


Olía
1.290 kr.Svikaskáld eru: Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir.






Skjáskot
990 kr.Skjáskot er magnað og upplýsandi ferðalag um mannshugann og áskoranir dagsins í dag. Man einhver eftir tvöþúsundvandanum, rotten.com eða Columbine-árásinni og skipta þessi atriði máli til að skilja nútímann? Hver eru tengslin milli falsfrétta og gervigreindar? Hvernig líður okkur í heimi þar sem allar skoðanir og hugsanir eru flokkaðar, fá einkunn og umsagnir? Hefur allt merkingu? Hræðist nútímafólk ekki lengur eld og tortímingu, heldur einmitt þá staðreynd að framvegis mun aldrei neitt gleymast eða eyðast?
Bergur Ebbi spyr stórra spurninga og leitar svara í þessari snörpu, skörpu og lærdómsríku krufningu á vandamálum og þversögnum sem blasa við okkur öllum. Fyrra leiðsögurit hans um nútímann, Stofuhiti, vakti mikla athygli.



Formaður húsfélagsins
1.290 kr.Maður flytur í blokkaríbúð systur sinnar á meðan hann kemur undir sig fótunum. Þetta átti að vera tímabundin ráðstöfun, en fyrr en varir er húsfélagið lent á hans herðum.
Formaður húsfélagsins fjallar um samlíf ókunnugra, nauðsynlegt viðhald fasteigna og margslungið tilfinningalíf íbúa fjölbýlishúsa.
