• Morðhórur

    Morðhórur

    Smásagnasafn eftir Roberto Bolaño. Ófeigur Sigurðsson útlagði á íslensku.

    Smásögurnar í safninu eru álitnar með því besta sem chilenski rithöfundurinn Roberto Bolaño skrifaði og sumar þeirra eru þegar orðnar klassík í samtímabókmenntum. Hér koma fyrir öll helstu einkenni og efnistök höfundarins, kynferðismál, ofbeldi, ljóðlist, glötuð æska og umkomuleysi í framandi heimi; Bolaño er í senn hrár og ljóðrænn og gæddur bæði undraverðri frásagnargáfu og kímnigáfu.

    Bókin er riso-prentuð og handsaumauð á prentverkstæði Skriðu, eftir eftirspurn til þess að sporna gegn offramleiðslu og sóun.

    6.490 kr.
    Setja í körfu
  • Skjóða - Fyrir jólin

    Skjóða – Fyrir jólin

    Skjóða er dóttir tröllskessunnar Grýlu sem tannburstar sig bara einu sinni á ári og Leppalúða sem bakar bestu kanilsnúða í heimi. Skjóða á fleiri en 100 systkini og 13 þeirra þekkir þú vel því jólasveinarnir eru bræður Skjóðu. Sagan hefst í Grýluhelli þar sem Skjóða er að undirbúa jólin en þegar jólakötturinn eignast kettlinga fer allt úr skorðum.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Rækjuvík

    Rækjuvík

    Eftir langan, dimman vetur og vægast sagt glatað vor, er sólin loksins mætt til Reykjavíkur. Tvíburasystkinin Inga og Baldur eru komin í sumarfrí og forvitni þeirra er vakin þegar þau finna dularfullt flöskuskeyti. Þau ákveða að rannsaka málið á sinn einstaka hátt og ævintýri hversdagsins hefjast!

    Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!

    Rækjuvík er þriðja bókin um tvíburana uppátækjasömu en áður hafa komið Grísafjörður og Héragerði. Fyrri bækurnar voru hlaðnar lofi og hlutu alls konar tilnefningar og verðlaun.

    Rækjuvík er bráðskemmtileg, fyndin, litrík og falleg bók um systkini sem eru jafn ólík og dagur og nótt. Hún er sjálfstætt framhald Grísafjarðar og Héragerðis. Lóa Hlín hefur tvívegis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs og Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna. Bækur hennar hafa verið valdar bækur ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.

    6.390 kr.
    Setja í körfu
  • Ekki fá þér hamstur
  • Árniður að norðan

    Árniður að norðan

    Ljóðabókin Árniður að norðan er fyrsta bók Pálma Ragnars Péturssonar. Langflest ljóðanna eru prósar sem sum hver hafa dvalið með höfundi lengi. Hér fléttast saman fegurð, ást, sorg og væntumþykja. Ljóðin venslast hvert við annað á ýmsan hátt í dúr og moll. Það er stutt í húmorinn og höfundur gerir upp þessi 60 ár sem hann hefur bráðum lifað á einstakan hátt.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þegar hún hló

    Þegar hún hló

    Umdeild fjölmiðlakona finnst myrt úti á Granda eftir að hafa hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni. Þrátt fyrir mannfjöldann eru engin vitni að atburðinum og morðið virðist óvenju fagmannlega útfært. Hin unga lögreglukona, Sigurdís, er kölluð til liðs við rannsóknina, en um leið dregur til tíðinda í máli er tengist dauða föður hennar.

    Katrín Júlíusdóttir tekur hér upp þráðinn úr bók sinni Sykur, sem fékk góða dóma og hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn. Sykur kom út í Bretlandi og fékk glimrandi viðtökur.

     

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Allar litlu lygarnar

    Allar litlu lygarnar

    Ung velgengnishjón láta lífið af skotsárum á heimili sínu frá tveimur dætrum, kornabarni og unglingsstúlku. Tuttugu árum síðar leitar sú eldri til sálfræðings. Hvað gerðist á þessu mikla fyrirmyndarheimili? Hvers vegna töldu ýmsir innan lögreglunnar að ekki hefðu öll kurl komið til grafar í málinu?

    „Í tvo áratugi hefur þetta mál vafist fyrir mér, en aldrei bjóst ég við því að einn daginn yrði ég hluti af sögunni.“

    Ung velgengnishjón láta lífið af skotsárum á heimili sínu frá tveimur dætrum, kornabarni og unglingsstúlku. Tuttugu árum síðar leitar sú eldri til sálfræðings sem sérhæfir sig í áföllum – og þekkir þau reyndar líka á eigin skinni. Hvað gerðist á þessu mikla fyrirmyndarheimili? Hvers vegna töldu ýmsir innan lögreglunnar að ekki hefðu öll kurl komið til grafar í málinu? Og af hverju er sálfræðingurinn með rannsóknargögn úr því í sínum fórum?

