-
-
-
-
-
-
-
-
-
Móðurlífið, blönduð tækni
1.290 kr.Sirrí var róttækur framúrstefnulistamaður á síðari hluta 20. aldar, sem lést fyrir aldur fram. Sirrí var ekki einungis umdeild sem listamaður, heldur einnig fyrir líferni sitt, ekki síst eftir að hún yfirgaf ung börn sín til að sinna listinni.
Þegar dóttir hennar, Kamilla, fellst á að liðsinna Listasafni Reykjavíkur við undirbúning yfirlitssýningar um móður hennar, lendir hún í vanda, því ekki hefur gróið um heilt í fjölskyldunni og ekki minnkar hugarangistin þegar bréf Sirríar til elskhuga hennar koma í leitirnar. Hvers konar mynd mun þjóðin fá af henni? Á einkalíf listamanns erindi við aðra? Á sannleikurinn erindi á sýninguna?
Yrsa Þöll Gylfadóttir hefur hér skrifað spennandi og áhrifamikla sögu um siðferðileg álitamál tengd listinni og lífinu, um skyldur foreldra við börn, um erfingja og ábyrgð þeirra – og hvað frjálsleg umgengni við sannleikann getur haft í för með sér.
-
Óhuggandi
1.290 kr.Ryder, heimskunnur tónlistarmaður, kemur til borgar nokkurrar í því skyni að halda íbúum hennar tónleika. Tónleikarnir eru þeir mikilvægustu á ferli Ryders. En Ryder þjáist af minnistapi og er ekki ljóst til hvers er ætlast af honum.
Borgarbúar vita hins vegar hver hann er og sækja hart að honum. Á þeim þremur dögum sem heimsóknin stendur er Ryder sendur fram og til baka til að skoða fjölskyldualbúm aðdáenda, koma saman sundraðri fjölskyldu og tala máli vanmetins hljómsveitarstjóra. Auk þess er búist við að hann komi örvæntingarfullu borgarsamfélagi til hjálpar.
Veikleiki Ryders felst í því að honum er um megn að neita fólki um aðstoð sem leitar huggunar. Brátt kemur í ljós að hann er vonlaus sáluhjálpari. Ishiguro tekst enn á ný að skapa dularfullan heim sem er í senn kunnuglegur og framandi, trúverðuga og sálsjúka veröld sem lesendur komast ekki ósnortnir frá.
Óhuggandi hefur verið þýdd á yfir 30 þjóðtungur og hvarvetna vakið gífurlega athygli.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
-
Sálin vaknar
1.290 kr.Þegar bókin Sálin vaknar kom út í Bandaríkjunum árið 1899 fékk hún mjög blendnar viðtökur enda var efniviður sögunnar eldfimur; staða og reynsla kvenna í hinu formfasta samfélagi nítjándu aldar.
Söguhetjan, Edna, uppgötvar að tilvistin hefur upp á fleira að bjóða en hefðbundið hjónaband og barnauppeldi. Hún leitar útrásar fyrir tjáningarþörf sína og tilfinningar og hirðir lítt um þær skorður sem henni eru settar sem eiginkonu og móður.
Nú telst Sálin vaknar til sígildra verka bandarískra bókmennta og hefur verið þýdd á fjölda tungumála.
Jón Karl Helgason þýddi og ritaði eftirmála.
-
-
-
-
-
-
-
-
-