd – sem afmarkast af Egyptalandi í vestri, Íran í austri, Tyrklandi í norðri og Jemen í suðri – eru einhver mesti suðupottur okkar tíma og hafa raunar verið um áratugaskeið. Nær daglega flytja fjölmiðlar þaðan fréttir af stríðshörmungum, kvennakúgun, misskiptingu og neyð. Um leið hafa víglínurnar færst óþægilega nærri Vesturlöndum – hryðjuverk í nágrannalöndum okkar og straumur flóttafólks meinar okkur að loka augunum fyrir ástandinu.Ýmis vandamál Mið-Austurlanda eiga rætur í tíðum og víðtækum afskiptum Vesturlanda af þessum heimshluta í fortíð og nútíð. Fleira kemur þó til því íbúar svæðisins hafa á síðastliðnum hundrað árum beitt ýmsum aðferðum til að finna hinn gullna meðalveg hefðar og nútíma, sjálfstæðis og jafnréttis, ofbeldis og framfara, trúfrelsis og einstaklingsfrelsis.Þessi þýðingarmikla bók kom fyrst út árið 2018, hlaut þá einstakar viðtökur og hefur ítrekað verið endurprentuð. Hér er um nýja útgáfu að ræða þar sem síðustu vendingum sögunnar eru gerð skil, meðal annars atburðum á Gaza, þróun mála í Sýrlandi og borgarastríði í Jemen.Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts og gistikennari við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, er helsti sérfræðingur okkar í sögu þessa svæðis. Hér fjallar hann um öll meginstefin í sögu Mið-Austurlanda á yfirvegaðan og aðgengilegan hátt.
Irpa
4.990 kr.Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.
Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.
Hildur Knútsdóttir er einn virtasti ungmennabókahöfundur landsins en hún hefur einnig slegið í gegn með nóvellum sínum fyrir fullorðna, ekki síst í hinum enskumælandi heimi. The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024 og bókin hefur jafnframt verið tilnefnd til bæði Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að bæði þeirri bók og Irpu hefur auk þess verið seldur til erlendra framleiðslufyrirtækja.







