• The Tortilla Curtain

    The Tortilla Curtain

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Stol

    Stol

    Stol er áhrifamikil saga um dauðann, tímann og lífið; viðleitnina til að halda í minningarnar og nýta tíma sem er á þrotum. Frásögnin er hjartnæm og grípandi en um leið leikandi létt og fyndin, ekki síst lýsingin á höktandi samskiptum feðganna sem þurfa að takast á við glataðar aðstæður – og kveðjast.

    Baddi er ráðvilltur ungur maður sem kemur heim til Íslands til að annast dauðvona föður sinn, Hörð. Heilaæxli hefur rænt hann svo mörgu sem áður var sjálfgefið og hlutverk feðganna hafa snúist við. Saman fara þeir akandi á gömlum jeppa út úr bænum, en ferðin er feigðarflan. Hörður er óðum að tapa dómgreind sinni, minni og máli, og Baddi ræður illa við aðstæðurnar og ábyrgðina á ósjálfbjarga föður sínum.

    Björn Halldórsson hefur áður gefið út smásagnasafnið Smáglæpi sem fékk afar góðar viðtökur. Stol er fyrsta skáldsaga hans.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Dyngja

    Dyngja

    Hvað leynist bak við bláan einkennisbúning og silkislæðu, sólbrúna húð og rauðlakkaðar neglur? Dauð rödd söguhetjunnar býður þér að kaupa tollfrjálsan varning og þegar þú afþakkar boðið heldur hún áfram ganginn með þennan klunnalega en vellyktandi vagn á undan sér. Hægt í átt að ljósinu og endalokum þeirrar undraverðu sögu sem nefnd hefur verið Dyngja. Hún hófst um miðbik 20. aldar á litlum bæ við rætur Ódáðahrauns og þaðan barst hún lengra inn í landið; frá hálendi Íslands út í geim og að lokum til tunglsins.

    Sigrún Pálsdóttir lauk doktorsprófi í sagnfræði frá University of Oxford árið 2001 og hefur frá námslokum unnið við ýmsar rannsóknir og ritstjórn. Fyrri bækur hennar eru Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar (2010), Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga (2013), Kompa (2016) og Delluferðin (2019). Bækurnar hafa verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Menningarverðlauna DV og Viðurkenningar Hagþenkis. Delluferðin hlaut Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2021.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Heklugjá – leiðarvísir að eldinum

    Heklugjá – leiðarvísir að eldinum

    Rithöfundur gengur daglega yfir Skólavörðuholtið með hundinn sinn, á leið á Þjóðskjalasafnið þar sem hann les sér til um listamanninn og sérvitringinn Karl Dunganon. Á safninu vinnur stúlka með eldrautt hár og sægræn augu sem vekur ekki minni áhuga en gömul skjöl – en það er mikið verk að kynnast manneskju.

    Heklugjá – leiðarvísir að eldinum er ævintýraleg saga um leit að hamingjunni. Leikar berast yfir höf og lönd og aldir; úr djúpi sögunnar birtast sífellt nýjar persónur en í iðrum jarðar kraumar eilífur eldur sem brýst upp með látum. Öskulög hylja eldri öskulög og undir öllu liggja fjársjóðir, sögur, skáldskapur og líf.

    Ófeigur Sigurðsson hefur sent frá sér ljóðabækur og skáldsögur sem vakið hafa mikla athygli, meðal annars hlaut Skáldsaga um Jón … Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2011 og metsölubókin Öræfi hreppti Íslensku bókmenntaverðlaunin 2014.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Saga af nýju ættarnafni
  • Utan frá sjó – 3. bindi
  • Tengdadóttirin I - Á krossgötum

    Tengdadóttirin I – Á krossgötum

    Þorgeir Þorgeirsson, ungur sjómaður að sunnan, ræður sig sem vinnumann á prestssetur í blómlegri norðlenskri sveit. Hann hrífst af fallegustu vinnukonunni á bænum en hikar við að bindast henni af því að hann hræðist líf í fátækt. Á heimleið um haustið leysir hann af slasaðan vinnumann á stórbýlinu Hraunhömrum. Bóndinn þar á tvær dætur og sú eldri, Ástríður, er harðákveðin í að sleppa Þorgeiri ekki aftur suður. Þótt Ástríður sé röggsöm og forkur til vinnu er hún ekki heillandi kona – en auður föður hennar freistar.

