



Ljóð vega gerð
4.990 kr.Ljóð vega gerð er þriðja og síðasta bindi Ljóðvegasafns Sigurðar Pálssonar. Hann vakti snemma athygli fyrir persónulegan og ferskan ljóðstíl.
Fyrri bækur hans tvær, Ljóð vega salt og Ljóð vega menn eru meðal þess lífvænlegasta í íslenskum skáldskap síðustu ára. Í þessari nýju bók eru eins og í hinum fyrri ljóðaflokkar þar sem mismargar atrennur eru gerðar að einhverju heildarviðfangsefni enda þótt hvert ljóð standi sem sjálfstæð heild.
Yrkisefnin eru fjölbreytt og skírskotanir margvíslegar. Við sjáum að bernskuslóðir, höfuðborg og heimsborg eru enn á sínum stað og sömuleiðis hugsun Sigurðar um tíma og rými og ferðalag í margs konar skilningi.
Tungumálið er krafið sagna um sjálft sig og okkur hin og vegferð okkar á ljóðvegum.












Ósýnilega konan
1.290 kr.Í myndlistarmanninum og heimshornaflakkaranum Sigurði Guðmundssyni búa þrjár persónur sem sífellt takast á: Kallinn Sigurður Guðmundsson, Konan Sigurður Guðmundsson og Hulstrið Sigurður Guðmundsson. Þessar persónur lifa lífi höfundar í eitt ár, takast á um verk hans og rökræða allt sem fyrir augu ber horfa á líf hans og list augum kynjanna þriggja. Þetta ár er höfundur staddur í Kína og sjálfur horfir hann sínum vestrænu augum á menninguna þar eystra.
Kyngreining Sigurðar á sjálfum sér og þeirri menningu sem hann er hluti af fæðir af sér óvenjulegar og heimspekilegar myndir af tilvist okkar – myndir sem oft eru spaugilegar og á skjön við viðteknar hugmyndir um veruleikann og tungumálið.„ . . . hvernig höfundurinn brýtur mannlega reynslu til mergjar, hvernig hann lýsir nöglinni á stórutá á blindri nuddkonu í Kína – er ekki á allra færi.“ – Kristján Guðmundsson




