• Santa Evita

    Santa Evita

    Eva Peron entered immortality on 26th July, 1952. The bizarre after-life of her embalmed body – hidden, hijacked, replicated, smuggled abroad, buried, resurrected, repatriated – echoed her equally strange life. This novel explores the damaging effects of fame.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • The Catastrophist

    The Catastrophist

    Gillespie, an Irishman, goes to the Congo in 1959 in pursuit of his beautiful lover Ines, a passionate Italian journalist. Unlike her, Gillespie has no interest in the deepening independence crisis, nor in the charismatic leader, Patrice Lumumba. He has other business: this is his last chance to make love work for him.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Ástkær

    Ástkær

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Blóðug jörð

    Blóðug jörð

    Árið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. A augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum og ábyrg fyrir ungum sonarbörnum. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spyr eldi.

    Á suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vigt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs.

    Vilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um landnámskonuna Audi djúpúðgu með Blóðugri jörð, sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Vígroði, hlutu fádæma góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Mindelser

    Mindelser

    Hvad ville der ske, hvis jeg kunne skrive dig fri?

    Helga ligger i en hospitalsseng. Hun kan mærke døden som en kilden i nakken og ved, at der er ved at ske noget. Skulle det virkelig ende på den måde?

    Men døden er bare en åbning, og som romanen skrider frem træder vi længere tilbage i tiden. Langsomt, stykke for stykke, finder Helga sig selv frem igen.

    Mindelser er en roman om alle de valg, der former et liv og om begyndelser og slutninger. Og om hvordan det altid er muligt at omskrive sin egen historie.

    Pernille Nørgaard Videbæk (f. 1989) er uddannet ph.d. i marketing fra Aarhus Universitet, men er nu bosat i Reykjavík, hvor hun studerer islandsk sprog og litteratur. Mindelser er hendes første roman.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Spámennirnir í Botnleysufirði

    Spámennirnir í Botnleysufirði

    Nýlendustöðin Sykurtoppur, Vestur-Grænlandi, árið 1793.

    Konu er spyrnt fram af hengiflugi svo hún hrapar til bana. Kristniboðinn Morten Falck er illa farinn á sál og líkama og efast um sjálfan sig og köllun sína. Hann vill umfram allt komast burt en óttast að verða sendur heim í hlekkjum. Grænlenskur aðstoðarprestur hans tekst á við sorg sína og reiði. Kaupmaðurinn hefur tögl og hagldir í nýlendustöðinni en undir kraumar óvild milli heimamanna og nýlenduherranna.

    Inni í Botnleysufirði hafa kristnir Grænlendingar sagt sig úr lögum við Danaveldi undir forystu spámannanna Habakúks og Maríu Magdalenu. Þau hafa fundið sinn eigin sannleika og láta sig dreyma um frelsi, jafnrétti og bræðralag, þótt langt sé til byltingarborgarinnar Parísar.

    Skáldsagan Spámennirnir í Botnleysufirði er lauslega byggð á sönnum atburðum í dansk-norska konungsveldinu í lok átjándu aldar. Söguefnið spannar mannlíf höfuðborgarinnar einsog það blasir við norskum guðfræðinema. Nýlendubyggðir Grænlands með sínum öfgum og endemum, sjómannslíf á langferðum, sveitir Noregs og logandi stræti brunans mikla í Kaupmannahöfn árið 1795. Kynngimögnuð frásögnin og einstakur stílgaldur Kims Leine tryggðu honum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2013.

    Þessi margverðlaunaða dansk-grænlenska saga hefur komið út víða um heiminn og birtist nú íslenskum lesendum í frábærri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar.

    Kim Leine er danskur rithöfundur, fæddur 1961. Hann er hjúkrunarfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur á Grænlandi árum saman. Fyrsta skáldsaga Leines, Kalak, kom út árið 2007. Í kjölfarið fylgdu Valdemarsdag, 2008, og Tunu, 2009. Spámennirnir í Botnleysufirði litu svo dagsins ljós árið 2012 og fyrir hana hlaut Leine m.a. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2013.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Þrír sneru aftur

    Þrír sneru aftur

    „Menn leita að orku í stríði og friði, lífið þrífst á orkunni í okkur sjálfum og í náttúrunni, sagði gamli maðurinn vesældarlega.“

    Á einangraðan stað suður með sjó, þar sem aldrei gerist neitt, berast fregnir af átökum heimsstyrjaldarinnar. Fyrr en varir hefur atburðarásin teygt anga sína þangað og nútíminn heldur innreið sína með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

    Höfundur dregur upp hárbeitta mynd af samfélagi á tímamótum; af eilífri baráttu manneskjunnar fyrir tilveru sinni, glímunni við fáfræði og fásinni, sannleika og lygi, heimsku og græðgi.

    Og sagan endurtekur sig stöðugt við nýjar og breyttar aðstæður, kynslóðir koma og fara … en ættarfylgjan lætur ekki að sér hæða, enginn flýr frá sjálfum sér.

    Guðbergur Bergsson hefur skrifað fjölmargar bækur, þýtt öndvegisrit og ritað greinar í blöð og tímarit. Hann hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin og verðlaun Sænsku bókmenntaakademíunnar.