    Í Tengdadótturinni, sem kom fyrst út 1952–54 í þremur bindum og átti miklum vinsældum að fagna, segir frá ástum og örlögum jafnt sem daglegu lífi til sveita í byrjun 20. aldar. Guðrún frá Lundi hefur einstakt lag á að gæða persónur sínar lífi svo að lesandinn hverfur um hundrað ár aftur í tímann. Á krossgötum er fyrsta bókin í þessum magnaða flokki en nýrrar útgáfu hefur verið beðið lengi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Dalalíf V – Logn að kvöldi

    Dalalíf V – Logn að kvöldi

    „Komdu til mín, Þórður. Lofaðu mér að reyna að bæta svolítið fyrir það sem ég hef gert þér illt.“

    Í þessu lokabindi Dalalífs hnýtir Guðrún frá Lundi endahnúta síns mikla verks og fylgir öllum helstu söguhetjum sínum í heila höfn. En hér er líka ný aðalpersóna, Dísa, dóttir Ketilríðar og Páls Þórðarsonar og fósturdóttir hjónanna á Nautaflötum. Þrátt fyrir gott atlæti getur hún ekki stillt sig um slúður og illmælgi frekar en móðir hennar, og það dregur dilk á eftir sér.

    Dalalíf er einn voldugasti sagnabálkur sem saminn hefur verið á íslensku, ríflega tvö þúsund blaðsíður, iðandi af lífi og ólgandi fjöri. Aldrei hefur hversdagslífi í íslenskri sveit á fyrri tímum verið gerð betri skil og við það bætast tugir minnisstæðra persóna sem lesanda finnst hann að lokum þekkja eins og sjálfan sig.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Dalalíf IV – Laun syndarinnar

    Dalalíf IV – Laun syndarinnar

    „Vetrarnóttin, kolsvört og draumarík, hefur alltaf verið hjálpleg ófrjálsum ástum og kitlandi ástríðum.“

    Lína á ekkert mótstöðuafl til gagnvart elskhuga sínum, glæsimenninu Jóni á Nautaflötum. En þegar hún verður barnshafandi þarf að bjarga málum tafarlaust svo að Anna Friðriksdóttir frétti ekki af hjúskaparbrotinu. Lína stingur sjálf upp á því að giftast Dodda, vitgranna bóndanum á Jarðbrú; hún kýs frekar þann versta en þann næstbesta.

    Dalalíf Guðrúnar frá Lundi afhjúpar miskunnarleysi íslensks samfélags á fyrri öldum þegar konum hefndist grimmilega fyrir ástir í meinum. Hún dregur líka upp skýra mynd af veikluðu frúnni á höfuðbólinu og átök þeirra kvennanna verða öllum ógleymanleg. Guðrún hóf rithöfundarferil sinn seint en varð fljótt einn vinsælasti höfundur landsins.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Dalalíf II – Alvara og sorgir

    Dalalíf II – Alvara og sorgir

    „Það er ekki svo langt lífið að maður þurfi að neita sér um það sem maður þráir mest.“

    Þetta sagði Jón á Nautaflötum við æskuunnustuna Þóru í Hvammi undir lok fyrsta bindis Dalalífs. Þó að hann sé kvæntur annarri konu finnst honum ekki að hann þurfi að neita sér um lífsins lystisemdir. Til að verjast ásókn Jóns ræður Þóra til sín dugandi vinnumann og sveitin logar af sögum.

    Dalalíf Guðrúnar frá Lundi heillar enn, sjötíu árum eftir að sagnabálkurinn hóf göngu sína. Myndin sem höfundur dregur upp af ólíkum lífskjörum og ólíkum hjónaböndum í öðru bindi er skýr og áhrifamikil. Guðrún sendi frá sér sextán skáldsögur alls, sumar í mörgum bindum, og var áratugum saman einn alvinsælasti höfundur landsins.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Afdalabarn

    Afdalabarn

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Afdalabarn – kilja