• Í heimi hvikuls ljóss

    Í heimi hvikuls ljóss

    Sögusvið þessarar bókar er Japan að nýlokinni seinni heimsstyrjöldinni. Japanskar borgir eru rústir einar og uppbygging hafin. Sögumaður bókarinnar, Masuji Ono, lítur til baka. Fyrir stríð var hann vinsæll og virtur listmálari sem trúði því að listin væri tæki til að bæta og fegra lífið og snúa Japan til menningarlegrar endurreisnar. Nú er niðurlæging heimsstyrjaldarinnar að baki og hafið nýtt skeið með nýjum gildum.

    Í heimi hvikuls ljóss er framúrskarandi skáldsaga, skrifuð af óvenjulegri snilld um listina, lífið og breyskleika mannanna.

    Kazuo Ishiguro fæddist í japönsku borginni Nagasaki árið 1954 en fluttist til Englands sex ára að aldri. Þrátt fyrir ungan aldur er hann meðal dáðustu rithöfunda Englands. Í heimi hvikuls ljóss hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og fékk ein virtustu bókmenntaverðlaun Breta, Whitbreadverðlaunin, árið 1986. Áður hefur komið út á íslensku eftir Kazuo Ishiguro skáldsagan Dreggjar dagsins.

    Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • rondó

    rondó

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Rifsberjadalurinn

    Rifsberjadalurinn

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Veður í æðum

    Veður í æðum

    Veður í æðum – Flétta handa dóttur, sonum og formæðrum

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Mannsævi

    Mannsævi

    Andreas Egger er fluttur kornabarn í lítið fjallaþorp í Ölpunum rétt eftir aldamótin 1900. Þar á hann illa vist en persónueinkenni þróast með honum; seigla, líkamlegur styrkur, hneigð til einveru. Egger verður maður verka fremur en orða. Ungur maður ræður hann sig í vinnu hjá verktökum sem hyggjast reisa kláf upp á fjallstind, nútíminn heldur innreið sína í þorpið og við það breytist öll tilvera íbúanna.

    Mannsævi eftir Robert Seethaler er afar áhrifamikil bók um mannlega reisn og hæfni til að sigrast á erfiðum aðstæðum. Um leið og saga Eggers er sögð í meitluðum og áreynslulausum stíl, endurspeglar hún á margvíslegan hátt sögu tuttugustu aldarinnar – sögu einnar mannsævi.

    Mannsævi var tilnefnd til Booker-verðlaunanna árið 2016.

    Mannsævi er fimmta bók Roberts Seethaler, sem auk þess að vera rithöfundur starfar sem leikari og býr í Berlín.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Óþægileg ást

    Óþægileg ást

    Delia á von á móður sinni með lestinni til Rómar, en hú skilar sér ekki. Skömmu síðar finnst lík hennar í sjónum við baðstað þar sem fjölskyldan hafði stundum farið í sumarfrí.

    Í tengslum við jarðarförina þarf Delia að takast á hendur ferð til æskustöðvanna og um leið á vit erfiðrar bernsku með tvístraðri fjölskyldu. En ekki síst þarf hún að svara knýjandi spurningu: Hver var eiginlega móðir hennar?

    Í þessari fyrstu skáldsögu Elenu Ferrante fjallar hún um það efni sem einkennt hefur höfundarverk hennar síðan: flókin og margræð sambönd kvenna. Hér er mæðgnasamband í forgrunni, en einnig samskipti kynjanna, dulin og ódulin, og hvernig konur sem storka karlveldinu eiga erfitt uppdráttar.

    Um þetta fjallar Elena Ferrante af þeirri stílgáfu, dýpt og innsæi sem lesendur þekkja af Napólí-fjórleik hennar, og gert hefur hana að einum vinsælasta rithöfundi samtímans. Eftir þessari bók var gerð vinsæl kvikmynd.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Kolbeinsey

    Kolbeinsey

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fíasól í logandi vandræðum
  • Ég færi þér fjöll
  • Þakkarskuld

    Þakkarskuld

    Teheran, 1978: Nahid og Masood eru 18 ára gömul, ástfangin og byltingarsinnuð og staðráðin í að hrinda ríkisstjórn Íranskeisara og koma á lýðræði. Leynilegar aðgerðir þeirra eru hættulegar en ástríða og æskufjör gefur þeim kraft og áræði. Nótt eina leyfir Nahid yngri systur sinni að koma með þeim á fjölmenn mótmæli þar sem ofbeldi brýst út; Nahid missir tak á systur sinni og allt breytist …

    Í kjölfarið neyðast Nahid og Masood til að flýja til Svíþjóðar til að tryggja öryggi sitt – og vegna þess að þau eiga von á barni. Þrjátíu árum seinna liggur Nahid á sjúkrahúsi, veik af krabbameini, og fer yfir líf sitt af dæmafárri hreinskilni þar sem allt er lagt undir.

    Þakkarskuld er margrómuð skáldsaga um ást, sekt og drauma um betri tíma, kraumandi af bæði átakanlegri sorg og óslökkvandi lífsgleði.

    Höfundurinn, Golnaz Hashemzadeh Bonde er fædd í Íran en uppalin í Svíþjóð.

    Páll Valsson þýðir.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Sónata fyrir svefninn

    Sónata fyrir svefninn

    Ung kona kemur til ókunnugs bæjar, með heimilisfang á bréfmiða og lykla í vasanum. Ferðinni er heitið í íbúð á efstu hæð í gömlu húsi, þar sem ekki er allt sem sýnist. Hún leitar horfins manns og hefur ástæðu til að ætla að hann sé að finna í bænum. En hvernig á að leita þeirra sem ferðast utan eigin líkama?

    Sónata fyrir svefninn er önnur skáldsaga Þórdísar Björnsdóttur en frumraun hennar á því sviði, Saga af bláu sumri, fékk frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda.

    „(Þórdís Björnsdóttir) nær fullkomlega að stilla saman þá strengi sem þarf til að skapa eftirminnilega og áhugaverða sögu, sem er bæði staðfesting á þeim hæfileikum sem skáldkonan hefur þegar sýnt og gefur góð fyrirheit um framhaldið.“
    Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is, um Sögu af bláu sumri

    „Eins og viðvarandi fantastiskt augnablik … dökkblár ástaróður til lífsins.“
    Ása Helga Hjörleifsdóttir, Víðsjá, um Sögu af bláu sumri

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fóstur

    Fóstur

    Lítil stúlka er send í fóstur til ókunnugs fólks og veit ekki hvenær hún fer aftur heim. Þótt hún þekki ekki fólkið upplifir hún hlýju og umhyggju sem hún hefur ekki áður kynnst og smám saman blómstrar hún í þeirra umsjá. En eitthvað er ósagt á snyrtilega sveitabænum og stúlkan lærir að oft fara sorg og sæla hönd í hönd.

    Fóstur er falleg og afar áhrifamikil saga sem sýnir enn fágæta hæfileika Claire Keegan til þess að ná fram tilfinningalegri dýpt í knöppu og hnitmiðuðu formi. Fóstur hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar, líkt og saga hennar Smámunir sem þessir sem hlaut frábærar viðtökur á íslensku.

    „Mjög hjartnæm og falleg saga; vel sögð og skrifuð, saga sem hrífur og rígheldur.“
    Einar Falur Ingólfsson, Mbl.

    „Lítið meistaraverk…maður fellur í stafi, hreinlega tárast.“
    Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan

    „Töfrum líkust …gleymi henni aldrei.“
    Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Kiljan

    „Sannkallaður gimsteinn.“
    Irish Independent

    „Lítið kraftaverk.“
    Sunday Times

    4.190 kr.
    Setja í körfu
  • Smámunir sem þessir

    Smámunir sem þessir

    Árið er 1985 í litlu þorpi á Írlandi. Jólin nálgast og þar með mesti annatími Bills Furlong, kolakaupmanns og fjölskyldu hans. Snemma morguns, þegar Bill er að afhenda kol í klaustrið við bæinn, gerir hann uppgötvun.

    Smámunir sem þessir eftir Claire Keegan, eina virtustu skáldkonu Íra, er óvenjulega áhrifamikil saga um von, hugrekki og samlíðan sem farið hefur sigurför um heiminn. Sagan var tilnefnd til hinna virtu Booker-verðlauna árið 2022 og hefur hvarvetna uppskorið mikið lof og vinsældir.

    „Þessi bók er algjör perla.“
    Egill Helgason, Kiljan

    „Ótrúlega vel gert. Feikilega áhrifarík, lítil bók … Alveg frábær.“
    Þorgeir Tryggvason, Kiljan

    „Smámunir sem þessir er mjög hefðbundin saga í stíl og frásagnarhætti en afar vel sviðsett, skrifuð og byggð. Og áhrifarík er hún, svo sannarlega.“
    Einar Falur Ingólfsson, Mbl.

    „Það er ekki hægt að mæla nógsamlega með þessari frábæru bók.“
    Kolbrún Bergþórsdóttir, Mbl.

    „Þessi stutta og látlausa saga hefur alla burði til að verða sígild; djúphugul, áhrifamikil og alþjóðleg. Náðu þér í tvö eintök: eitt til að eiga og hitt til að gefa.“
    Washington Post

    „Bók sem allir verða að lesa.“
    Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan

    „Þéttofin veisla um góðmennsku og eðli hversdagslífsins.“
    Sunday Times

    „Smámunir sem þessir er mjög hefðbundin saga í stíl og frásagnarhætti en afar vel sviðsett, skrifuð og byggð. Og áhrifarík er hún, svo sannarlega.“
    Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðið

    „Sérhver setning er hugsuð og kraftmikil og rúmar heilu bindin af sögu samfélags. Sérhvert orð er rétt og á réttum stað og áhrifin eru ótrúlega sterk.“
    Hilary Mantel, Booker-verðlaunahafi

    „Frábærlega falleg saga.“
    Douglas Stuart, Booker-verðlaunahafi

    4.190 kr.
    Setja í körfu
  • Heim til míns hjarta
  • Placeholder
  • Sólrún

    Sólrún

    ,,Ég velti því oft fyrir mér hvort laufin verði þess vör þegar þau byrja að fölna. Hvort litabreytingin komi aftan að þeim. Verða þau hissa þegar þau falla niður eða eru þau þá þegar horfin sjálfum sér?“ Sólrún ákveður að láta sig hverfa úr þjónustuíbúð fyrir aldraða og leggur af stað í ferðalag á puttanum. Förinni er heitið í Mývatnssveit en þangað telur hún sig eiga brýnt erindi. Margvíslegt fólk verður á leið hennar og sterkar minningar blandast inn í upplifun hennar, móðurþrá, ást og sekt, og svo dauðinn sem nálgast óðum.

    Sigurlín Bjarney Gísladóttir hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín sem tilnefnd hafa verið til ýmissa verðlauna. Síðasta bók hennar, ljóðabókin Undrarýmið, hlaut frábærar undirtektir bæði gagnrýnenda og almennra lesenda.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Turninn

    Turninn

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Næturgalinn

    Næturgalinn

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Einmana prímtölur

    Einmana prímtölur

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry