• Óvinafagnaður

    Óvinafagnaður

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Óljós mörk

    Óljós mörk

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ef við værum á venjulegum stað

    Ef við værum á venjulegum stað

    Í borginni Lagos de Moreno í Mexíkó eru fleiri kýr en manneskjur og fleiri prestar en kýr. Íbúarnir gera uppreisn gegn stjórnvöldum vegna kosningasvindls sem verður upphafið að kostulegu ferðalagi sögumanns um ólíkar deildir hins mexíkanska þjóðlífs. Skálkasaga um spillta pólitíkusa, stórar fjölskyldur og hvað það þýðir að tilheyra millistétt í Mexíkó.

    Áttum við ekki heima í þessu landi þar sem við áttum heima? Áttu ekki sífellt að vera að gerast hér stórkostlegir og yfirnáttúrulegir atburðir? Töluðum við ekki við dautt fólk? Sögðu ekki allir að við værum súrrealísk þjóð?

    Mexíkóski rithöfundurinn Juan Pablo Villalobos (f. 1973) ólst upp í borginni Lagos de Moreno sem er sögusvið bókarinnar en hefur verið búsettur í Barcelona í næstum 20 ár. Fyrsta skáldsaga hans, Veisla í greninu, var fyrsta bókin í þýðingarröð Angústúru (2017) og hlaut hún mikið lof á Íslandi auk þess sem bóksalar völdu hana bestu þýddu bók ársins. Ef við værum á venjulegum stað er önnur bók Villalobos og einnig önnur bókin í þríleik hans um Mexíkó, en markmiðið með honum er að kljúfa sundur hugmyndina um Mexíkó sem töfrandi og súrrealískt land og sýna hversu hrikaleg staða mála er í raun. Auk þríleiksins hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Villalobos. Hann er einnig virkur þýðandi og hefur þýtt verk brasilískra höfunda á spænsku.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Litla Land (notuð)

    Litla Land (notuð)

    Gabríel er tíu ára og lifir áhyggjulausu lífi í úthverfi Bújúmbúra, í Afríkuríkinu Búrúndí. Allt hverfist um vinina og þeirra uppátæki í botnlanganum sem þeir hafa gert að ríki sínu. En þegar borgarastríð skellur á í landinu, og þjóðarmorð er framið í nágrannaríkinu Rúanda, breytist allt. Falleg saga um vináttu og sakleysi æskunnar, en líka átakanlegur vitnisburður um þau eyðandi áhrif sem stríð og ofbeldi hafa á líf og samfélög manna.

    Litla land er fyrsta skáldsaga tónlistarmannsins Gaëls Faye (f. 1982) og endurspeglar uppvöxt hans í Búrúndí. Bókin sló í gegn þegar hún kom út í Frakklandi árið 2016, hefur selst þar í yfir 800 þúsund eintökum, hlotið viðurkenningar og verðlaun og verið þýdd á 30 tungumál. Einstök saga sem nú hefur verið kvikmynduð.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sæluvíma

    Sæluvíma

    Sæluvíma er margverðlaunuð skáldsaga eftir bandaríska rithöfundinn Lily King. Hún byggir á raunverulegum atburðum í lífi bandaríska mannfræðingsins Margaretar Mead þegar hún var við störf á Nýju-Gíneu árið 1933 ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Reo Fortune, og Gregory Bateson sem hún átti eftir að giftast síðar. Uggi Jónsson var tilnefndur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir þýðinguna. Fjórða bókin í áskriftarröð Angústúru.

    Enski mannfræðingurinn Andrew Bankson er einangraður á vettvangi við rannsóknir á ættbálki sem býr við Sepik-fljótið á Nýju-Gíneu og rannsóknir hans ganga illa. Úrkula vonar er hann að því kominn að stytta sér aldur þegar hann rekst á hina frægu og hrífandi Nell Stone og kaldhæðinn eiginmann hennar, Fen, en bæði eru þau mannfræðingar. Úr verður áhugavert samstarf og ástríðufullt samband en ekki líður á löngu uns afbrýðisemi og græðgi stefnir öllu í voða.

    Sæluvíma sló í gegn í Bandaríkjunum þegar hún kom út árið 2014 og fyrir hana hlaut höfundurinn Kirkus-skáldskaparverðlaunin, Bókmenntaverðlaun Nýja-Englands og Bandarísku gagnrýnendaverðlaunin, auk þess sem hún var valin ein af tíu bestu bókum ársins af The New York Times Book Review, tímaritinu TIME og Amazon. Sæluvíma hefur komið út í 15 löndum og er kvikmynd í bígerð.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Dauðinn er barningur

    Dauðinn er barningur

    Þrjú systkini flytja lík föður sín til greftrunar í heimabæ hans Anabia í Aleppohéraði. Ferðalagið ætti undir venjulegum kringumstæðum að taka um fimm klukkustundi en það er ekkert venjulegt við ástandið í stríðshrjáðu Sýrlandi. Og ekki auðveldar þátttaka föður þeirra í andspyrnunni þeim að komast í gegnum eftilitsstöðvar, því án réttra pappíra liggur beinast við að handtaka líkið.

