• Lífið er undantekning

    Lífið er undantekning

    Lífið er undantekning er níunda bók Sigurlínar Bjarneyjar. Fjölbreytt ljóðabók í efni og formi eftir eitt af okkar athyglisverðustu skáldum, sem síðast sendi frá sér nóvelluna Sólrúnu (2022) sem vakti mikla athygli.

    Við skulum faðmast inni og úti,

    uppi á heiði, úti í móa, í fjöru, ofan í dal,

    uppi á fjalli og í fjallshlíð,

    í grænni lautu, á gróinni umferðareyju, eyðieyju, eldfjalli,

    jökli, í snjóhúsi

    djúpt ofan í myrkum skógi

    við fossa, læki og vötn (uppistöðulón)

    í sjónum

    í náttúrulaugum og hverum

    byggðasafninu á Skógum

    á veiðilendum

    á söguslóðum, hálendi, láglendi

    skrúðgörðum og kartöflugörðum

    innan um rabarbara

    með mosa í hárinu og mold á milli tánna

    6.890 kr.
    Setja í körfu
  • Emilía

    Emilía

    Ég sé fyrir mér hvern krók og kima, litirnir hafa ekkert dofnað, ég finn meira að segja lyktina, heyri hljóðin í húsinu … Eftir að ég flutti út steig ég aldrei fæti þangað inn aftur og ætla mér ekki að gera það.

    Ung kona, Emilía, flytur með foreldrum sínum og ömmu inn í timburhús í miðbæ Reykjavíkur. Ekki líður á löngu þar til hún uppgötvar að þau eru ekki ein á nýja heimilinu.

    Ragnar Jónasson sem er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur heims sýnir hér á sér óvænta hlið í snarpri draugasögu. Bækur hans hafa selst í meira en fimm milljónum eintaka og eru margverðlaunaðar.

    7.790 kr.
    Setja í körfu
  • Bók vikunnar

    Bók vikunnar

    Húni er nýkominn til borgarinnar þegar honum býðst starf á litlu skóverkstæði í Reykjavík meðfram námi í háskólanum. Gamli skósmiðurinn lést fyrir skömmu og Húni fær það hlutverk að afgreiða ósótta skó til viðskiptavina.

    Húni kemur úr afskekktri sveit, fullur efasemda um nútímann og á því nokkuð erfitt með að fóta sig í bænum. Til að flækja tilfinningalíf hans enn frekar kynnist hann Júlíu sem honum þykir bæði óútreiknanleg og heillandi. Dag einn þegar hann situr á skóverkstæðinu fær hann hugmynd sem gæti bæði unnið hjarta Júlíu en um leið uppfyllt draum hans um að setja mark sitt á menningarlífið í borginni.

    Snæbjörn Arngrímsson hefur áður vakið athygli fyrir óvenjulegar glæpasögur, en nú hefur hann skrifað annars konar bók – Bók vikunnar. Hér spretta fram sérstæðar persónur í kunnuglegu umhverfi – og seiðmögnuð stemmning ljær sög­unni leyndardómsfullan blæ.

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Vöggudýrabær

    Vöggudýrabær

    Vöggudýrabær er skáldleg umfjöllun um þær konur sem nauðbeygðar sendu afkvæmi sín á vöggustofur og þau börn sem voru vistuð þar framan af barnæskunni.
    Kristján Hrafn Guðmundsson yrkir hér af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu um hlutskipti móður sinnar og ömmu og bregður um leið birtu á þjóðfélag þessara tíma og tíðaranda.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Beckomberga-geðsjúkrahúsið

    Beckomberga-geðsjúkrahúsið

    Þegar Jimmie Darling er vistaður á Beckomberga-geðsjúkrahúsinu fer dóttir hans, Jackie, að eyða sífellt meiri tíma þar, og eftir að móðirin fer úr landi verður sjúkrahúsið hennar heimur. Þar er Edvard Winterson læknir sem tekur með sér Jim og sérvalda sjúklinga á hverri nóttu í partí niður í bæ, hjúkrunarkonan Inger Vogel sem fetar hárfína línu reglu og eyðileggingar í samskiptum og hin raunamædda en aðlaðandi Sabina. Þar er líka Paul og ástin, hin raunverulega geðveiki.

