• The Director

    The Director

    An artist’s life, a pact with the devil, a novel about the dangerous illusions of the silver screen.

    G.W. Pabst, one of cinema’s greatest, perhaps the greatest director of his era: when the Nazis seized power he was filming in France, to escape the horrors of the new Germany he flees to Hollywood. But under the blinding California sun, the world-famous director suddenly looks like a nobody. Not even Greta Garbo, who he made famous, can help him. And thus, almost through no fault of his own, he finds himself back in his homeland of Austria, which is now called Ostmark. The returning family is confronted with the barbaric nature of the regime. But Goebbels, the minister of propaganda in Berlin, wants the film genius, he won’t take no for an answer and makes big promises. While Pabst still believes that he will be able to resist these advances, that he will not submit to any dictatorship other than art, he has already taken the first steps into a hopeless entanglement.

    Daniel Kehlmann’s novel about art and power, beauty and barbarism is a triumph.

    The Director shows what literature is capable of.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Í húsi Júlíu

    Í húsi Júlíu

    Í húsi Júlíu (2006) segir frá tveimur systrum og stormasömum samskiptum þeirra. Þegar Lena kemur heim öllum að óvörum eftir áratuga langa dvöl í útlöndum og sest að í húsi Júlíu fara þau hjól að snúast sem bjóða hættunni heim.

    Viðfangsefnin í þessari skáldsögu Fríðu Á. Sigurðardóttur eru mörg og áleitin og á sinn einstaka hátt vefur Fríða saman alla þræði svo að úr verður áhrifamikil og mögnuð samtímasaga. Í húsi Júlíu er einstaklega vel skrifuð, fyndin og fáguð og í henni kveður við nýjan tón í íslenskri bókmenntaflóru. En umfram allt er hér tekið á málum sem brenna á nútímakonunni: Hvers vegna fórna konur sér iðulega fyrir aðra?

    Fríða Á. Sigurðardóttir er einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar. Hún hefur sent frá sér smásögur, skáldsögur og þýðingar. Skáldsaga hennar Meðan nóttin líður (1990) hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin, Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992 og hefur verið þýdd og gefin út víða erlendis.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Krossfiskar

    Krossfiskar

    Enn horfði ég á vatnið. Mér fannst ekkert eðlilegra en að vera þar sem ég var, einmitt núna. Ég sá að ævi mín var bara undanfari pessa augnabliks.

    Daníel er hættur í háskólanum og hefur hvorki efni á mat né eldsneyti. Dag einn fær hann tvö símtöl, eitt frá fyrrverandi skólafélaga og annað frá lögreglunni, sem hrinda af stað dularfullri atburðarás.

    Krossfiskar er spennuþrungin skáldsaga um átök sálarinnar – um mörk góðs og ills. vonar og vonleysis – frá einum af áhugaverðustu ungum höfundum þjóðarinnar.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vígroði

    Vígroði

    Auður djúpúðga elur upp son sinn á eigin jörð á Katanesi. Hún hefur haldið sig fjarri Suðureyjum frá því að leiðir hennar og Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs skildu af ótta við að Ketill flatnefur, faðir hennar, gefi hana manni á ný.

    Að veturnóttum 865 kemur hún þó í föðurhús, til brúðkaups bróður síns og dóttur Ingólfs Arnarsonar. Þar spá dísirnar því að vígroða muni brátt slá á víkinga í Vesturhafi. Og víst horfir ófriðvænlega á norðanverðum Bretlandseyjum þar sem innfæddir veita norrænum mönnum æ meiri mótspyrnu og Orkneyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Dyflinnarkonungur inn í Péttland, öllum að óvörum, og leiðir þeirra Auðar liggja saman að nýju …

    Vígroði er framhald af skáldsögunni Auður sem kom út 2009, naut geysilegra vinsælda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Speglahúsið

    Speglahúsið

    Miðaldra hárgreiðslukonan Rósa leggur skærin á hilluna, flytur austur í Mjóafjörð og kemur á fót óvenjulegri ferðaþjónustu. Meðan ferðamenn setja sig í spor Lísu, sem lá lömuð þar um miðja síðustu öld, bakar Rósa fyrir kaffihúsið og hugsar til ömmu sinnar sem sá um Lísu og heimilið.

    Mögnuð saga frá höfundi Hansdætra.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • A Short History of Tractors in Ukrainian
  • Hotel Silence
  • Játning

    Játning

    Tveir íslenskir námsmenn, Elísabet og Benedikt, kynnast í Leipzig skömmu fyrir hrun múrsins. Þau fella hugi saman en líf þeirra tekur óvænta stefnu þegar yfirvöld fara að sýna þeim áhuga. Áratugum síðar neyðist Elísabet skyndilega til að minnast þessara löngu liðnu daga sem hún vill síst af öllu rifja upp.

    Játning er stórbrotin skáldsaga um ást og minningar, heilindi og svik, fjölskyldusambönd og hverfulleika, um sannleika og lífslygi, og þær ákvarðanir sem við stöndum frammi fyrir á ögurstundum lífsins.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • The Shapeshifter's Daughter

    The Shapeshifter’s Daughter

    Nothing, on earth or below it, freezes faster than the worthless heart.

    Before she was a hideous monster, the queen of the underworld was simply Hel. But cast as a girl out of lofty Asgard, realm of the gods, by Odin the Allfather, Hel’s fate as the terrible goddess of death is sealed. Half beauty, half crone, she has reigned for aeons in the starless darkness of Niflheim, grimly welcoming the most pitiful of death’s travellers to her ice-locked prison. Until one day a memory shifts, and she is forced to seek out the sun in Midgard, where humans have made their home.

    Faced with a terminal cancer diagnosis, Helen Firth makes the impulsive decision to return to Orkney after forty years to make peace with her past. Under the wintering solstice sun, she reconnects with the ungainly but affable Thorfinn Coffin, who helps her address the real reason she has returned to the islands: to die.

    As Helen draws closer to death and ever closer to Thorfinn, Hel in turn is intrigued by Helen. She, too, has a past to confront and a lesson to learn: that perhaps who she believes herself to be isn’t who she really is.

    A powerful reimagining of the Norse myth of Hel, The Shapeshifter’s Daughter celebrates the joy of reclaiming our stories.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Æskumynd listamannsins

    Æskumynd listamannsins

    ÆSKUMYND LISTAMANNSINS kom fyrst út árið 1916 og er persónulegasta verk James Joyce. Bókin sem sumir gagnrýnendur hafa nefnt mögnuðustu æskulýsingu heimsbókmenntanna greinir frá uppvexti drengs í hinu rammkaþólska Írlandi, þjáningum hans í forstokkuðu skólakerfi, unglingsárum með tilheyrandi sektarkennd og ástarfýsn, baráttu hans við að brjótast undan hömlum umhverfisins, finna sjálfan sig og komast burt. „Skáldsagan er ákæruskjal,“ segir Sigurður A. Magnússon í formála sínum að verkinu, „sem beinist jafnt gegn rómversk-kaþólsku kirkjunni og fósturjörðinni.“

    Sigurður A. Magnússon hefur þegar unnið það þrekvirki að þýða á íslensku Ulysses – Ódysseif – eftir James Joyce, margslungnustu skáldsögu 20. aldar og kom sú þýðing út á árunum 1992-3, en áður hafði smásagnasafnið Í Dyflinni komið út í íslenskri þýðingu Sigurðar árið 1982.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Missir

    Missir

    Hvert leitar hugurinn þegar komið er á leiðarenda og fátt er framundan nema eilífið sjálf? Til liðinnar tíðar … sem geymir misfagrar minningar.

    Ekkert rífur þögnina nema miskunnarlaust suðið í katlinum, hversdagslegur undirleikur við uppgjör einmana manns við tilveru sína, ástina eða ástleysið sem nær yfir mörk lífs og dauða – og ellina, það hlutskipti sem allra bíður þegar líkaminn hrörnar og þrekið þverr.

    Guðbergur Bergsson veitir hér ögrandi og óvænta sýn inn í þá hversdagsheima sem allir þekkja en hver og einn fetar á sinn einstaka hátt. Missir er saga sem afhjúpar einstaklinginn gagnvart óhjákvæmilegum örlögum sínum.

    Valin besta bók ársins 2010 af gagnrýnendum Morgunblaðsins, Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Árna Matthíassyni: „Guðbergur hefur hér meistaraleg tök á efninu og frásögninni allri. Missir er tvímælalaust eitt af hans áhrifameiri verkum, knappt og meitlað og vekur lesendann til umhugsunar.“

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Tíu ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp

    Tíu ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp

    Í skáldsögunni 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason (2008)  fylgjumst við með ævintýrum króatíska leigumorðingjans Tomislav Bokšic, sem gengur undir nafninu Toxic.

    Eftir nokkuð ‘farsælan’ feril sem leigumorðingi í Bandaríkjunum neyðist hann einn góðan veðurdag til að leggja á flótta og endar á Íslandi fyrir slysni. Þar taka kristnir trúboðar á móti honum fyrir misskilning og úr verða ýmsir menningar- og tungumálaárekstrar á meðan hann fótar sig í nýju umhverfi.

    Hörkuspennandi og fyndin saga með þyngri undirtóni sem sýnir lesanda íslenskt samfélag frá býsna óvæntu og óvenjulegu sjónarhorni.

    1.290 kr.
    Setja í körfu