-
Ódysseifskviða
5.890 kr.Ódysseifskviða fjallar um heimför og hrakningar Ódysseifs eftir Trójustríðið, um ævintýralegar slóðir Miðjarðarhafsins og alla leið í dauðaheim Hadesar. Hún lýsir guðlegum galdrakerlingum og íðilfögrum prinsessum, framhjáhaldi guða og trygglyndi hunda, skrímslum og vofum, baráttu hetja og skúrka sem að lokum hljóta makleg málagjöld.
Sveinbjörn Egilsson þýddi en Svavar Hrafn Svavarsson annaðist útgáfuna.
Verkinu fylgja nafnaskrár og skýringar, auk korts sem sýnir hrakningar Ódysseifs um Miðjarðarhafið.
-
Skuggar af Kili
8.490 kr.Það hvílir bölvun á þessari fjölskyldu. Eftir dóm um banvænan sjúkdóm og sonarmissi verður Halldóri hugsað til gamalla sagna um fjölskyldubölvun sem rakin var til örlaga Reynistaðarbræðra sem urðu úti á Kili árið 1780. Í örvæntingu sinni gefur Halldór sig á vald þessarar sögu, um leið og hann tekst á við sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi. Í þessari áhugaverðu og vel fléttuðu sögu tekst höfundi að spegla aldagamla örlagasögu og átakanlegan tilvistarvanda nútímamanns. Jafnhliða er lesanda boðið í ferðalag þar sem kvikna gömul örlög, mannlegir brestir, þvermóðska, bölbænir og áhrínsorð. Birgir Tjörvi Pétursson starfar sem lögmaður í Reykjavík. Skuggar af Kili er hans fyrsta skáldsaga.
-
Tímabundin – ástarsaga
8.490 kr.Árið er 2033. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram umdeilt frumvarp um að leyfa ófrjósemisaðgerðir á börnum. Magnea er þingmaður í stjórnarandstöðu og staðráðin í að beita sér af alefli gegn málinu. Á sama tíma eru blikur á lofti í einkalífinu. Tómas, eiginmaður hennar, er spendýrafræðingur sem glímir við erfiða drauga fortíðar. Smám saman þyngist undiraldan og uppgjör virðist óumflýjanlegt. Tímabundin – ástarsaga er óvenjuleg saga úr náinni framtíð þar sem fléttað er saman örlögum nokkurra persóna sem eru skýrt dregnar. Um leið er brugðið upp ísmeygilegri mynd af þjóðfélagi sem er í senn kunnuglegt og ekki – og velt upp áleitnum spurningum um uppeldi, hugsjónir, forsjárhyggju – og hvort við höfum gengið til góðs. Kristján Hrafn Guðmundsson sendi síðast frá sér ljóðsöguna Vöggudýrabæ (2023) sem vakti mikla athygli. Rétt eins og hún er Tímabundin – ástarsaga samin af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu.
-
Fleipur
7.790 kr.Er ástæða til að leiðrétta heillandi konu sem heldur að maður sé Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur? Hvað gerist þegar sóprandíva í kirkjukór gerist talibani tónlistarinnar? Hvernig þekkti jólasveinninn litla héraskinnið í kvæðinu? Óvenjulegt og bráðskemmtilegt sagnasafn.
Hvernig stendur á því að Mannsi í Hvammi heldur sinni engilbjörtu sópranrödd?
Í þessu óvenjulega og bráðskemmtilega sagnasafni stíga fram ýmsar óvæntar persónur, sumar kunnuglegar, og kveða sér hljóðs. Beinskeytt írónía er gegnumgangandi og kemur oft flatt upp á lesanda, því höfundur er fundvís á grátbroslegar aðstæður og mannlega veikleika.
Þórunn Guðmundsdóttir hefur lengst af starfað sem söngkona og tónlistarkennari. Hún hefur skrifað fjölmörg leikrit og söngleiki auk þess sem sönglög hennar hafa verið prentuð. Á undanförnum árum hefur hún getið sér gott orð sem höfundur ópera sem hafa verið fluttar af sviðslistahópunum Animato og Hnoðra í norðri.
-
Jórunn Viðar ævisaga
8.990 kr.Jórunn Viðar var fyrsta íslenska konan sem sótti háskólamenntun í tónsmíðum, hún braut blað sem tónskáld og átti glæstan feril sem píanóleikari. Þó var henni margt mótdrægt. Viðtökur á verkum hennar lituðust oft af því að hún var kona og í hjónabandinu fann hún sjaldan þá hvatningu eða skilning sem hefði getað fleytt henni lengra á listabrautinni.