    Beckomberga-geðsjúkrahúsið er heillandi frásögn um baráttuna og drauminn við að halda fólki
 í birtunni, um vanmátt foreldra og barna, um ótta og dauðageig. Í þessari seiðmögnuðu og hrífandi skáldsögu verður sjúkrahúsið táknmynd samfélags sem í senn reynir að halda utan um þá veiku en líka halda þeim fjarri.

    Sara Stridsberg er einn virtasti rithöfundur Svíþjóðar, handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2007 og hefur hlotið fjölda annarra viðurkenninga, ekki síst fyrir Beckomberga-geðsjúkrahúsið.

    Tinna Ásgeirsdóttir þýddi.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Friðþæging

    Friðþæging

    Það er heitasti dagur sumarsins 1934 þegar 13 ára strákur, Briony, sér systur sína, Cecili, afklæðast og baða sig úti í garði á sveitasetri þeirra. Robbie Turner, æskuvinur hennar, stendur og horfir á.

    Áður en næsti dagur rennur upp hefur líf þeirra þriggja tekið algjöra kollsteypu.

    Friðþæging er í hópi meistaraverka hins virta breska rithöfundar Ian McEwans og hefur sópað til sín margvíslegum viðurkenningum.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Silfurkrossinn

    Silfurkrossinn

    Silfurkrossinn segir frá undarlegum atburðum sem gerast þegar ung fjölskylda flyst inn í nýtt hús í nýju íbúðahverfi. Systkinin Gunnsi og Magga þurfa ekki aðeins að glíma við hvarf heimiliskattarins heldur sækja að þeim allskyns ógnir sem virðast búa í þessu skelfilega húsi.

    Silfurkrossinn er óvenju spennandi, viðburðarík og vel skrifuð barnasaga.

    Ætluð börnum 8-14 ára

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Frá gósenlandinu

    Frá gósenlandinu

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fyrir Lísu

    Fyrir Lísu

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Harmur englanna

    Harmur englanna

    Tíminn er stundum bölvað kvikindi, færir okkur allt til þess eins að taka það burt aftur. Það eru þrjár vikur síðan strákurinn kom í Plássið með stórhættulegan skáldskap á bakinu og vegalengdin milli Bárðar og lífsins eykst miskunnarlaust með hverjum degi.

    Jens landpóstur er kominn í Plássið, rétt slapp undan norðanvindinum þótt komið væri vor. Saman fara þeir strákurinn yfir að Vetrarströndinni, það eru apríllok og snjókoman tengir saman himin og jörð, þurrkar út áttirnar og landslagið. Hafi djöfullinn skapað eitthvað í þessum heimi, fyrir utan peningana, þá er það skafrenningur uppi á fjöllum.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Seint og um síðir

    Seint og um síðir

    Þessi bók geymir þrjár firnasterkar sögur sem eiga sameiginlegt að fjalla um samskipti kynjanna.

    Í titilsögunni Seint og um síðir fylgjum við Cathal fara inn í helgina á meðan hann rifjar upp samskipti sín við unnustuna sem rann honum úr greipum. Í Langur og kvalafullur dauðdagi kemur rithöfundur í sumarhús Heinrichs Böll til að dvelja við skriftir, en ágengur aðkomumaður raskar ró hennar, og í sögunni Suðurskautið ákveður gift kona í helgarferð að sleppa fram af sér beislinu og upplifa hvernig það sé að sofa hjá öðrum manni.

    Allar sögurnar skoða hvernig væntingar, tilætlunarsemi og undirliggjandi hætta á ofbeldi lita samskipti fólks.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Í skugga trjánna (notuð)

    Í skugga trjánna (notuð)

    Í skugga trjánna er skáldævisaga í anda Skeggs Raspútíns sem kom fyrst út árið 2016 og hlaut frábærar viðtökur bæði lesenda og gagnrýnenda. Guðrún Eva Mínervudóttir tekst hér á við veruleikann af einlægni og áræðni, svo úr verður áhrifamikil saga – full af húmor, hlýju og skáldlegri visku.

