








Ungfrú Ísland
1.290 kr.Karlmenn fæðast skáld. Þeir eru um fermingu þegar þeir gangast við því óumflýjanlega hlutskipti sínu að vera snillingar. Það skiptir engu hvort þeir skrifa bækur eða ekki. Konur verða kynþroska og eignast börn sem koma í veg fyrir að þær geti skrifað.
Árið er 1963. Íslendingar eru 177 þúsund og eiga einn Nóbelshöfund. Söguhetja bókar, Hekla, er ung skáldkona sem fædd er á slóðum Laxdælu. Hún heldur til Reykjavíkur með nokkur skáldsagnahandrit í fórum sínum.
Sjötta skáldsaga Auðar Övu fjallar um sköpunarþrána í heimi þar sem karlmenn fæðast skáld og konum er boðið að verða Ungfrú Ísland.
Auður Ava Ólafsdóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir síðustu skáldsögu sína, Ör. Bækur hennar koma út á yfir 20 tungumálum.


Dýralíf
1.290 kr.Konu með mína starfsreynslu kemur fátt á óvart undir sólinni. Það er þá kannski helst maðurinn.
Í vetrarmyrkri, rétt fyrir jól, er áður óþekkt lægð í aðsigi. Á þriðju hæð við Ljósvallagötu býr ljósmóðir í íbúð sem hún erfði eftir einhleypa og barnlausa ömmusystur. Upp úr kassa undan Chiquita-banönum koma þrjú óútgefin handrit: Dýralíf, rannsókn á því sem mannskepnan er fær um, Sannleikurinn um ljósið og Tilviljunin.
Dýralíf fjallar um brothættasta og grimmasta dýrið: manninn. Og leitina að mennskunni.
Þetta er sjöunda skáldsaga Auðar Övu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Ör og hin virtu Médicis-verðlaun í Frakklandi fyrir Ungfrú Ísland. Skáldsögur Auðar Övu hafa verið þýddar á 33 tungumál.

