• Placeholder

    The Three-Arched Bridge

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Sæluríkið

    Sæluríkið

    Sæluríkið er mögnuð og áleitin glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd – og fólk sem á stórra harma að hefna.

    Við Hafravatn finnst ferðamaður látinn með áverka á höfði. Þegar ljóst verður að hann er í raun íslenskur og kom við sögu hjá lögreglunni þegar félagi hans hvarf nokkrum áratugum fyrr fer Konráð að grufla í samhengi hlutanna. Hans eigin fortíð blandast þar inn; umtalað morðmál frá áttunda áratugnum veldur uppnámi innan lögreglunnar og fornvinur hans, Leó, er farinn í felur. Um leið leitar tíðarandi kalda stríðsins á huga Konráðs, andrúmsloft samfélags í fjötrum sem litaðist af heift og flokkadráttum.

    Arnaldur Indriðason er vinsælasti höfundur landsins, bæði heima og á erlendri grund. Sæluríkið er 27.  skáldsaga hans. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á tugi tungumála og selst í nær tuttugu milljónum eintaka um heim allan.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Missir

    Missir

    Bókin er gefin út í þúsund tölusettum og árituðum eintökum. Henni fylgir geisladiskur með upplestri höfundar á verkinu.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Mörk – saga mömmu

    Mörk – saga mömmu

    „Hann opnar hlerann og ég veit að ég þarf að stíga inn … geng varlega niður brattan stigann sem liggur ofan í kolakjallarann og fer með bænir í hljóði. Hér er niðamyrkur og köld saggalykt. Hleranum er skellt aftur og svo gerist það sem ég hef reynt hálfa ævina að gleyma.

    Vel falið leyndarmál fylgir Guðbjörgu Þórisdóttur alla tíð og vofa þess skýtur upp kollinum þegar síst skyldi, allt þar til hún á fullorðinsaldri ákveður að segja skilið við hana fyrir fullt og allt. Nú hefur dóttir hennar, Þóra Karítas Árnadóttir, skrifað sögu litlu stúlkunnar sem vissi ekki hve óeðlilegt var „að búa í tveimur aðskildum heimum, himnaríki og helvíti, í einu og sama húsinu “.

    Mörk er fyrsta bók höfundar sem dregur hér upp mynd af lífi móður sinnar sem elst upp í hlýjum faðmi stórrar fjölskyldu, en undir niðri kraumar sá hryllingur sem ekkert barn á að þurfa að þola.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Íslenski draumurinn
  • Placeholder

    The Red Word

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Eins og steinn sem hafið fágar
  • Við erum ekki morðingjar

    Við erum ekki morðingjar

    Ung kona skrifar bók sem leggur líf hennar og mannsins sem hún elskar í rúst. Ári seinna fær hún óvænt tækifæri til að segja frá sinni hlið á málinu. En hún hefur bara eina nótt. Og sá sem hlustar er ekki allur þar sem hann er séður. Við erum ekki morðingjar er spennuþrungin skáldsaga um ást, ofbeldi og viðkvæm leyndarmál.

    Dagur Hjartarson hlaut tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins fyrir fyrstu skáldsögu sína, Síðustu ástarjátninguna. Hér sendir hann frá sér bók sem veltir upp áleitnum spurningum og mun koma lesendum á óvart.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Atlas saga Pa Salt

    Atlas saga Pa Salt

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Banvæn kvöð

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar
  • Grikkur

    Grikkur

    Myndlistamaður á áttræðisaldri deilir íbúð í fáeina sólarhringa með fjögurra ára dóttursyni sínum á meðan einkadóttir hans og tengdasonur fara í ráðstefnuferð. Hann er ekkill til margra ára og býr í Mílanó en dóttirin býr á æskuheimili hans í Napólí.

    Samspil hans við dóttursoninn, dótturina og tengdasoninn er fullt af grátbroslegum uppákomum. Fortíðardraugar fara á kreik og tilvistarkreppa aldraðs listamanns snýst upp í eins konar einvígi við dóttursoninn, sem reynist honum ofjarl á flestum sviðum og gerir honum óvæntan grikk.

    Domenico Starnone er einn fremsti skáldsagnahöfundur Ítala. Áður hefur komið út eftir hann á íslensku skáldsagan Bönd.

    990 kr.
    Setja í körfu