





Glæsir
1.290 kr.Aleinn í myrku fjósi flytur hann sjálfum sér eigin ævisögu um væntingar og svik, heiður og vansæmd, einmanaleik og botnlausa óhamingju. En hver er hann sem á svo harmræna fortíð að baki er hann þessa heims eða annars, forynja eða tröll – eða aðeins vesæl skepna?
Og Glæsir hefur marga fjöruna sopið. Hann heyr harða glímu við sjálfan sig og einn og yfir- gefinn gerir hann upp líf sitt og nöturleg örlög.
Í þessari nýstárlegu skáldsögu tekst ÁRMANN JAKOBSSON á við sagnaarfinn og þjóðsögurnar á afar frumlegan hátt. Sagan um Glæsi er í senn dramatísk og neistandi fyndin en umfram allt barmafull af tilfinningum.








1983
1.290 kr.Á hjara veraldar er tólf ára gamall drengur á hraðri ferð inn í heim hinna fullorðnu. Á einu ári uppgötvar hann ekki aðeins ástina heldur einnig hverfulleikann, um leið og hann vígist inn í heim orðanna.
Hér er sögð nýstárleg saga úr íslensku þorpi á fyrri hluta níunda áratugarins, heimi sem er í senn framandi og kunnuglegur. Þetta er bók um þrá eftir hinu óljósa, leitina að sjálfum sér, draumkennd skip, og gamla loftbelgi sem líða um hugarheima ungmenna mjög ofarlega á slönguspilinu. Síðast en ekki síst er þetta ástarsaga sem gerist fjarri öllum kastljósum úti við ysta haf
1983 er fjórða skáldsaga Eiríks Guðmundssonar. Sú síðasta, Sýrópsmáninn, var tilnefnd til menningarverðlauna DV.



Riddarinn sem var ekki til
1.290 kr.Í liði Karlamagnúsar er riddari nokkur sem er frábrugðinn öðrum hermönnum keisarans að því leyti að hann er ekki til. Fáir standa honum á sporði í bardagalist, hann er afar fágaður í framkomu þó hann sé nokkuð smámunasamur, samræðulist hans og hirðmennska nálgast fullkomnun. Riddarinn berst áfram á viljastyrk sínum og í krafti afreka sinna og tignar. En dag nokkurn koma upp efasemdir um nafnbætur hans: bjargaði hann konungsborinni meyju frá spjöllum eða ekki? Riddarinn verður að sanna mál sitt, hann leggur í langa ferð og líf hans er í húfi.
Riddarinn sem var ekki til er heillandi saga eftir einn snjallasta höfund Ítala á öldinni.
Árni Sigurjónsson þýddi.


Ef við værum á venjulegum stað
1.290 kr.Í borginni Lagos de Moreno í Mexíkó eru fleiri kýr en manneskjur og fleiri prestar en kýr. Íbúarnir gera uppreisn gegn stjórnvöldum vegna kosningasvindls sem verður upphafið að kostulegu ferðalagi sögumanns um ólíkar deildir hins mexíkanska þjóðlífs. Skálkasaga um spillta pólitíkusa, stórar fjölskyldur og hvað það þýðir að tilheyra millistétt í Mexíkó.
Áttum við ekki heima í þessu landi þar sem við áttum heima? Áttu ekki sífellt að vera að gerast hér stórkostlegir og yfirnáttúrulegir atburðir? Töluðum við ekki við dautt fólk? Sögðu ekki allir að við værum súrrealísk þjóð?
Mexíkóski rithöfundurinn Juan Pablo Villalobos (f. 1973) ólst upp í borginni Lagos de Moreno sem er sögusvið bókarinnar en hefur verið búsettur í Barcelona í næstum 20 ár. Fyrsta skáldsaga hans, Veisla í greninu, var fyrsta bókin í þýðingarröð Angústúru (2017) og hlaut hún mikið lof á Íslandi auk þess sem bóksalar völdu hana bestu þýddu bók ársins. Ef við værum á venjulegum stað er önnur bók Villalobos og einnig önnur bókin í þríleik hans um Mexíkó, en markmiðið með honum er að kljúfa sundur hugmyndina um Mexíkó sem töfrandi og súrrealískt land og sýna hversu hrikaleg staða mála er í raun. Auk þríleiksins hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Villalobos. Hann er einnig virkur þýðandi og hefur þýtt verk brasilískra höfunda á spænsku.

Litla Land (notuð)
1.290 kr.Gabríel er tíu ára og lifir áhyggjulausu lífi í úthverfi Bújúmbúra, í Afríkuríkinu Búrúndí. Allt hverfist um vinina og þeirra uppátæki í botnlanganum sem þeir hafa gert að ríki sínu. En þegar borgarastríð skellur á í landinu, og þjóðarmorð er framið í nágrannaríkinu Rúanda, breytist allt. Falleg saga um vináttu og sakleysi æskunnar, en líka átakanlegur vitnisburður um þau eyðandi áhrif sem stríð og ofbeldi hafa á líf og samfélög manna.
Litla land er fyrsta skáldsaga tónlistarmannsins Gaëls Faye (f. 1982) og endurspeglar uppvöxt hans í Búrúndí. Bókin sló í gegn þegar hún kom út í Frakklandi árið 2016, hefur selst þar í yfir 800 þúsund eintökum, hlotið viðurkenningar og verðlaun og verið þýdd á 30 tungumál. Einstök saga sem nú hefur verið kvikmynduð.
