






Höfundur Íslands
1.290 kr.Fremsti höfundur Íslands vaknar í brekku í afskekktum dal við það að lítill strákur potar í hann. Hvar er hann? Er hann lifandi eða dauður? Ekki minnkar undrun gamals manns þegar þungstígur bóndi, forn í skapi og illúðlegur, tekur hann í fangið og ber hann heim í sitt frumstæða kot, þar sem margt er kunnuglegt. Er hann staddur í eigin höfundarverki?
Höfundur Íslands (2001) eftir Hallgrím Helgason er margslungin og nýstárleg saga sem leiðir lesandann í ótrúlega ferð um íslenskan menningarheim liðinnar aldar. Um leið er tekist á við áleitnar spurningar um samband höfundar og verks, veruleika og skáldskapar, lífs og dauða. Þetta er hrífandi og ögrandi skáldsaga sem öðrum þræði er uppgjör við 20. öldina. Fyrir hana hlaut Hallgrímur Íslensku bókmenntaverðlaunin.





Sextíu kíló af sólskini (kilja)
990 kr.Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði?
Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip.
Sextíu kíló af sólskini er fyrsta bindið í Sextíu kílóa sögu Hallgríms Helgasonar um síldarævintýrið á Segulfirði og fylgifiska þess. Hér segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni. Saga sem bæði grætir og gleður.