Jórunn Viðar var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi á 20. öld. Hér er saga hennar sögð í fyrsta sinn og byggir Árni Heimir Ingólfsson verkið að miklum hluta á óprentuðum gögnum sem aldrei hefur verið vitnað til áður, meðal annars fjölda sendibréfa. Fjallað er um æskuárin í Reykjavík, námsár í Berlín rétt fyrir síðari heimsstyrjöld og í New York á stríðsárunum og þá glímu sem við tók eftir að heim til Íslands var komið. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem hvergi hafa birst opinberlega.
Árni Heimir Ingólfsson er tónlistarfræðingur og píanóleikari. Hann hefur þrívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir verk sín og sömuleiðis í þrígang verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis.
Jórunn Viðar – ævisaga er tímamótaverk um eina af merkustu tónlistarkonum Íslands á 20. öld.
-
Ljósfaðir
8.490 kr.Jónas í Hróarsdal í Skagafirði var bóndi og yfirsetumaður, sem hafði auk þess formlegt leyfi til lækninga. Til hans lá straumur sjúkra, lemstraðra og þunglyndra. Viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi ber að garði. Áhrifamikil, söguleg skáldsaga.
„Jónas Jónsson. Hann eignaðist 33 börn með þremur konum. En hann var líka ljósfaðir sem hjálpaði mörg hundruð börnum í heiminn. Langalangalangafi minn.“
Í skugga trjánna, Guðrún Eva Mínervudóttir (2024)Rúmföstum gömlum manni er Jónasi í mun að miðla þekkingu sinni til þriðju eiginkonunnar, Lilju. Hún sinnir lækningunum með honum og annast að mestu hinn misleita hóp sjúklinga, auk þess að stýra búinu. En viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi, Jónas yngri, tvídklæddur og „myndarlegri en djöfullinn sjálfur“ kemur til dvalar í Hróarsdal – og erfiðar spurningar um tilvist, sekt og ábyrgð verða ekki lengur umflúnar.
Guðrún Eva Mínervudóttir hefur hér skrifað áhrifamikla skáldsögu sem er „fleytifull af sannleika, hundrað ára gömlum hviksögum, munnmælum, staðreyndum og söguburði“ eins og hún orðar það í eftirmála. Guðrún Eva er í fremstu röð íslenskra rithöfunda, síðasta bók hennar, Í skugga trjánna, var hlaðin lofi og varð ein mest selda bók ársins 2024.
-
Fiskarnir hafa enga fætur
990 kr.TILNEFND TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA
„Það eru til fleiri heimar en við getum talið, og enginn þeirra er sá rétti.“
Þetta er sviðið: Austfirsk fjöll og Keflavík sem kölluð hefur verið svartasti staður landsins. Hér er sögð saga ættar allt frá byrjun tuttugustu aldar og fram til okkar daga. Sagan teygir sig frá Norðfirði til Keflavíkur, hún nær yfir allt landið, yfir fjöllin sem eru fornar rósir færðar guðum og hraunið sem lítur stundum út eins og blótsyrði djöfulsins.
Þetta er saga fólks sem elskar og þjáist, sem leitar og flýr, saga um sársauka og söknuð, ofbeldi og kvótalaust haf. Saga um Kanaskip, Bítlana og Pink Floyd, um bjarta og dimma daga á Norðfirði þar sem kona breytist í lifandi múmíu.
Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefánsson var ein mest selda skáldsaga ársins 2013 og hlaut einróma lof gagnrýnenda, auk þess að vera tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
-
Hlaðan (kilja)
5.490 kr.Bergsveinn Birgisson ákveður að endurbyggja hlöðu forfeðra sinna á Ströndum sem er komin að hruni. Það fær hann til þess að hugsa um heiminn og stöðu mannsins í honum. Hann fer að skrifa bréf til dóttur sinnar, rifjar upp hugmyndir manna í fortíðinni um hvernig best sé að haga lífinu, um leið og hann tekst á við hin daglegu verkefni við endursmíð hlöðunnar, og freistar þess sömuleiðis að horfa til framtíðar. Þá fléttast Strandamenn, lífs og liðnir, inn í frásögnina, sumir koma í heimsókn en aðrir rétta hjálparhönd. Útkoman verður því ferðalag um tíma og rúm, andlegt sem raunverulegt, í bók sem er engri annarri lík.
Bergsveinn Birgisson er einn vinsælasti og virtasti rithöfundur landsins og bækur hans koma út um allan heim. Meðal þeirra má nefna verðlaunabækurnar Leitin að svarta víkingnum, Þormóður Torfason, Landslag er aldrei asnalegt og Svar við bréfi Helgu.
„Stórmerkileg bók um afar hraða og afdrifaríka samfélagsþróun og enginn ætti að láta fram hjá sér fljóta ólesna, einkar lipurlega skrifuð.“
Sölvi Sveinsson, Morgunblaðið„Las af áfergju, skrifað af yfirvegun og ekki predik andi, hugsa að ég lesi ekki bók sem hefur meiri áhrif á mig í ár en þessi.“
Sverrir Norland, Kiljan„Rosalega skemmtilegur leiðangur.“
Þorgeir Tryggvason, Kiljan„Bókin er skrifuð af miklu mannviti og fádæma yfirsýn eins og vænta mátti, alvarleg tilraun um manninn, leit að mennskunni og því hvernig má á ný tjasla því saman sem brotið er og sundrað.“
Guðmundur Andri Thorsson„Tvímælalaust áhugaverðasta bók þessa hausts.“
Þröstur Helgason, Bændablaðið„Bók sem á erindi við okkur öll … óskandi væri að allir ráðamenn þjóðarinnar fengju þessa bók og læsu.“
Gauti Kristmannsson, Rúv -
-
-
-
-
-
-
Saga af bláu sumri
1.290 kr.Saga af bláu sumri fjallar um unga konu sem sest að í húsi látinnar ömmu sinnar yfir sumartímann.
Ég velti fyrir mér hvort kjörbúðin væri enn á sínum stað því ég hafði alveg gleymt að líta eftir því þegar ég gekk í gegnum bæinn úr rútunni daginn áður. Stúlkan sem ég sá á leiðinni hafði fangað alla athygli mína. Eftir á að hyggja þótti mér í raun merkilegt að ég skyldi hafa gengið rétta leið heim að húsinu en ekki ráfað eitthvað út í bláinn eftir að hún hvarf mér sjónum.
„Strax með fyrstu bókinni, Ást og appelsínur, varð ljóst að hér var komin skáldkona sem hafði þegar fundið sína rödd.“
– Úlfhildur Dagsdóttir, BókmenntavefurinnÞórdís Björnsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1978. Hún hefur sent frá sér ljóðabækurnar Í felum bakvið gluggatjöldin, Vera & Linus, Og svo kom nóttin, og Ást og appelsínur. Þetta er hennar fyrsta skáldsaga.
-
Aftenging
8.490 kr.Fimm gamlir vinir ákveða að kúpla sig út úr amstri hversdagsins og bregða sér um helgi út í eyjuna Grið. Ferðin tekur hins vegar óvænta stefnu þegar fréttir um mikinn gagnaleka fara að berast í gegnum stopult netsamband. Hvöss en glettin saga úr samtímanum.
„Af og til síðustu daga hef ég lygnt aftur augunum og velt því fyrir mér hvort þessi ferð, þessi eyja og allt sem fylgdi, hefði ekki bara verið einn stór misskilningur …“
Fimm gamlir vinir ákveða að kúpla sig út úr amstri hversdagsins og bregða sér um helgi út í eyjuna Grið. Á þessari eyðieyju hefur auðmaður byggt upp íburðarmikla aðstöðu þar sem gestir geta slakað á og aftengst snjallsímum og samfélagsmiðlum enda nær ekkert netsamband á eyjunni.
Barnlaus helgi í bústað með besta fólkinu, eins og Facebook-grúppa helgarinnar heitir, tekur hins vegar óvænta stefnu þegar fréttir fara að berast í gegnum stopult netsambandið um víðtækan gagnaleka í þjóðfélaginu.
Aftenging er fyrsta skáldsaga Árna Helgasonar; hvöss en glettin saga úr samtímanum um fólk sem baslar í sínu – og hvernig vináttu reiðir af á tímum þar sem tækin þekkja okkur betur en við sjálf og gleyma engu.
-
Indjáninn
4.590 kr.Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu. Þetta er áhrifamikil uppvaxtarsaga sem sveiflast á milli strákslegrar gleði og nístandi einmanaleika þess sem ekki er alltaf í takt við umhverfið, en jafnframt er hér brugðið upp ljóslifandi mynd af samfélagi áttunda áratugarins frá sjónarhorni barnsins.