    „Sagt er að í enskum farsa séu allir í örvæntingu að reyna að losna úr pínlegum aðstæðum en í spænskum farsa séu allir á barmi taugaáfalls en hafi lúmskt gaman af því. Og nú þegar líf mitt var enn einu sinni orðið að brandara lá beinast við að spyrja hvort farsinn væri enskur eða spænskur. Uppákomurnar voru kannski kómískar og persónur stundum öfgakenndar, en það var ekkert lúmskt gaman hérna. Þegar einum pínlegum aðstæðum sleppti tóku við enn pínlegri aðstæður. Út í hið óendanlega kannski?“

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Laugardagur

    Laugardagur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hús dags, hús nætur

    Hús dags, hús nætur

    Nowa Ruda er lítið þorp í Slesíu, landsvæði í Mið-Evrópu sem hefur verið hluti af Póllandi, Þýskalandi og fyrrum Tékkóslóvakíu í gegnum tíðina. Þegar sögumaður flytur til þessa þorps uppgötvar hún að allt þarna á sér sögu, og með aðstoð Mörtu, hins dularfulla nágranna síns, streyma sögurnar fram – til dæmis af lífi dýrlingsins sem bærinn dýrkar, af manninum sem vinnur allar spurningakeppnir í útvarpinu á hverjum degi og af þeim sem olli alþjóðlegri spennu með því að deyja á landamærunum, með annan fótinn á pólskri grund en hinn á tékkneskri. Sérhver saga er eins og múrsteinn í sögu bæjarins sem smám saman hlaðast upp og spegla enn stærri mynd.

    Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu eftir Olgu Tokarczuk sló eftirminnilega í gegn hér á landi árið 2022. Olga fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2018.

    Árni Óskarsson þýddi.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu

    Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu

    Í afskekktri pólskri sveit eyðir Janina dögum sínum í að lesa stjörnuspeki, þýða kveðskap Williams Blake og sjá um sumarhús fyrir auðuga íbúa Varsjár. En einn daginn finnst nágranni hennar, sem hún kallar Háfeta, dauður við einkennilegar aðstæður. Olga Tokarczuk hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels 2018.

    Svo fjölgar hinum dauðu og eftir því sem rannsókn lögreglu vindur fram blandar Janina sér æ meira í hana þar sem hún þykist viss um hvað búi að baki morðunum.

    Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu er bókmenntaleg glæpasaga og ævintýri sem er auk annars ögrandi rannsókn á hinum myrku og óljósu mörkum heilbrigðis og geðveiki, réttlætis og hefða, sjálfsstjórnar og örlaga. Bókin fékk frábærar viðtökur, var m.a. tilnefnd til hinna virtu, alþjóðlegu Man Booker-verðlauna árið 2019 og varð mikil metsölubók í Póllandi.

    Olga Tokarczuk er einn virtasti rithöfundur heims og hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2018.

    Árni Óskarsson þýddi.

    „Algjör snillingur, líklega besti höfundur heimsins í dag.“
    Egill Helgason, Kiljan

    „Brillíant. Þvílík viska og hugmyndaflug.“
    Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan

    „… ánægjulegt að fá í þessari fínu sögu á íslensku fyrirtaks listaverk úr hinum stórmerkilega pólska menningarheimi, eftir einn athyglisverðasta rithöfund samtímans,“
    Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðið

    „Það verður að segjast alveg eins og er að Janina Duszejko er einhver magnaðasta bókmenntapersóna og skemmtilegasti en jafnframt bölsýnasti og bálreiðasti sögumaður sem hefur sprottið fram á síðum bókmenntanna um langa hríð … Hún er um margt ný og fersk rödd sem aðalpersóna og sögumaður en á sama tíma á veröld hennar og hugmyndafræði djúpstæðar rætur í veröld heimsbókmenntanna.“
    Magnús Guðmundsson, Orð um bækur/RÚV

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Meira

    Meira

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Vélar eins og ég

    Vélar eins og ég

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Vansæmd

    Vansæmd

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Gott fólk

    Gott fólk

    Sölvi og Sara kynntust við ofbeldisfullar aðstæður. Þau kysstust fyrst á Austurvelli með lungun full af gasi.

    Tveimur árum síðar banka tveir vinir Sölva upp á og birta honum bréf. Þar ber Sara hann þungum sökum og krefst þess að hann taki ábyrgð á framferði sínu.

    Sölvi, sem áleit sig góðan og gildan þjóðfélagsþegn – hann hefur margoft starfað sem sjálfboðaliði – áttar sig á því að kannski er hann ekki hetjan heldur illmennið í sögunni.

    Er hægt að beita ofbeldi án þess að átta sig á því? Er hægt að rétta yfir tilfinningalífinu? Og kannski er mikilvægasta spurningin þessi: Er hann góður?

    Valur Grettisson er blaðamaður í Reykjavík. Þetta er hans fyrsta skáldsaga.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Í skugga trjánna