    Magnað verk um hnignun samfélags í löngu stríði eftir Khaled Khalifa, þekktasta samtímahöfund Sýrlands. Dauðinn er barningur hefur verið þýdd á 12 tungumál og tilnefnd til virtra bókmenntaverðlauna, meðal annars Booker International verðlaunanna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Uppljómun í eðalplómutrénu

    Uppljómun í eðalplómutrénu

    Fjölskylda Bahar flýr Teheran í kjölfar ofsókna í byltingunni árið 1979 og sest að fyrir utan afskekkt þorp í von um að geta lifað í friði. Enginn fær þó komist undan brjálæðinu sem ríður yfir landið og snertir bæði lifandi og látna, aldna og unga. Mögnuð írönsk saga um mátt ímyndunarafsins gagnvart grimmd og miskunnarleysi. Persneskt töfraraunsæi. Fjórtánda bókin í áskriftarröð Angústúru.

    Íranski rithöfundurinn Shokoofeh Azar (f. 1972) starfaði sem blaðamaður í heimalandinu en eftir ítrekaðar fangelsanir sá hún sig tilneydda til að flýja land og fékk pólitískt hæli í Ástralíu árið 2011. Uppljómun í eðalplómutrénu er fyrsta skáldsaga höfundar og hlaut Azar fyrir hana tilnefningu til alþjóðlegu Booker-verðlaunanna 2020.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Harmur englanna

    Harmur englanna

    Tíminn er stundum bölvað kvikindi, færir okkur allt til þess eins að taka það burt aftur. Það eru þrjár vikur síðan strákurinn kom í Plássið með stórhættulegan skáldskap á bakinu og vegalengdin milli Bárðar og lífsins eykst miskunnarlaust með hverjum degi. Jens landpóstur er kominn í Plássið, rétt slapp undan norðanvindinum þótt komið væri vor. Saman fara þeir strákurinn yfir að Vetrarströndinni, það eru apríllok og snjókoman tengir saman himin og jörð, þurrkar út áttirnar og landslagið. Hafi djöfullinn skapað eitthvað í þessum heimi, fyrir utan peningana, þá er það skafrenningur uppi á fjöllu

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fiskarnir hafa enga fætur

    Fiskarnir hafa enga fætur

    Þetta er sviðið: Austfirsk fjöll og Keflavík sem kölluð hefur verið svartasti staður landsins.

    Hér er sögð saga ættar allt frá byrjun tuttugustu aldar og fram til okkar daga. Sagan teygir sig frá Norðfirði til Keflavíkur, hún nær yfir allt landið, yfir fjöllin sem eru fornar rósir færðar guðum og hraunið sem lítur stundum út eins og blótsyrði djöfulsins.

    Þetta er saga fólks sem elskar og þjáist, sem leitar og flýr, saga um sársauka og söknuð, ofbeldi og kvótalaust haf. Saga um Kanaskip, Bítlana og Pink Floyd, um bjarta og dimma daga á Norðfirði þar sem kona breytist í lifandi múmíu.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Guli kafbáturinn

    Guli kafbáturinn

    Rithöfundur á miðjum aldri hefur komið sér fyrir í almenningsgarði í London. Hann á brýnt erindi við Paul McCartney, sem situr þar undir tré, en fortíðin truflar hann í sífellu og sækir að honum í líki gamals Trabants með rauðu þaki. Í bílnum sitja faðir hans, Guð með vodkaflöskuna, og Johnny Cash með gítarinn í aftursætinu, og fleiri bætast í hópinn; Sesselja gamla og Guðmundur á fjórðu hæðinni, Jesús og mamma hans, heill kirkjugarður af dánu fólki, Benjamín ökukennari og Örn Örlygsson, sem grefur upp 5000 ára gömul ljóð á súmerskum leirtöflum. Þetta er skáldsaga um listina, dauðann og þó miklu frekar um lífið, undursamlegan lækningamátt ímyndunaraflsins og Bítlana.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Himnaríki og helvíti

    Himnaríki og helvíti

    Sagan gerist fyrir meira en hundrað árum, fyrir vestan, inni í firði, á milli hárra fjalla, eiginlega á botni heimsins, þar sem sjórinn verður stundum svo gæfur að það er hægt að fara niður í fjöru til að strjúka honum.

    Strákurinn og Bárður róa um nótt á sexæringi út á víðáttur Djúpsins að leggja lóðir. Þar bíða þeir fram á brothættan morgun eftir fiskinum sem hefur synt óbreyttur um hafið í 120 milljón ár. Þótt peysurnar séu vel þæfðar smýgur heimskautavindur auðveldlega í gegn. Það er stutt á milli lífs og dauða, eiginlega bara ein flík, einn stakkur.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Saga Ástu

    Saga Ástu

    Þetta er saga Ástu.

    Foreldrar hennar völdu nafnið meðan hún var enn í móðurkviði. Nú liggur Sigvaldi faðir hennar á steyptri stétt – af hverju liggur hann þar?

    Lenti hann á fylliríi?

    Saga fjölskyldunnar rennur um huga Sigvalda. Ást í ólíkum myndum, íslensk sveit, skáldskapur og menntunarþrá, börnin sem fólk fær að hafa hjá sér og þau sem aðrir ala upp.

    Þetta er saga Ástu. Öll fæðumst við nafnlaus en erum mjög fljótlega nefnd svo það verði ögn erfiðara fyrir dauðann að sækja okkur.

    1.290 kr.
    Setja í körfu