    Guðbergur Bergsson lauk prófi í spænskum fræðum, bókmenntum og listasögu frá La Universidad de Barcelona 1958. Fyrsta bók hans, Músin sem læðist, kom út 1961. Hann hefur skrifað barnabækur, ljóð, smásögur, skáldsögur, skáldævisögur og greinar um bókmenntir, listir og þjóðfélagsmál í dagblöð og tímarit bæði hér á landi og í útlöndum. Hann er afkastamikill þýðandi og hefur átt sinn þátt í því að kynna fyrir Íslendingum spænskar og portúgalskar bókmenntir. Margar bækur Guðbergs hafa verið þýddar á erlend tungumál.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • -31% Þú sem ert á jörðu

    Þú sem ert á jörðu

    „Smám saman brá dagrenning birtu á landslagið. Að baki þeim rann jökullinn til sjávar og snæviþaktar þúfur vörpuðu löngum skuggum undir fannhvítum fjallshlíðum. Manneskjan gekk um þennan svarthvíta heim í skærlitum dúnjakka og með rauða púlku í eftirdragi. Á eftir henni tölti hundurinn í nokkuð hófsamari litbrigðum“

    Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.

    Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.

    Original price was: 6.990 kr..Current price is: 4.790 kr..
    Setja í körfu
  • Heilræði lásasmiðsins

    Heilræði lásasmiðsins

    „Ég svaf hjá í Central Park.“

    Þannig byrjar Elísabet Jökulsdóttir frásögnina af sambandi sínu við Algea, mann sem hún kynntist á ferðalagi í New York. Þetta er saga tveggja ólíkra einstaklinga sem mætast um stund, reyna að búa saman á Íslandi en hljóta svo að skilja. Hann er bandarískur, hún íslensk; hann er hattagerðarmaður og trommuleikari, hún er skáld; hann er stórborgarbúi, hún er náttúrubarn; hann er svartur og hún hvít.

    Þau eru falleg saman en það er snúið að vera manneskja. Bæði eiga erfitt með að skilja á milli ímyndunar og veruleika. Og ástin opnar líka ýmis herbergi sálarlífsins sem hafa verið lokuð lengi…

    HEILRÆÐI LÁSASMIÐSINS er einstök bók, skrifuð af einlægni og stílsnilld, brennandi löngun til að segja sögu – og ást.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eilífðarvetur

    Eilífðarvetur

    Siðmenningin leið undir lok. Aldir hafa liðið. Á einangraðri eyju sem eitt sinn hét Ísland ríkir viðvarandi vetur, mannskæðir frostbyljir bresta daglega á og enginn kemst burt. Fortíðin hefur fallið í gleymsku og frumstæð ættbálkasamfélög draga fram lífið við nær ómögulegar aðstæður.

    Sagnaþulirnir Tara og Breki sjá vonarglætu þegar þau hitta fyrir Maríu, fullstarfandi vélkonu sem grafist hafði undir rústum í fyrndinni en er nú fangi þeirra sem fundu hana. Botnlaus þekking hennar gæti komið lífsbaráttu fólks yfir á réttan kjöl og jafnvel leitt til þess að leið fyndist yfir hafísinn. Í skjóli nætur bjarga sagnaþulirnir vélkonunni en í kjölfarið hefst flótti yfir vetrarríki þar sem aðeins eitt lögmál virðist gilda; að komast af, sama hvað það kostar.

    „Eitt helsta fantasíuskáld Íslendinga.“ ‒ bokmenntaborgin.is

    Emil Hjörvar er verðlaunahöfundur. Eftir hann liggja verk á borð við Víghóla, Dauðaleit, Hælið og Sögu eftirlifenda.

    5.690 kr.
    Setja í körfu
  • Grasið syngur

    Grasið syngur

    Grasið syngur er saga Mary, hvítrar konu í Rhódesíu, sem kveður tilbreytingarlaust líf í borginni og hafnar í gæfusnauðu hjónabandi með bónda nokkrum. Hún hefur andúð á lífinu í sveitinni og lítur niður á þá innfæddu. Af ofstækisfullri hörku snýst hún gegn svörtum þjóni sínum sem hún bæði laðast að og fyrirlítur, uns valdið snýst að lokum í höndum hennar.

    Grasið syngur, fyrsta skáldsaga Doris Lessing, skapaði höfundi sínum skjóta frægð og hefur farið sigurför um allan heim. Grasið syngur vitnar um djúpan mannskilning og tilfinningahita þessa mikla rithöfundar. Doris Lessing lýsir sambandi hvítra og svartra af hreinskilni og vægðarleysi en einstæðri réttlætiskennd.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Meistari Jim

    Meistari Jim

    Hann var kallaður Tuan Jim, Meistari Jim, en þá nafnbót fékk hann ekki fyrr en hann var sestur að á afskekktri eyju í Austur-Indíum. Þar var hann dáður sem friðflytjandi og réttlátur stjórnandi hinna innfæddu, en saga hans fólst ekki í þessum afrekum: hún bjó í mistökum hans, í því að hafa brugðist á hættustund. Eins og þúsundir annarra ungra manna í Evrópu hafði Jim orðið sjómaður í kaupskipaflota nýlenduveldanna, knúinn áfram af hugsýn um mikil ævintýri og stórkostlegar hetjudáðir, en þegar á hólminn kom brást hann og upp frá því var ævi hans einn samfelldur flótti undan lydduorðinu sem af honum fór.

    Joseph Conrad (1857-1924) hét upphaflega Jozef Teodor Konrad Korzeniowski, sonur pólskra landeigenda sem rússnesk yfirvöld sendu í útlegð til afskekkts bæjar þar sem foreldrar hans létust meðan hann var barn að aldri. Sautján ára fór hann á sjóinn og í nærri tvo áratugi sigldi hann um öll heimsins höf. Hann varð breskur ríkisborgari og hóf að skrifa sögur á ensku sem flestar byggjast á reynslu hans af sjómennsku og nýlenduásælni Evrópumanna, sögur sem einkennast af orðkynngi og frumlegri sögutækni.

    Atli Magnússon þýddi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu