• Gæðakonur

    Gæðakonur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • 1900 og eitthvað

    1900 og eitthvað

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Náin kynni

    Náin kynni

    Þetta er hið dapurlegasta kvöld því ég er á förum og kem ekki aftur.

    Jay ætlar að laumast óséður að heiman og yfirgefa konu sína Susan og litlu synina tvo. Kvöldið fyrir brottförina rifjar hann upp árin með fjölskyldunni. Hann gerir upp líf sitt af miskunnarleysi, dregur ekkert undan, hlífir engum, hvorki sér né sínum nánustu. Þetta er sársaukafullt uppgjör sem jafnframt er hugleiðing um ástina, vináttuna, hamingjuna og samskipti elskenda.

    Náin kynni er fyrsta saga ensk-pakistanska höfundarins Hanifs Kureishi sem birtist á íslensku. Hann er talinn einn af merkustu höfundum Evrópu um þessar mundir en hann hefur jöfnum höndum skrifað leikrit, sögur og kvikmyndahandrit. Þekktasta verk hans er My Beautiful Laundrette sem hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna.

    Bókin Náin kynni kom út í Englandi árið 1998 og vakti strax mikla úlfúð vegna óvæginna lýsinga Kureishis á samskiptum kynjanna.

    Jón Karl Helgason þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Náðargáfa Gabriels

    Náðargáfa Gabriels

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Barnið og tíminn

    Barnið og tíminn

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Herra Palomar

    Herra Palomar

    Þar sem hann er dálítið nærsýnn, utan við sig og innhverfur, líkist hann að því er virðist alls ekki þeirri manngerð sem vanalega er skilgreind sem góður athugandi. Samt sem áður hefur það oft komið fyrir hann að vissir hlutir – steinveggur, kuðungsskel, laufblað, teketill – ná athygli hans og líkt og biðji hann að rannsaka sig vel og lengi.

    Ítalinn Italo Calvino (1923-1985) er í hópi frumlegustu rithöfunda tuttugustu aldar og er honum gjarnan skipað í hóp með skáldum á borð við Jorge Luis Borges, Georges Perec og Robert Walser. Skáldsagan Herra Palomar kom út árið 1983. Í sögunni slæst lesandinn í för með herra Palomar sem ver tíma sínum við að horfa á öldurnar og nakinn barm konunnar á ströndinni, hugsa um líkamsburði gíraffans og hugarheim hvítu górillunnar í dýragarðinum, girnast gæsafeitina í kjötbúðinni eða hlýða á samtal svartprastanna í garðinum. Sá sem hefur séð heiminn og himintunglin með augum herra Palomars mun aldrei verða samur á eftir.
    Guðbjörn Sigurmundsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Leyndardómur býflugnanna

    Leyndardómur býflugnanna

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hver er Lou Sciortino?

    Hver er Lou Sciortino?

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Túlkur tregans

    Túlkur tregans

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Milarepa

    Milarepa

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Óskar og bleikklædda konan
  • Herra Ibrahim og blóm Kóransins
  • Dauðinn og mörgæsin

    Dauðinn og mörgæsin

    Áður en Viktor fór að hátta fékk hann sér te og hugsaði um dauðann. Það reyndist honum létt. Á meðan rölti mörgæsin Misha fram og til baka eftir myrkum ganginum og skellti sér við og við á lokaðar eldhúsdyrnar.

    Sögusviðið er Úkraína eftir að Sovétríkin hafa liðast í sundur. Viktor, lánlaus og hæglátur rithöfundur, býr í lítilli blokkaríbúð ásamt þunglyndri mörgæs sem hann hefur tekið í fóstur af fjárvana dýragarði Kiev. Einn daginn er hann ráðinn í lausamennsku við eitt dagblað borgarinnar til að skrifa minningargreinar um mikilsháttar menn í samfélaginu sem blaðið vill hafa til taks þegar viðkomandi hrekkur upp af. Skyndilega virðist veröldin brosa við Viktori. En eftir því sem dagarnir líða verður heimilislíf hans stöðugt flóknara auk þess sem starf hans á blaðinu hefur ýmsar miður heppilegar afleiðingar í för með sér.

    Í þessari bráðskemmtilegu og tregafullu skáldsögu fjallar Andrej Kúrkov um fjarstæðukenndan veruleika hversdagsfólks í löndum Austur-Evrópu eftir fall járntjaldsins. Sagan hefur verið þýdd á fjölda tungumála á síðustu misserum og alls staðar fengið rífandi dóma.

    Áslaug Agnarsdóttir þýddi úr rússnesku.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sagan af Pí

    Sagan af Pí

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Stríðsmenn Salamis

    Stríðsmenn Salamis

    Býsna ótrúleg saga, sagði hann svo með hlutlausum málrómi um leið og hann dró sígarettu upp úr hálfa pakkanum frá því um morguninn. En öll stríð eru full af ótrúlegum sögum, er það ekki?

    Á síðustu dögum spænsku borgarastyrjaldarinnar stendur rithöfundurinn Sánchez Mazas ásamt fleiri föngum úr hópi falangista frammi fyrir aftökusveit lýðveldissinna. Um leið og vélbyssuskothríðin hefst notfærir hann sér ringulreiðina sem skapast og hleypur til skógar. Hermennirnir veita honum eftirför, einn þeirra finnur Mazas í felum, horfir í augu hans en gengur svo á braut.

    Í Stríðsmönnum Salamis leitar spænski rithöfundurinn Javier Cercas svara við því hver óþekkti hermaðurinn var og hvers vegna hann þyrmdi lífi manns sem var alræmdasti hugmyndafræðingur falangista og átti eftir að verða ráðherra í fyrstu ríkisstjórn Francos. Mögnuð og margverðlaunuð bók um hlutskipti mannsins á tímum stríðsátaka, lyga og óvænts hetjuskapar.

    Jón Hallur Stefánsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Níu nætur

    Níu nætur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Opinberunarbókin

    Opinberunarbókin

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ristavél

    Ristavél

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fimm mílur frá Ytri-Von

    Fimm mílur frá Ytri-Von

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Barndómur

    Barndómur

    1.290 kr.
    Setja í körfu