    Eva Björg Ægisdóttir hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir glæpasögur sínar, bæði heima og erlendis, meðal annars unnið Blóðdropann – Íslensku glæpasagnaverðlaunin og Gullrýtinginn í Bretlandi fyrir frumraun ársins. Bækur hennar koma út á yfir tuttugu tungumálum.

    Allar litlu lygarnar er þéttofin glæpasaga með óvæntum vendingum og heldur lesandanum í heljargreipum allt til enda.

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Syndafall

    Syndafall

    Yrsa Sigurðardóttir fléttar hér listilega saman ólíka þræði sem virðast algjörlega ótengdir en undir brothættu yfirborðinu lúrir ógæfan …

    Ung kona heyrir stöðugt ókennilegan grát eftir að hún lætur græða kuðung í eyrað en hún missti heyrnina í æsku. Hvaðan koma þessi hljóð? Rithöfundur leggur land undir fót um hávetur til að heyja sér efni í skáldsögu sem hann hyggst byggja á dramatískum atburðum í sögu fjölskyldunnar – en það fer ekki alveg eins og hann ætlaði. Og kona sem lifað hefur í skugga ofbeldis sem hún var beitt fyrir áratugum leitar réttlætis með ófyrirsjáanlegum afleiðingum

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Skrifað í sand: Minningabrot

    Skrifað í sand: Minningabrot

    Karl Sigurbjörnsson biskup skildi eftir sig handrit að sjálfsævisögu þegar hann lést í febrúar árið 2024. Hér lýsir hann uppvexti sínum og daglegu lífi í Reykjavík um miðja síðustu öld, segir frá litríkum persónum, skólagöngu, áhrifavöldum, prestsárum og fjallar sömuleiðis um erfið mál á biskupsstóli og dregur ekkert undan.

    Karl horfir hér með augum barnsins á Reykjavík vaxa og breytast, segir frá litríkum persónum sem birtast götunum og fjallar um áhrifavalda æsku sinnar og skólagöngu.

    Karl skrifar af einlægni um það hvernig hugur hans hneigist að trúarlegum efnum, stofnun fjölskyldu, guðfræðinámi og fyrstu prestsárunum. Þá fjallar hann sömuleiðis um erfið mál sem hann glímdi við sem biskup Íslands og dregur ekkert undan.

    Hispurslaus, vel skrifuð og skemmtileg frásögn sem bregður lifandi ljósi á Reykjavík fyrri tíma en tekst líka á við erfiðar spurningar um lífið og tilveruna af hreinskiptni og heiðarleika.

    9.290 kr.
    Setja í körfu
  • Syng, mín sál: 40 söngvar úr íslenskum handritum fyrri alda

    Syng, mín sál: 40 söngvar úr íslenskum handritum fyrri alda

    Ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um íslenska tónlistarmenningu. Lögin sem hér eru loks gerð aðgengileg eru af marg­víslegum toga en eiga það sameiginlegt að hafa fyrir óralöngu lífgað upp á til­ veruna í hrjóstrugu landi á hjara veraldar.

    Íslensk handrit frá fyrri öldum hafa að geyma hundruð sönglaga en fæst þeirra hafa verið aðgengileg flytjendum og áhugafólki um tónlist. Nú hefur Árni Heimir Ingólfs­ son safnað saman 40 lögum úr þessum handritum. Þau eru af marg­víslegum toga en eiga það sameiginlegt að hafa fyrir óralöngu lífgað upp á til­ veruna í hrjóstrugu landi á hjara veraldar.

    Elstu lögin eru frá fimmtándu öld en þau yngstu frá þeirri átjándu og gefa þau góða mynd af tónlistarlífi á Íslandi í ríflega þrjár aldir. Í bókinni er einnig að finna greinargóðar skýringar á uppruna laganna og sögulegu samhengi þeirra.

    Árni Heimir Ingólfsson er mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistarsögu. Hann hefur í þrígang verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bækur sínar, nú síðast Tónar útlaganna.

    Syng, mín sál er ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um íslenska tónlistarmenningu.

    6.890 kr.
    Setja í körfu
  • Hjartað varð eftir
  • Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka

    Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka

    Barnabókin Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka eftir Helgu Sv. Helgadóttur og Kristínu Karlsdóttur með teikningum eftir Ásbjörn Erlingsson er stórskemmtilegt jóladagatal sem færir forna, íslenska sagnaleifð í samtímann – og í framtíðina.

    Þegar sagan hefst í Reykjavík framtíðarinnar, hafa ekki verið haldin jól svo áratugum skiptir enda talin til óþarfa. Þann 1. desember árið 2100 fær Grýla sig fullsadda af ólátunum í jólasveinunum og ákveður að reka þá úr hellinum til sinna hefðbundnu starfa. Til þess þarf hún að endurvekja jólaandann úr fortíðinni en það verk er einungis á færi góðra barna … og vélmenna.

    1.990 kr.
    Setja í körfu